Feykir


Feykir - 24.08.1994, Blaðsíða 5

Feykir - 24.08.1994, Blaðsíða 5
28/1994 FEYKIR5 Króksmótið í knattspyrnu: Poliarnir bíða eftir því allt sumarið Það er orðið áliðið dags. Sólin hefur lækkað sig á vesturhimn- inum og hverfur senn á bak við Tindastólinn. Á íþróttavellin- um er að færast ró yfir hlutina og manngrúinn sem verið hafði þar um helgina er að tygja sig til heimfarar. Krakkarnir í bænum er þátt tóku í mótinu geta leyft sér að dvelja aðeins á vellinum og rifja upp atburði og ævintýri helgarinnar. Veg- farandi er leið á um götu eina í bænum veitir eftirtekt hugföng- um boltastrák sem í algleymi líður eftir gangstéttinni á leið heim til sín. Hann heldur með annarri hendinni um borðann á verðlaunapeningnum sínum og virðir hann fyrir sér. Yfir andlitinu er sólskinsbros sem nær langleiðina út að eyrum. I hinni hendinni heldur drengur- inn á möppunni sinni frá mót- inu með mynd af Iiðinu sínu. Hann er greinilega hamingju- samur þessi ungi knattspyrnu- maður. I>að er eins og hann hafi höndlað þau dýrustu djásn sem veröldin býður upp á. Mesta hátíð fótboltastráka hér um slóðir er nýlega afstaðin. Það er sama hver segir frá: Siglfirð- ingur, Ólafsfirðingur, Dalvíking- ur, Húsvíkingur, Blönduósingur, Hvammstangabúi, Sauðkræking- ur, og í seinni tíð. Langnesingur, Eskfirðingur og ísfirðingur, að al- veg frá því snemma á vorin bein- ist eftirvænting pollanna aðalega að því að fara á Króksmótið, það er það sem allir bíða eftir. Króks- mótið er orðið álíka viðburður víða um land og Pollamót Eim- skips er í Eyjum. Króksmótið hefur verið að stækka með árunum og fleiri fé- lög að bætast við með þátttökulið, og nú er svo komið að mótið er sprungið. Það er ekki hægt að taka við liðum frá fleiri félögum. Nú tóku í fyrsta sinn þátt í mótinu lið frá Bolungarvík. Á síðasta ári tóku Isfirðingar og Eskfirðingar- í fyrsta sinn þátt í mótinu. Veður til keppni þá var með afbrigðum slæmt. Þrátt fyrir það var ánægja drengjanna frá Isafiröi og Eski- firöi það mikil að þcir vildu endi- lega fara á Króksmótið aftur, og trúlega hefur ánægjan ekki verió minni hjá strákunum að austan og vestan eftir mótið um daginn. Veðrið, sem var stórkostlegt báða dagana, átti drúgjan þátt í að gera mótið að glæsilegri hátíð. Króksmótið fór fram um næst- síðustu helgi 13-14 ágúst. Að þessu sinni tóku þátt 52 lið og leikimir urðu 176 talsins. Áætlað er að keppendur á mótinu hafi verið rúmlega 500 að Tindastól- skrökkunum meðtöldum, en um 420 krakkar komu til bæjarins til að keppa, að sögn Ómars Braga Stefánssonar formanns knatt- spymudeildarTindastóIs. Að lok- inni keppni á laugardag var efnt til heilmikillar grillveislu að vanda og ýmislegt til gamans gert. Þar litu vió m.a. skemmti- kraftamir Hemmi Gunn og Ómar Ragnarsson, en heióursgestur mótsins, afreksmaðurinn úr röð- um fatlaðra, Geir Sverrisson af- henti verðlaunin að lokinni keppni á sunnudag, ásamt Ólafi Adolfssyni landsliðsmanni af Skaganum og fyrrverandi leik- manni Tindastóls og Gísla Svan Einarssyni fulltrúa Skagfirðings. Það var Fiskiójan/Skagfirðingur sem var aóalstyrktaraðili mótsins eins og síðustu árin. Auk verð- launa fengu allir keppendur stækkaða litmynd af liði sínu og mæltist þessi nýjung mjög vel fyrir. Urslit í einstökum fiokkum á mótinu urðu þessi: 5. flokkur a: 1. Tindastóll, 2. Dalvík, 3. Austri. 5. flokkur bc: 1. Tindastóll b, 2. Tindastóll c, 3. Austri b. 6. flokkur a: 1. KS, 2. Leiftur, 3. Völsungur 6. flokkur bc: 1. Völsungur b, 2. KS b, 3. Dal- vík b. 7. flokkur a: 1. Völsungur, 2. Dalvík, 3. Leiftur 7. flokkur bc: 1. Völsungur b, 2. Dalvík b, 3. Leifturb. Verðlaun voru einnig veitt fyr- ir prúðustu lið í keppninni. I 5. flokki hlutu þau Kormáksmenn, í 6. flokki KS og í 5. flokki BÍ frá Isafirði. Leiíað að varma á Ströndinni Hreppsnefnd Höfðahrepps sam- þykkti á fundi sínum 13. júlí sl. að kosta 300 þúsundum til jarðhita- leitar í nágrenni Skagastrandar. Samið var við Jarðfræðistofuna Stapa að sjá um tilraunaboranir og rannsóknir á svæðinu. Frá þessu er greint í Þórdísi spá- konu fréttabréfi Skagstrendinga ný- lega. Þar segir að að gerðar hafi ver- ið þrjár tilraunaborholur, við Branda- skarð, Steinnýjarstaði og Eyjarkot. Mælingar á holunum sýndu að hol- umar við Brandaskarð og Steinnýjar- staði eru kaldar eóa með 70 gráður á celsíus á km eins og gamla holan við Skagaströnd, en holan við Eyjarkot hefur hitastigul upp á 90 gráóur á km sem gæti bent til jarðhita innan 5 km fjariægðar. I>etta er þó fyrstu mæl- ingar og því ekki hægt að draga miklar ályktanir á þessu stigi. Sigurvegarar í 5. blokki a-liða, Tindastólsstrákarnir ásamt þjálfara sínum Sigurjóni Inga Sigurðssyni og aðstoðarmanni hans Davíð Rúnarssyni. Sigurvegarar í 6. flokki a-liða, KS-ingar ásamt þjálfara sínum Gunnlaugi Oddssyni. w Héraðsmót framsóknarmanna í Skagafirði verður haldið í Miðgarði laugardaginn 27. dgúst og hefst kl. 21,00. Stutt dvörp flytja alþingismennirnir Pöll Pétursson og Stefön Guðmundsson. Tjarnarkvartettinn skemmtir með kvartett- og Ijóðasöng. Hinn landþekkti Jóhannes Kristjánsson kitlar hláturtaugarnar. Hljómsveit Geirmundar leiðir fjörið í dansinum. Allir í stuði og allir veikomnir. Stjórnin.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.