Feykir


Feykir - 24.08.1994, Blaðsíða 8

Feykir - 24.08.1994, Blaðsíða 8
24. ágúst 1994,28. tölublað 14. árgangur. Sterkur auglýsingamiðill GFMWj Það komast allir í Gengið unglingaklúbb Landsbankans Sláðu til og komdu í Gengið ^ Pottþéttur klúbbur! Jw Landsbanki Sími35353^ 'siands Banki allra landsmanna Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri veitir eiturlyfjavísinum móttöku frá hjólreiðarköpp- unum fyrir framan Stjórnsýsluhúsið á Króknum að viðstöddum kiwanismönnum og skátum. Eiturlyfjavísirinn afhentur á Sauðárkróki og Blönduósi Atvinnuástand í júlímánuði: Mesti bati á Norðurlandi vestra og Suðurlandi Atvinnuleysi minnkaði mikið alls staðar á landinu í júlí, en hlutfallslega mest á Norður- landi vestra og Suðurnesjum frá júnímánuði. Þetta kemur fram í yfirliti um atvinnuá- standið frá Vinnumálaskrif- stofú félagsmálaráðuneytis. Þar kemur einnig fram að búast megi við svipuðu avinnuá- standií ágústmánuði víðast hvar á landinu og geti það orð- iðá bilinu 3-3,4%. Meðalfjöldi atvinnulausra á Norðurlandi vestra var í júlímán- uði 135 eða um 2,4% af áætluð- um mannafla, og hafði minnkað úr 4,2% frá júní. Atvinnulausum hafði fækkað um 96 að meðaltali milli mánaða, en var örlítið meira en í júlímánuði í fyrra. Atvinnuástand bamar nær alls staðar á svæðinu. A Sauðárkróki og nágrenni fækkar atvinnulaus- um um 43 að meóaltali eða um 67% og á Blönduósi og nærsveit- um fækkar atvinnulausum um 17 eða um 50%. Þá fækkar um 11 á Siglufirði eða um 61% og um 10 á Skagaströnd eða um 37%. Þá fækkar um 5 að meðaltali á skrá á Hólmavík cn minna annars staðar. Atvinnuleysi er hlutfallslega langmest í Lýtingsstaðahreppi, en þar em 16 atvinnulausir að með- altali eða nærri 12% allra atvinnu- lausra á svæðinu. Um 21 eða 16% atvinnulausra em skráöir á Sauð- árkróki og nágrenni, um 17 eða 13% á Skagaströnd og um 16 eða 12% á Blönduósi og nágrenni, en minna en 10% annars staðar. Vemlegt atvinnuleysi er einnig í Fljótahreppi þar sem 10 manns cm atvinnulausir aó meðaltali og í Seyluhreppi þar sem 9 em at- vinnulausir. Fækkunin meðal at- vinnulausra var meiri hjá konum en körlum á svæðinu, 63 konur og 33 karlar. Guðmundur kominn til starfa á Tanganum Kiwanishreyfingin í landinu hefúr undanfarið gengist fyrir kynningarátaki á svokölluðnm eitulyfjavísi, sem er sú fræðsla sem hreyfmgin lætur nú í té í baráttunni gegn eiturlyfjum og vímuefnum. Fjórir ungir menn hafa undanfarið hjólað hring- veginn um landið og afhent eit- urlyfjavlsirinn á mörgum þétt- býlisstöðum. Þeir áttu leið um Sauðárkrók og Blönduós sl. laugardag. A Sauðárkróki hjóluðu kiwan- ismenn ásamt bömum á móti hjólreiðaköppunum og við stjóm- sýsluhúsið tóku Snorri Bjöm Sig- urðsson bæjarstjóri og Jónas Snæbjömsson forseti bæjarstjóm- ar á móti hópnum ásamt skátum. Snorri Bjöm bæjarstjóri veitti þar eiturlyfjavísinum móttöku fyrir hönd bæjarbúa og gat þess í leið- inni hve gagnlegt átak kiwan- ismanna væri. Svo sannarlega veitti ekki af að vera á verði gegn þeim vágesti sem eiturlyfm séu, ekkert síður á Sauðárkróki en annars staðar. Hjólreiðaköppun- um var síðan boðið til hádegis- verðar á Króknum, en þcir komu þangað rétt fyrir hádegið. Hjólreiðakappamir komu til Blönduóss um miójan daginn. Þar tók Sigurlaug Hermannsdóttir forseti bæjarstjómar á móti þeim ásamt skátum og veitti eitur- lyfjavísinum móttöku. Þá þáðu hjólreiðakappamir veitingar. Eiturlyfjavísirinn er handhægt hjálpartæki til að greina fyrstu einkenni um notkun vímuefna ef gmnur vaknar um slíka neyslu. Hann upplýsir um flest vímuefni ef gmnur vaknar um slíka neyslu. Upplýsingar em um flest vímu- efni sem á markaði em og um einkenni breytinga á hegöun, tæki sem notuð em til neyslunnar og fleira. Fyrir sjö ámm gaf kiwanis- hreyfingin vísirinn út í fyrsta sinn. Mæltist það framtak vel fyrir og er mál manna er vinna að vímu- vömum að ntikil þörf sé fyrir þetta hjálpartæki. Guðmundur Guðmundsson, sem nýlega var ráðinn sveit- arstjóri á Hvammstanga, mætti á hreppsskrifstofúna í fyrsta sinn sl. föstudag. I samtali við Feyki sagði Guðmundur að sér litist vel á staðinn og sér hlakkaði til að fást við starfið. „ Væntanlega verður þetta þó ekki mikið frábmgðið því sem ég fékkst við áður, þó að samfélagið hér sé heldur stærra en á Raufarhöfn", sagði Guðmundur, en hann var áður sveitarstjóri íyrir austan. Þess má geta að Guðmundur er Amesingur að uppmna og starfaði áðuren hann kom norður að framkvæmdastjóm hjá Sam- bandi málni- og skipasntiða. Oddvitinn Við Guttormur förum á Héraðsmótið. Bóknámshúsið vígt 3. sept. Bóknámshús Fjölbrautaskól- ans verður vígt formlega laug- ardaginn 3. september næst- komandi við hátíðlega athöfn og jafnhliða fer fram fyrsta skólasetningin í hinu nýja húsi. Biskupinn yfir íslandi Herra Olafur Skúlason mun fram- kvæma vígsluna, menntamála- ráðherra Ólafur G. Einarsson verður viðstaddur. „Væntan- lega verður öllum velunnurum skólans boðið til athafúarinnar og húsið opið hverjum þeim sem vilja skyggnast hér um sali“, segir Jón F. Hjartarson skólameistari. Starfslið Fjölbrautaskólans er þessa dagana að koma tækjum og búnaði fyrir í nýja bóknáms- húsinu. Jón F. Hjartarsson skóla- meistari segir tilkomu hússins byltingu í skólastarfinu frá því sem áöur var. Aðstaða nemenda, kennara og starfsliös batnar til muna. I húsinu em til að mynda 13 kennslustofur, en það dugar samt ekki til. Kennt verður áfram í rými í heimavistarhúsnæði eins og var síðasta vetur. Nokkur fjölgun verður á nem- endum fjölbrautaskólans í vetur. Utlit er fyrir að þeir veröi tæplega 480, eö_a um 30 fieiri en síðasta vetur. A Sauðárkróki verði við nám 425, í framhaldsdeildinni á Siglufirði verða 30 nemendur og á Blönduósi 16. Gæðaframköllun BÓKABÚB BKÍBcIARS

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.