Feykir - 23.11.1994, Qupperneq 2
2 FEYKIR 41/1994
Keraur út á mióvikudögum vikulega. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa: Aðalgata 2, Sauóárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Símar:
95-35757 og 95-36703. Myndsími 95-36703.
Ritstjóri: Þórhallur Asmundsson. Fréttaritarar:
Magnús Olafsson Austur - Húnavatnssýslu og
Eggert Antonsson Vestur - Húnavatnssýslu.
Blaóstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ.
Guðbrandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Ámason. Áskriftarveró
137 krónur hvert tölublaó með viróisaukask..
Lausasöluverð: 150 krónur meó viróisaukask.
Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Sást hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI VESTRA LAUGARDAGINN 26. NÓVEMBER 1994
SKRIFSTOFA
HJÁLMARS JÓNSSONAR
Aðalgötu 21
Sauðárkróki
Sími 3 63 12
LÍTIÐ INN - HEITT Á KÖNNUNNI
Stuðningsmenn
STUÐNINGSFÓLK SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS:
TÖKUM ÖLL ÞÁTT í PRÓFKJÖRINU
Skagfírðingar athugið!
Um mánaóamótin
kemur loksins út
Ijóöabókin EYJAN
SVARTA eftir
G U Ð R Ú N U
GÍSLADÓTTUR
sem Skagfirð-
ingum var kunn af
ljóðum og öörum
kveóskap sínum.
Bókin er gefin út í
takmörkuðu upplagi.
Sölufólk veróur á Sauðárkróki (Hótel
Mælifelli) dagana 1 .-6. desember.
Einnig er hægt að panta bókina hjá
Sjöfn Helgadóttur í símum
91-689239, 91-814847 og 91-656549.
„Eg hef trú á vin-
sældum þessaflokks"
Ný bók komin út af Skagfirskum æviskrám
Nýkomið er út hjá Sögufélagi
Skagfirðinga bindi af skagfirsk-
um æviskrám. Er það fyrsta
bindi í flokki búenda frá tíma-
bilinu 1910-1950. Bókin er 320
bls. að stærð og í henni eru um
100 æviskrárþættir með mynd-
um, auk heimilda- og nafna-
skrár. I»að er Iljalti Pálsson
skjalavörður á Sauðárkróki og
formaður Sögufélagsins, sem
hefur séð um þessa útgáfu og
hann svaraði nokkrum spurn-
ingum um þetta verkefni.
,J>að hefur lengi verið spurt
eftir framhaldi þeirra æviskráa,
sem komu út í fjórum bindum á
árunum 1964-1972 og fjölluðu
um fólk sem var búandi í Skaga-
firði á árunum fyrir og eftir alda-
mótin. Nú er komið fyrsta bindi af
þessu framhaldi og væntanlega
munu fleiri fylgja í kjölfarið á
næstu árum“.
Hvemig hefúr verið staðið að
þessu verki?
,d»að hefur verió unnið mark-
visst að þessari útgáfú í tvö ár, en
áður var unnið mikið undirbún-
ingsstarf viö heimildasölnun og
einnig höfðu þá verið skrifaðir all-
margir þættir. Ymsir voru fengnir
til aö skrifa þætti, höfundar eru
alls 22 í þessari bók, en ritstjóm-
in fólst í því að fá fólk til að skrifa
og hjálpa með útvegun heimilda,
yfirfara síðan þættina, samræma
og lagfæra eða bæta í eftir þörf-
um, útvega ljósmyndir og hafa
samband við afkomendur. Jafnan
var reynt að koma þáttum í skoð-
un hjá einhverjum nákomnum.
Allar dagsetningar, fæðingardag-
ar, dánardagar og giftingardagar
vom bomir saman við kirkjubæk-
ur, svo að flestum dagseúiingum
og ártölum ætti að mega treysta.
Reyndar em mörg dæmi um að
fæóingardögum ber ekki alltaf
saman við það sem fólk hefur
alltaf haft fyrir satt. Þá er farin sú
Körfubolti útvalsdeild
Tindastóll - ÍR
nk. sunnudagskvöld kl. 20,00.
Komið og sjáið
Tindastólsstrákana
fást við spútniklið
deildarinnar.
Áfram Tindastóll!
er ritstjóri bókarinnar.
leið að setja þá dagsetningu sem
fólk telur rétta, en dagsemingu
kirkjubókar í sviga aftan við“.
Er þetta dýrt verk?
,3ókin er talsvert dýr. Það er
lióin tíð að hægt sé að þrælka
menn endalaust í sjálfboðavinnu.
Því var aó pessu sinni að jafnaði
greidd smáþóknun til höfunda. Þó
var ekkert greitt fyrir ef menn
skrifuðu um foreldra sína. En þótt
efnið sé komið í hendur ritstjóra
er oftast efúr nokkurra daga vinna
að meðaltali við hvem þátt áður
en hann er kominn á prent. Ef allt
er talið, þá má ætla að kostnaður
verói nálægt þremur milljónum
króna“.
Nennir svo einhver að lesa
svona bækur?
„Fjölmargir hafa gaman af
ættfræði og persónusögu, og sá á-
hugi fer vaxandi eftir að fólk er
komið á vissan aldur og ég hef trú
á að þessi flokkur verði vinsæll,
því þama er verið að fjalla um
fólk, sem margir núlifandi muna
vel eftir í flestum tilfellum, stund-
um fólk sem lifað hefur fram á
síðustu ár.
Af götunni
Ekkert verra en D-ið
Einn almesti framsóknarmað-
ur á landinu, og kannski sá mesti,
býr á Króknum. A dögunum varð
hann fyrir því árans óláni að eyði-
lcggja bílinn sinn í umferðaró-
happi. Maðurinn sem orðinn er
stirður til gangs, fór fljótlega aó
atliuga með kaup á nýjum bíl, og
fór til þess ama til bóksalans í
bænum sem er með bílaumboð.
Bóksalinn sagði að fyrst að gang-
lintimir væm famir að gefa sig, þá
væri langsniðugast fyrir frammar-
ann gamla að fá sér einn sjálf-
skiptan. Jú maðurinn hélt nú að
það væri ráð.
Sá sjálfskipti kom að sunnan
og bóksalinn renndi honum heim
til framsóknarmannsins gamla og
lagði honunt fyrir utan húsið. Eft-
ir að hafa sýnt eigandanum helstu
stjómtæki nýja bílsins hélt síðan
bóksalinn til síns heima. En síðan
leið og bcið, nokkrir dagar liðu,
og aldrei var nýi bíllinn hreyfður.
Maður einn kom þá að tali við
gamla frammarann og spurði
hvemig stæði eiginlega á því að
hann væri svona lítið fyrir að nota
nýja bílinn. „Nú ef ég ætla að
keyra áfram á honum þá þarf ég
að setja í D-ið og ég er nú lítið
hrifinn af því“.
Pólitískar snörur
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum tíð umferðaróhöpp við
bæinn Gcitaskarð í Langadal að
undanfömu, og minnast menn
þess ekki áður að slík slysaalda
hafi gengið yfir á þessum stað.
Seinast varð óhapp þama á laug-
ardagsmorgun.
Þetta er vitaskuld mikið al-
vömmál, en gárungamir hafa
engu að síður fundið skýringu á
þessu. Agúst Sigurósson bóndi á
Geitaskarði er nefnilega kominn á
fullu í pólitíkina og menn gera því
skóna að Gústi hafi þama lagt ein-
hverjar pólitískar snömr fyrir veg-
farendur til að ná af þeim tali og
kynna stefnu sína. Hvað þessi að-
feið hefur skilað miklum árangri í
atkvæðum talið kemur svo vænt-
anlega fram í prófkjörinu um
helgina.
Þrír úr Blönduhlíð
Þrír af frambjóðendum í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins eiga
ættir sína að rekja í Blönduhlíð-
ina. Það em þeirHjálmar Jónsson,
Vilhjálmur Egilsson og Friðrik
Guðmundsson Hansen.
Handanvatnamaður einn sem
hafði samband við blaðið fyrir
nokkmm dögum benti á þetta og
kom um leið á framfæri þeirri
kvörtun að það hefði nú mátt
dreifa þessu beturhéma á svæðið
fyrir handan. Að minnsta kosti
hefðu þcir gjaman viljað sjá Har-
ald Jóhannesson bónda í Enni í
framboói, það hefði þá verið svo-
lítið mótvægi við alla þessa
Blöndhlíðinga í framboðinu.