Feykir - 07.12.1994, Page 5
43/1994 FEYKIR5
Draslið skorið og
tálgað af vírunum
Frásögn Péturs Sighvats af fágætri
símabilun fyrir 60 árum
Þær hafa orðið miklar breyt-
ingarnar í starfi símamanna frá
því fyrr á öldinni og til dagsins í
dag. Og þeir hafa lent í ýmsu
karlarnir hjá símanum um
dagana. í símavinnuflokki þeim
sem gerður hefur verið út frá
Sauðárkróki hafa verið margir
sem kenndir eru við Stöðina,
Aðalgötu 11, en þar var sím-
stöðin lengi til húsa, og þær
voru margar símalínurnar sem
lágu í staurana þar fyrir utan.
A Stöðinni átti heima Sighvatur
P. Sighvatsson, sem lengi vann
hjá símanum. I»órður bróðir
hans var lengi flokksstjóri. Þar
áður hafði Pétur faðir þeirra
verið flokksstjóri, og þeir hefðu
sjálfsagt frá mörgu að segja
þeir Stöðvarkarlar ef þeir væru
enn ofan moldu.
Rúnar Bjömsson símaverk-
stjóri rakst á skemmtilegan pistil í
símablaðinu frá 1934, eða 60 ára
gamlan. Þar sendir Pétur Sighvats
línur til blaðsins og segir orðrétt:
„Ég skrifa þessar fáu línur til
gamans og fróðleiks, því það mun
vera fágætt að símabilun verði
eins og sú er hér segir frá, en það
er bilunin á Borgarsandi 26. og
27. október 1934. Það sem erein-
stakt við þess bilun er þctta. A átta
staura millibilum, þar sem staur-
amir lágu flatir, vom allir þræð-
imir sívafðir með allskonar msli:
melgresi, hálmi, þara, tuskum,
netaræflum, pokatuskum, heyi,
kindagömum, fuglaræflum og ull.
Þetta var bæði kalt og seinlegt
að verka burtu, því allt var frosið
og ekki mátti skemma þræðina.
ísinn og klakann var gott að verka
af því hann sprakk, en ruslið
sprakk ekki neitt og varð að skera
og tálga það í burtu. A þessum
kafla hafói sjórinn gengið yfir
sjávarkambinn og skolað með sér
þessum óþverra, á öllum hinum
staurabilunum sem lágu við jörð,
var bara klaki, og sandur á pörtun-
um. A þessum línukafla væri
nauðsynlegt að flytja grjót að
staumnum. Það á að vísu að
leggja þama akveg, upphleyptan,
og þá væri rétt að hafa staurana í
vegkantinum, og ætti þeim þá að
vera borgió. Gæti jafhvel borgað
sig fyrir símann að taka einhvem
þátt í gerö þessa vegarspotta, ef
það gæti flýtt fyrir.
I vetur hefur oft verið hér
versta ísingaveður, samt hefir
ekki borið á ísingu á Laxárdals-
heióinni eða þar sem síminn
beygir vestur í dalinn sunnan við
Grímshúsin, eftir færsluna síðast
liðið sumar. Gefur það góðar von-
Norræna sjóeldið
hyqqst leqqja
seiðaeldið niður
„Við erum svo sem þokkalega
bjartsýnir með að rætist úr at-
vinnumálum hér í sveitinni ef
verður úr þeim áformum sem
forráðamenn Norræna sjóeldis-
ins hafa á prjónunum, það cr að
segja að koma á fullvinnslu úr
afurðum stöðvarinnar. Það
mundi veita nokkur störf í við-
bót, og starfsmannafjöldi yrði þá
líklega orðinn svipaður og var
meðan Miklilax var við lýði“,
sagði Örn Þórarinsson oddviti
Fljótahrepps í samtali við Feyki
fyrir skömmu. Norræna sjóeldið
áformar að leggja seiðaeldisstöð-
ina á Lambanesrcykjum niður
næsta vor þegar síðustu seiðin úr
stöðinni fara í matfiskeldið, og
koma þar upp í staðinn aðstöðu
til úrvinnslu, m.a. reykingar- og
pökkunaraðstöðu.
Það mun óneitanlega hafa dreg-
ið nokkuð úr trausti Fljótmanna á
rekstraraðilunum norsku í Norræna
sjóeldinu þegar það fregnaðist í
síðustu viku að stjómarformaður
stöðvarinnar hefði verið dæmdur í
héraðsrétti í Lofoten fyrir skattsvik
og svik undan virðisaukaskatti. Þá
var hann einnig dæmdur fyrir aó
hafa ekki tryggt starfsmenn og
skráð þá. Dómurinn hljóðar upp á
15 þúsund norskra króna sekt og
60 daga skilorðsbundið fangelsi.
Dómurinn er tilkominn vegna
svika fyrirtækis hans NFO-gruppen
sem lýsti sig gjaldþrota árið 1992 í
ffamhaldi af lögsögn vegna áður-
nefndra brota. Skiptastjóri þrotabús
Miklalax og Byggðastofhunar-
menn öfluðu gagna um viðskipti og
stöðu norska fyrirtækisins ffá norska
bankaeftirlitinu og þar kom ekki
annað fram en jressi aðili nyti
trausts. Síðan hefur annað komið í
ljós, samkv. frétt DV sl. mánudag.
Byggðastofnun seldi norsku að-
ilunum stöðina á 25 milljónir króna
og taldi þar að með því væri best
tryggður áframhaldandi rekstur
laxeldis við Miklavatn. Fyrsta
greiðslan, 5 milljónir króna, gjald-
fellur um næstu áramót. Jón
Magnússon hjá Byggðastofnun á
Sauðárkróki, sagði norsku aóilana
hafa sýnt verkefninu áhuga, og
kröfur Byggðastofnunar væru
tryggðar með veði í lífmassanum í
stöðinni.
Símavinnuflokkur Þórðar Sighvatssonar. Myndin tekin við vörubíl Sigga Bjöms, sem gamlir
Króksarar kannast við, rétt fyrir 1960. Frá vinstri Þórður P. Sighvats, Sigtryggur Pálsson, Eiríkur
Sigurðsson, Þorsteinn Andrésson, Sighvatur P. Sighvats á Stöðinni og Ragnar sonur hans.
ir um að hann ætli að reynast bet-
ur þama en á Kolugafjalli".
Þannig fórust Pétri Sighvats
orð. Greinilegt er að frárennslis-
mál á Sauðárkróki hafa ekki ver-
ið í jafngóðu lagi á þessum tíma
og þau em í dag, en rusl á fjömm
hefur snarminnkað á seinni ámm.
A þessum tíma, 1934, hefur lík-
lega tíðkast hugsunarhátturinn að
lengi tæki sjórinn við. Til að
mynda var öllum úrgangi ffá slát-
uihúsinu, sem þá var þar sem
bíla- og vélaverkstæðið er við
Freyjugötuna, hleypt út í Sauðána
sem þá rann þama skammt ffá, og
það má nærri geta hvort ýmislegt
smálegt hafi ekki lent út í Sauð-
ánni sem þá rann í gegnum bæ-
inn.
SKAGFIRÐINGAR - SAUÐÁRKRÓKSBÚAR
NÆRSVEITAMENN
Jólaleikur í apótekinu
Ef þú kaupir SNYRTIVÖRU, GJAFAVÖRU eóa BARNAVÖRU fyrir
kr. 2000.- eða meir, áttu kost á því að komast í vinningspottinn sem
veröur dreginn út LAUGARDAGINN 17. DESEMBER.
3 VINNINGAR ERU í BOÐI
1. VÖRUÚTTEKT FYRIR KR. 15.000.-
2. VÖRUÚTTEKT FYRIR KR. 10.000.-
3. VÖRUÚTTEKT FYRIR KR. 5.000.-
ÞÁTTTÖKUSEÐLAR í APÓTEKINU
TAKIÐ ÞÁTT í SPENNANDILEIK
Sauðárkróks Apótek
Hólavegi 16 Sírai 35336
Islensk vara
Innlend atvinna
ÍSLENSKT
JÁ TAKK