Feykir - 29.03.1995, Blaðsíða 1
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Skoðanakönnun Feykis á fylgi framboðanna í kjördæminu:
Framsókn bætir við sig 10%
Fylgishrun hjá Alþýðuflokki og Kvennalista
Framsóknarflokkurinn mundi
bæta við sig tæplega 10% fylgi
frá síðustu kosningum ef kosið
yrði til Alþingis í dag, sam-
kvæmt könnun á fylgi stjórn-
málaflokkanna sem Feykir
gekkst fyrir um síðustu helgi,
önnur framboð sem bjóða
fram nú og buðu fram síðast
tapa öll fylgi. Mest áberandi er
fyigistapið hjá Alþýðuflokki,
fylgi flokksins minnkar sam-
kvæmt könnuninni um meira
en helming frá síðustu þing-
kosningum og Kvennalistinn
fengi ekki nema rúman þriðj-
ung atkvæða frá síðustu kosn-
ingum. Þjóðvaki mælist með
9,87% fylgi í kjördæminu.
Svörun í könnuninni var
63,16% sem þykir nokkuð gotk
Samkvæmt könnuninni fengi
Framsóknarflokkurinn tvo menn
kjördæmakjöma, Sjálfstæðisflokk-
urinn einn og Alþýðubandalagið
einn. Sjálfstæðiflokkinn vantar
minnst upp á uppbótamanninn í
atkvæðamagni, hefur 33% upp í
svokallaða kjördæmatölu, Þjóð-
vaki kemur næstur með 26% og
þá Framsóknarflokkurinn með
21%.
Urtakið í könnuninni var
551, sem em um 9% af kjörskrá,
stuðst við tilviljunarúrtak sem
tekið var úr þjóðskrá og náði úr-
takið yfir Ma Noiðurlands vestra
18 ára og eldri. Haft var síma-
samband við fólk og fengust svör
frá 348 af þeim 551 sem spurðir
Skoðannakönnun Feykis
um fylgi framboöa á Noróurlandi vestra
fyrir kosningamar 8. apríl.
Þeir sem afstöðu tóku Könn. Kosn. mism. %
A Alþýðuflokkur 5,26 .. 11,60 -6,34
B Framsóknarflokkur ....41,7 ....32,30.... 9,48
D Sjálfstæðisflokkur ..26,32 ...28,10 -1,78
G Alþýðubandalagið ...14,80 ...19,20 -4,40
V Kvennalistinn 1,97 5,20 -3,23
J Þjóðvaki 9,87 9,87
Heimastjómarflokkurinn.. 1,70 -1,70
Þióðarflokkurin/ Fl. mannsins 1,50 -1,50
Frjálslyndir 0,40 -0,40
Fylgi framboða flokkað eftir svæðum
V.-Hún. A.-Hún. Skr. Skag. Sigl. %
A-listi Alþ.fl 7,89.. ....5,00 4,05... ...1,50 ..11,11
B-listi Frams .36,84... ...46,25...47,30... ..52,24.... ..15,55
D-listi Sjálfst 34,21... ..31,25...20,27.... ,. 26,86... ..20,00
G-listi Alþýðub.. .15,78... ...15,00...14,86... ....5,97... ..26,67
V-listi Kvennal.. ....2,64... 0,00 4,05.. 2.98.. ....0.00
J-listi Þjóðvaki. ....2,64... 2,50 9,47.. ... 10,45...26,97
vom. 64 neituðu að svara. Þeir
sem náðust ekki í, vom fluttir
eða fundust ekki voru 109.
Veikir eða gátu ekki svarað vom
22 og búsettir erlendis eða látnir 8.
Urtakið var kynjaskipt. Af
þeim sem ekki vildu svara vom
konur rúmlega helmingi fleiri
eða karlar eða 44 á móti 20 körl-
um. Af þeim sem svömðu vom
karlar í nokkmm meirihluta eða
191 á móti 157 konum og gæti
þetta skekkt myndina eitthvað.
Lagðar vom þrjár spumingar
fyrir svarendur um hvað þeir
myndu kjósa ef alþingis-
kosningar yrðu á morgun. Fyrst
var spurt „Ef Alþingiskosningar
væm á morgun hvaða flokk eða
lista mundir þú kjósa?“ Þeir sem
vissu ekki eða vom óvissir vom
spurðir áfram „hvort einhver
flokkur eða listi væri líklegri en
annar?“. Ef fólk var enn óvisst
var spurt „hvort líklegra væri aö
viðkomandi kysi Sjálfstæðis-
flokkinn eða aðra flokka.
Hér er ró og hér er friður....
Baldvin Kristjánsson (yngri) á Sauðárkróki á góðri stundu
í góðum félagsskap.
Aðhalds gætt í fjárhags-
áætlun Hvammstangahrepps
„Þetta er stíf aðhaldssöm fjár-
hagsáætlun og við erum að
reyna að greiða niður skuld-
irnar“, segir Guðmundur Guð-
mundsson sveitarstjóri á
Hvammstanga, um fjárhags-
áætlun hreppsins sem sam-
þykkt var í síðustu viku. A-
ætlunin gerir ráð fyrir að skatt-
tekjur hreppsins verði 77,6
milljónir á þessu ári sem er
örlítil aukning frá síðasta ári.
Aætlunin gerir ráð fyrir að til
reksturs málaflokka fari 52
milljónir og þar em skólamálin
fjárfrekust. Gert er ráð fyrir að
til þeirra fari 15,3 milljónir.
Aætlað er að til fjárfestinga fari
17,9 milljónir, þar af fari til
götu- og holræsagerðar 4,3
milljónir, og stærstur hluti þess
liðar fer í gangstéttagerð. Til
heilbrigðismála verður varið
2,3 milljónum, tæpum tveim
milljónum til félagsþjónustu og
síðan koma nokkuð margir liðir
með svipaðar upphæðir. Stefnt
er að því að halda áfram fram-
kvæmdum við nýja leikskólann
á árinu, þannig að leikskólinn
geti tekið við fleiri bömum.
Samkvæmt upplýsingum
sveitarstjórans nema langtíma-
skuldir Hvammstangahrepps
um 70 milljónum króna. Fjár-
hagsáætlunin gerir ráð fyrir 7,7
milljónum til afborgunar lána.
Vantar þar rúma milljón upp á
greiðslur til afborgana, og er
fjárhagsáætluninni lokað með 6
milljón króna lántökuheimild til
hreppsins.
—KTenfli!! hjDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 35519, bílas. 985-31419, fax 36019
Almenn verktakaþj ónusta,
Frysti- og kœliþjónusta,
Bíla- og skiparaímagn,
Véla- og verkfœraþjónusta
bílaverkstæði
sími: 95-35141
Sœmundargötu 16 Sauöárkróki íax: 36140
Bílaviðgerðir Hjólbarðaverkstœði
Réttingar Sprautun