Feykir - 29.03.1995, Side 3
13/1994 FEYKIR 3
.... 1
' -* -4
*?•
'V , 4 -v
v<.4%
Sem kunnugt er hefiir nýi vegurinn um Botnastaðabrekkuna ekki reynst vel í vetur með tilliti til
snjóalaga, og brekkan verið langsnjóþyngsti hlutinn af veginum yfir Vatnsskarðið. Myndin er tekin
neðst í Botnastaðabrekkunni nú fyrir helgina, og eins og sjá má er stálið líkt og jökull.
Skoðanakönnun Feykis:
Vantrú fólks sá stjórnmála-
mönnum kom fram í svörunum
„Það er ekki nógu góður andi
í þessu“, sagði kona í Seylu-
hreppi þegar hún varinnt
svara í könnuninni. Eldri
maður á svipuðum slóðum
sagði þetta komið út í vitleysu
með sauðfjárræktina. „Ég er
óánægð og ætla því ekki að
kjósa. Það eru allir eins sama
hvaða ríkisstjórn er“, sagði
kona í Bólstaðahlíðarhreppi.
Bóndi í Engihlíðarhreppi
sagði: „Ég hef ekki mikla trú
á þessum höfðingjum. Það
heyrist bara í þeim fyrir kosn-
ingar en svo eru þeir hljóðir
þess á milli“. Eldri maður á
Blönduósi sagði þessa kyrr-
stöðu í þjóðarbúskapnum
mjög slæma. Eldri maður á
Skagaströnd sagði sjávarút-
vegsmálin efst í sínum huga.
„Milljónamæringarnir eru að
flytja vinnsluna úr byggðar-
laginu. Hér fara peningamir í
að byggja kirkju og rífa
kirkju og byggja stjómsýslu-
hús“, sagði hann.
Greinilegt var að það sem
brennur á fólki fyrst og fremst
eru atvinnumálin og í sveitunum
hefur fólk miklar áhyggjur af
málefnum landbúnaðarins, sér-
staklega stöðu sauðfjárbænda.
Og kjósendur virðast ekki
treysta stjómmálamönnunum til
að leysa þann vanda. Greinilegt
var þó samkvæmt könnuninni
að sveitafólk virðist enn setja
traust sitt á Framsóknarflokkinn.
Næst atvinnumálunum voru
samgöngumálin áberandi, sér-
staklega hjá Siglfirðingum, og
heilbrigðis- og skólamálin komu
þar á eftir.
Launamálin báru talsvert á
góma þegar spurt var brýn mál.
Maður á Skaga sagði að menn
yrðu að brjótast út úr láglauna-
stefnunni, brjótast út úr fram-
sóknarmennskunni, eins og
hann orðaði það. Eldri kona á
Hvammstanga sagi: „Ég hef
alltaf kosið Sjálfstæðisflokkinn
en ætla ekki að gera það oftar.
Maður verður að kjósa þá sem
eitthvað gera en þeir hafa ekki
gert neitt. Við eigum að kjósa
menn en ekki málefni". Önnur
kona á Hvammstanga: „Það er
skorið of mikið niður í heil-
brigðismálunum. Það er dýrara
að hafa alla þjóðina á örorku
heldur en að reyna að byggja
þjóðina upp“. Kona á Sauðár-
króki sagði þegar hún var spurð
um brýnustu hagsmunamál
kjördæmisins: „Þeir ættu fyrst
að reyna að koma á stjórn í
landinu áður en hægt er að krefj-
ast einhvers hér heima fyrif‘.
Velheppnað kvöld
Rökkurkórsins
„Skemmtunin heppnaðist
ákaflega vel. Það voru þarna
um 200 manns og fólk virtist
skemmta sér alveg konung-
lega. Samkomugestir voru vel
með á nótunum og klöppuðu
mikið bæði fyrir söng kórsins,
gestasöngvurum og skemmti-
atriðunum. Við buðum líka
upp á kaffi og það má örugg-
lega segja að þetta hafi verið
stórveisla, dýrindis kaffihlað-
borð“, segir Ardís Björnsdóttir
formaður Rökkurkórsins um
skemmtikvöld er kórinn
gekkst fyrir í Miðgarði sl. laug-
ardagskvöld.
A söngskrá Rökkurkórsins
voru 16 lög þar á meðal eitt
ífumsumið af hirðskáldum kórs-
ins, þeim Eiríki Jónssyni, sem
samdi lagið, við texta Sigurðar
Hansen. Lagið heitir Svefnljóð.
Áður hefur kórinn flutt tvö lög
eftir þá félaga, Hildarselið og
Lækinn, og Sigurður Hansen
hefur samið texta við fleiri lög
sem kórinn hefur flutt. Voru
þeim Siguröi og Eiríki færð
blóm og lét Árdís formaður þess
getið við það tækifæri, hve mikill
styrkur það væri fyrir svona fé-
lagsskap að hafa slíka menn inn-
an sinna raða.
Gestasöngvararnir fengu
einnig rós í hnappagatið. Jóhann
Már Jóhannsson brást ekki frekar
en vanalega og samkomugestir
hrifúst ekki síður að frænku hans
sem þarna söng með honum,
Jónu Fanneyju Svavarsdóttur frá
Litladal i Svínavatnshreppi. Jóna
Fanney, sem er við söngnám á
Akureyri, réðst ekki á garðinn
þar sem hann var lægstur, söng
krefjandi lög sem hún skilaði
með ágætum.
„Ekki er vafi á að þama er
mjög efnileg söngkona á ferð-
inni. Þá sá Eiríkur Jónsson um
hagyrðingaþátt og gamanmál.
Fékk hann til liðs við sig konur
úr Rökkurkómum og sýndu þær
og sönnuðu að þær eru ekki eftir-
bátar karlanna í vísnagerðinni",
sagði Árdís. Konumar eru Þórey
Helgadóttir frá Tunguháísi, Lára
Angantýsdóttir Sauðárkróki,
Ingibjörg Jóhannesdóttir Mið-
Grund, Linda Gunnarsdóttir
Varmahlíð og Guðrún Eyhildur
Ámadóttir frá Eyhildaiholti.
Stjómandi Rökkurkórsins í
vetur eins og undanfama vetur er
Sveinn Ámason frá Víðimel og
undirleikari Thomas Higgerson.
Einsöngvarar með kómum em
Sigurlaug Helga Maronsdóttir og
Hjalti Jóhannsson. Ungir kórfé-
lagar sungu tvísöng og var það
frumraun þeirra. Hallfríður Haf-
steinsdóttir frá Vallholti og Ragnar
Magnússon á Sauðárkrók þóttu
standa sig mjög vel og fengu
dynjandi lófaldapp áheyrenda.
Að sögn Árdísar á Vatnsleysu
er mikið fram undan hjá Rökkur-
kómum. Kórinn syngur næst op-
inberlega ásamt Karlakór Ból-
staðahlíðarhrepps í Blönduós-
kirkju nk. föstudagskvöld 31.
marskl. 21,00.
íbúð til leigu!
Ný þriggja herbergja íbúð til leigu í parhúsi.
Upplýsingar í síma 35407 á kvöldin.
Kosningaskrifstofa
Þjóðvaka á Sauðárkróki
er til húsa að Aðalgötu 20 b
sími 36388.
Skrifstofan er opin virka daga
kl. 16-19 og 14-18 um helgar.
Góður hljómur — Góð gjöf
Samsung Max 345
með þriggja diska geislarspilari. Verð kr. 39-900 stgr.
Siemens hljómtækjasamstæður
verð frá kr. 29.900
Borðlampar til
fer mingagj afa
verð frá kr. 1490
hf
RAFVERKTAKAR
Sæmundargötu 1, Sauðárkróki.