Feykir - 29.03.1995, Qupperneq 4
4FEYKIR 13/1995
Helgi Jónssonar einbúi á Merkigili í Austurdal:
Allt að sex tíma gangur
eftir mat og pósti í vetur
Helgi Jónsson bóndi á Merkigili.
„Ég er búinn aó hafa það
mjög gott í vetur. Það er líka
hægt að hafa þaó gott þó mað-
ur sé einn“, segir Helgi Jóns-
son einbúi á Merkigili í Aust-
urdal, en Merkigil er vafalaust
afskekktasti bær í byggó í
Skagafirði og víðar hér um
slóðir. Ofært hefur verió ffam
í Merkigil ffá því um áramót.
Það plagar Helga þó ekki
mikió og í vetur hefur hann
gengið lausfóta tvisvar sinn-
um í viku yfir Merkigilið níu
kílómetra leið að næsta bæ
Stekkjarflötum, til að ná í póst
og vörur til daglegra þarfa
sem Matthías bóndi áStekkj-
arflötum kaupir fyrir Helga í
kaupfélaginu. Vömmar og
póstinn ber hann síóan í bak-
poka heim. Helgi segir það
ekkert erfitt að fara á milli og
túrinn taki ffá fjómm og upp í
sex tíma, effir færi.
Helgi segist ekki hafa haft
efhi á því að kaupa sér snjósleða,
en til þess að auðvelda sér göng-
una núna í vetur og einnig til
gamans hafi hann orðið sér úti
um skíði. Fengið mann sem
hann treysti fyrir sunnan til að
kaupa íyrir sig skíðabúnað. „Nei
það heiúr nú ekki reynt á að fara
á skíðunum yfir gilið ennþá. Eg
er ekki búinn að ná nógu góðum
tökum á skíðaiðkuninni ennþá til
að fara á þeim á milli“, segir
Helgi, og um tíðarfarið í vetur
segir hann:
,Já það kom ansi slæmt hret
þama um miðjan janúar og síðan
hefur tíðarfarið verið fremur
leiðinlegt. Annars hafa óveður
engin áhrif á mig þannig lagað
og ég sef alveg eins og steinn
þótt óveður geysi. En það varó
strax þungfært héma á tveggja
drifa vél þannig að ég færði
hrossin heim á tún og hef gefið
þeim síðan“.
En hvemig lítur Merkigilið út
núna, getur ekki verið slæmt að
fara yfir það að vetrinum?
,J>að er búið að vera gott að
fara yfir það í vetur, það er íyrst
núna sem að það getur farið að
versna. Það er oft verra þegar er
komið að fram á og fer að renna
úr sköflum af sólbráð og mynd-
ast svell og hálka í því. Annars
safnast yfirleitt ekki mikill snjór í
gilið, og þannig er það núna. Það
skefúr beint niður gilið í austan-
áttum eins og hefúr verið mikið í
vetur. En núna þessa dagana er
alveg dásamlegt útmánaðarveuir
sem ég kalla, glaðasólskin og
blíða á hverjum degi“.
Leiðist pólitíkin
Helgi hefur kú til heimilis og
vetmng einnig að auki. Kýrin er
að vísu orðin geld núna en ber í
vor. Hann segir að mjólkurleysið
skipti ekki svo miklu máli. Helgi
er með 140 fjár og sauðburður-
inn byrjar um miðjan maí. Hann
stílar á að geta látið bera sem
mest úti, hvort sem það stenst í
ár.
,J>að getur vel verið að verði
mokað hingað fram eftir til mín
þegar verður farið að kjósa. Jú jú
mitt atkvæði getur ráðið úrslitum
ef það lendir á réttum stað“, segir
Helgi sem annars er ekkert sér-
staklega hrifinn af stjómmála-
mönnunum, þó hann hafi verið
að fylgjast svolítið með þeim í
sjónvarpinu undanfarið.
„Mér leiðist frekar pólitíkin,
sýnist stjómmálamennimir frek-
ar máttlausir. Það virðist vera
ósköp lítið sem þeir gera gert. Eg
reyni að kíkja á þaó sem þeir
hafa gert en læt hitt alveg lönd
og leið. Það vantar svo sem ekki
að þeir svara alveg fúllum hálsi
þótt lýgin sé rekin ofan í þá
suma“, segir Helgi Jónsson á
Merkigili.
„Þeir vara sig ekki
á okkur Erlendi"
Þeir hafa víst verið ólatir að
mæta á kosningaskrifstofuna
hjá Alþýðuflokknum undan-
farið, gömlu kratarnir á
Króknum. Þeir Hansenbræð-
ur Erlendur og Jóhannes
ásamt Guðbrandi Frímanns-
syni, hafa verið þarna fasta-
gestir og ávallt verið tilbúnir
að hella upp á könnuna og
gera þessa nauðsynlegu hluti
sem ekki mega bregðast á
góðri kosningaskrifstofu. Þá
hefúr Birgir Dýrfjörð komið á
Krókinn í nokkra daga und-
anfarið til að stappa stálið í fé-
laga sína í baráttunni.
Það var létt andrúmsloft hjá
krötunum þegar blaðamaður
Feykis leit þar við á dögunum
og rifjaðaðar voru upp sögur frá
því á árum áður, þegar þeir
Birgir Dýrfjörð og Erlendur
Hansen vom upp á sitt besta í
pólitíkinni.
Sagan segir að þá hafi bæjar-
fulltrúar á Króknum lagt nótt
við dag að koma saman fjár-
hagsáætlun íyrir bæinn, og sum-
ir þeirra unnið svo kappsam-
lega, að pólitíkin hafi verið tekin
Gamla kratagengið á kosningaskrifstofu Alþýðuflokksins: Guðbrandur Frímannsson,
Birgir Dýrfjörð, Erlendur Hansen og Jóhannes Hansen.
xG er tákn um bættan
hag heimilanna!
Kosningaskrifstofa G-listans
Villa nova er opin kl. 13-22 alla
daga, sími 36366, fax 35590.
Opið hús laugardagskvöld. Sigurður Rúnar Jónsson
(Diddi fiðla) og fleiri halda uppi fjöri.
Allt stuðningsfólk velkomið!
Að krossa við G er góður kostur fyrir þig!
fram yfir vinnuna á þeim tíma
sem áætlunargerðin stóð yfir.
Menn vom ekki sammála um
áherslur í bæjarmálum og fund-
imir drógust á langinn. Það var
karpað nótt eftir nótt. Fram-
sóknarmenn með þá Guðjón og
Stebba Díllu í broddi fylkingar
vildu leggja aðaláherslu á íþrótta-
málin, uppbyggingu sundlaug-
arinnar og íþróttavallarins. Aðr-
ir, þar á meóal kratamir, óttuð-
ust að þar yrði að fara varlega
svo að ekki bitnaði á atvinnu-
málunum. Fundurinn þar sem
fjáihagsáætlun var barin saman
stóð fram á morgun þrátt fyrir
ítrekaðar málamiðlanir Marteins
Friðrikssonar, eins þriggja
fulltrúa framsóknar. Klukkan
fimm um nóttina fór Hulda
Sigurbjömsdóttir heim til að ná í
kaffi handa mannskapnum, en
klukkan var orðin átta um
morguninn þegar loksins var
búið að berja fjárhagsáætlunina
saman. Meðan þessi bamingur
og næturfundir stóðu yfir, þar
sem þreytan virtist síst hrjá þá
Birgi og Erlend, mun Birgi Dýr-
fjörð hafa ratast þessi gullvæga
setning af munni: „Þeir vara sig
ekki á okkur Erlendi. Við hugs-
um á nóttinni en sofum á dag-
inn“.
Þessi orð Birgis gefa tilefni
til að ætla að aðrir í bæjarstjóm-
inni hafi gerst ansi ffamlágir er
leið á nóttina og með þessum
klækibrögðum hafi gömlu krat-
amir á Króknum komið sínum
málum fram.