Feykir - 29.03.1995, Side 7
12/1995 FEYKIR7
Hver er
maðurinn?
Engar upplýsingar hafa
fengist vegna þeirra mynda er
seinast birtust, en tvær myndir
koma að þessu sinni og biðjum
við glöggskyggna lesendur að
koma upplýsingum til Héraðs-
skjalasafnsins á Sauðárkróki,
sími 95-36640.
ÓkBYpssmáar
Til sölu!
Til sölu Mitsubishi L 300 árgerð
1990, ekinn um 100 þús. km.
Upplýsingar í síma 35291
(Sigrún og Viðar).
Til sölu tvíbreitt hjónarúm með
áföstum náttborðum, selst ódýrt.
Einnig til sölu hnakkur, vel með
farinn. Upplýsingar í síma 35671
eftir kl. 7 síðdegis.
Til sölu Nissan Pulsar árgerð
'89, hvítur að lit, fjögurra dyra.
Upplýsingar í síma 36265.
Óska eftir að kaupa vel með
farinn, tvíbreiðan svefnsófa eða
rúm. Upplýsingar í síma 36473
eftirkl. 17.
Tapað - fundið!
Tapaði armbandsúri mínu á
árshátíð KS í Miðgarði. Úrið er
frekar stórt, brúnt í grunni með
brúnni 61. Finnandi hafi samband.
Fundarlaun. María sími 36788.
Mynd nr. 48.
Tilkynning til bænda!
Meðal sumra bænda virðist gæta misskilnings um
að svefnlyf séu ekki notuð við eyðingu á svokölluðum
vargfugli, vegna þess að heilbrigðisfulltrúi sé á móti
notkun þess. Skoðun heilbrigðisfulltrúa skiptir engu
máli um notkun svefnlyfja í þessum tilgangi, þar sem
notkun þeirra er bönnuó í villidýralögunum sem sett
voru í fyrra. Umhverfisráðherra einn getur veitt
undanþágu frá þessu banni. Undirritaður vill ítreka þá
skoðun sína að mikilvægt sé að ganga vel frá úrgangi
svo ekki sé verið að fóðra fugl sem fjölgi þá og verði
til vandræða.
Sigurjón Þórðarson heilbrigðsfulltrúi.
Lögfræðiþjónusta!
Hef opnað útibú frá lögmannsstofu minni,
Lögveri hf, að Suðurgötu 3 á Sauóárkróki
(Framsóknarhúsinu).
Tek að mér almenn lögfræðistörf fyrir fyrirtæki,
svo sem innheimtur, samningagerð, stofnun
fyrirtækja og ráðgjöf.
Einnig fyrir einstaklinga s.s. uppgjör slysabóta,
skipti dánarbúa, skilnaóarmál, geró kaupmála o.fl.
Fastir viótalstímar á Sauóárkróki 2. og 4. mánudag
og þriójudag hvers mánaðar og oftar eftir nánara
samkomulagi.
Símar: 95-36757, 91-623757 og myndsími
91-15466.
Jón Sigfús Sigurjónsson héraðsdómslögmaður.
Kosningaskrifetofa Framsóknar-
flokksins áSauðárkróki
er opin alla daga frá kl. 13 - 23
Alltaf heitt á könnunni.AIlir velkomnir.
Kosningasími 36335 fax 35374
X-B Fólk í fyrirrúmi
Við óskum kjósendum
á Norðurlandi vestra
til hamingju með framboð
Jóns F. Hjartarsonar
skólameistara.
Alþýðuflokkurinn
Besta þingmannsefnið.
„Þó ég sé ekki og hafi aldrei verið krati, þá ætla ég samt að kjósa Jón
skólameistara í kosningunum. Hann hefur unnið hreint afrek í skóla-
málum okkar Norðlendinga. Hann er langsamlega besta þingmanns-
sefnið í þessum kosningum, það er engin spurning“.
Ummæli 46 ára Sauðkrækings um Jón F. Hjartarson.
Allt það besta
,Jón meistari kenndi mér allt það besta, sem ég kann, og því ætla ég
að kjósa karlinn núna.“
Ummæli 22 ára Sauðkrækings um Jón F. Hjartarson.