Feykir - 14.06.1995, Blaðsíða 1
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Bæjarfulltrúar framsóknar:
Vilja viðræður um
sölu á Rafveitu
- Til að grynnka á skuldum bæjarins
i,
Hitabylgjan sem gengið hefur yfir norðanvert landið síðustu vikuna hefur valdið vatnavöxtum
víða, enda mikið magn af snjó bráðnað á skömmum tíma. Þessa mynd tók Sigurður Kr. Jónsson
í Vatnsdal sl. sunnudag og var dalurinn þá eins og stórfljót á að líta. Tjón hefur lítíð orðið á Norð-
vesturlandi vegna vatnavaxta, en þó er talið að einhverjar skemmdir hafi orðið á túnum í
Fljótum. Þá braut Skeiðsá sér leið út úr áveituskurðinum í Skeiðsfossvirkjun. í gær var reynt
með aðstoð stórvirkra vinnuvéla að koma skikk á farvegi Fljótaár og Skeiðsár í Austur-Fyótum.
Aðeins vikuhlé í Loðskinni
Talsverðar umræður urðu á
fundi bæjarstjórnar Sauðár-
króks í gær um tillögu fram-
sóknarmannanna í bæjar-
stjórn, Stefáns Loga Haraids-
son og Bjarnar R. Brynjólfs-
sonar, þess efnis að bæjar-
stjórn óski eftir viðræðum við
forráðamenn Rafmagnsveitna
ríkisins um sölu á Rafveitu
Sauðárkróks til Rariks. Flutn-
ingsmenn tillögunnar segja að
þarna sé um að ræða helsta
möguleikann til að grynnka á
skuldum bæjarsjóðs Sauðár-
króks. Bæjarstjórn samþykkti
á fúndinum í gær að vísa mál-
inu til veitustjórnar til skoðun-
ar.
Stefán Logi Haraldsson efsti
maður b-listans segir nauðsyn-
legt að leita leiða til að minnka
skuldir bæjarins þannig að fram-
kvæmdagetan verði einhver.
„Nú er svo komið að tekjur bæj-
arins fara aó langmestu leyti í
rekstur málaflokka og í greiðslu
afborgana og vaxta af lánum. Ef
bærinn ætlar aó framkvæma eitt-
hvað verður að taka þá peninga
að láni, og menn náttúrlega
hljóta að sjá að slíkt gengur ekki
til lengdar. Við höfum um það
að velja að leita lausna strax eða
sitja með hendur í skauti og láta
þetta damla svona áfram. Við
framsóknarmenn viljum bregð-
ast við vandanum og trúum ekki
öðru en meirihlutinn vilji alla-
vegana skoða þessi mál“.
Stefán segist ekki óttast það
að ef til viðræðna komi muni
Rarik vilja kaupa hitaveituna
með. „Hitaveitan og rafveitan
eru ólíkir hlutir og það kemur
aldrei til greina að selja hitaveit-
una, þar fáum við hreinar tekjur
af hverjum seldum líter. Varð-
andi rafveituna hinsvegar erum
við eins og venjulegur verslunar-
eigandi, seljum raforkuna í smá-
sölu. Og það er ekki einu sinni
svo að við eigum Gönguskarðs-
árvirkjun eins og margir virðast
halda. Það hefur verið haldið
uppi hræðsluáróðri í þessu máli
þegar það hefur borið á góma“,
segir Stefán Logi.
Steinunn Hjartardóttir, sem
eftir fundinn í gær tók við emb-
ætti forseta bæjarstjórnar af
Jónasi Snæbjömssyni, segir að
afstaða meirihluta bæjarstjómar
muni væntanlega ráðast af því
hvað kemur út úr athugun á hag-
kvæmni sölu rafveitunnar. Þegar
það liggi fyrir hverjar beinar og
óbeinar tekjur bærinn hafi af
Rafveitu Sauðárkróks.
„Það er óvenjumikil keyrsla á
verksmiðjunni núna í sumar og
líklega lokum við ekki nema í
viku. Það bjargaði okkur alveg
að leyfi skyldi fást á innflutning
á gærum, annars værum við
búnir að vera hráefnislausir í
tvo mánuði“, segir Birgir
Bjarnason framkvæmdastjóri
sútunarverksmiðjunnar Loð-
skinns. Það stefnir í að á þessu
ári verði unnin 80 þúsund
skinn úr innfluttum gærum og
110 þúsund afinnanlands-
markaðnum. Svipaður fjöldi
sumarafleysingarfólks starfar
nú í Loðskinni og undanfarin
sumur.
Vinnsla á innfluttum gæmm,
sem allar eru ástralskar, hefur
komið vel út og markaðurinn hef-
ur tekió óuúlega fljótt við þessari
nýju framleiðslu, að sögn Birgis í
Loöskinni. Hráefnisskortur háir
því ekki starfsemi fyrirtækisins.
„Það var alltaf ætlunin hjá
okkur aó þróa vinnslu á þessum
áströlsku gæmm. Hugmyndin var
að súta 5-15 þúsund gærur á ári úl
að byrja með. Síðan gerðist þetta
á innanlandsmarkaðnum síðasta
haust og þess vegna neyddumst
við úl aó demba okkur út í þessa
vinnslu og nú er svo komið að
innflutta hráefnið er að verða um
helmingur af hráefninu hjá okk-
ur“, segir Birgir, en áströlsku gær-
umar em heldur stærri en þær ís-
lensku, og verð á þeim er lægra,
þannig að þær skila ekki minni
framlegð en innlenda hráefnið,
svo fremi sem markaður sé fyrir
framleiðsluna.
„Okkur hefur gengið ágæúega
að selja skinnin úr þessu hráefni.
Vió vissum aö tækniþekkingin
væri fyrir hendi hjá okkur, og það
hefur gengið furðanlega vel að
uppfylla óskir markaðarins,
þannig að þetta lítur bara vel út.
Skinnin seljast nokkuö jafnt og
þétt“.
Til stóð aö halda aðalfund
Loðskinns í gær, en honum hefur
verið frestað um mánuð. Að sögn
framkvæmdastjórans em margar
ástæður fyrir frestun fundarins.
Blöndudalur:
Tún mikið kalin á
nokkrum bæjum
Tún eru illa kalin á nokkrum
bæjum í Blöndudal í Austur-
Húnavatnssýslu. Sérstaklega
er ástandið slæmt á bænum
Brandsstöðum, en þar er talið
að ríflega helmingur túnanna
sé ónýtur vegna kals. Þá eru
tún einnig mikið kalin á tveim
bæjum í nágrenni Brands-
staða, Höllustöðum og Aust-
urhlíð.
Jón Sigurðsson ráðunautur
hjá Búnaðarsambandi A.-Hún.
sagði að kalið væri aöallega á
smábelti í dalnum. Ástand tún-
anna væri skelfilegt á Brands-
stöðum og hann vissi ekki
hvemig unga fólkið sem hyggst
hefja búskap á jörðinni nú í vor,
brygðist við þessum vanda. Jón
sagði að menn hefðu einnig
áhyggjur af ástandi túna úti á
Skaganum, en þar væri allt seint
á ferðinni og því ekki íyrirséð
hvemig ástandið væri. Að öðm
leyti virðist sem Norðvesturland
hafi sloppið nokkuð við kal á
þessu langa vori.
—KXengil! —
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, bílas. 853 1419, fax 453 6019
Almenn verktakaþjónusta,
Frysti- og kœliþjónusta,
Bíla- og skiparafmagn,
Véla- og verkfœraþjónusta
bílaverkstæði
Sími 453 5141
Sœmundargötu 16 Sauöárkróki íax: 453 6140
Bílaviðgerðir Hjólbarðaverkstœði
Réttingar Sprautun