Feykir - 14.06.1995, Blaðsíða 6
6FEYKIR 23/1995
41. Eftir þetta kváðu við lúðrar um allan herinn
og bjuggust menn til, hver eftir sínuni efnum.
Þennan bardaga átti Haraldur konungur mestan. Þá
var með honum Rögnvaldur af Mæri og margir aðrir
stórir höfóingjar og þeir bersekir er úlfhéónar voru
kallaðir. Þeir höfðu vargstakka fyrir brynjur og
vörðu framstafn á konungsskipinu en konungur
sjálfur varði lyftinguna með hinni mestu prýði og
karlmennsku. Mátti þar sjá mörg högg bæði smá og
stór.
42. Nú gerðust brátt mörg tíðindi og stór á
skammri stundu í höggum og spjótalögum með
grimmdlegri grjótflaug. Skjótt varð mikið mannfall
af hvorumtveggjum. Ingimundur fylgdi vel Haraldi
43. Rögnvaldur sendi vestur Hallað son sinn og
gat hann eigi haldið ríkinu fyrir víkingum. Þá sendi
hann Torf-Einar son sinn og lést vænta að hann
mundi halda ríkinu. Hann var jarl fyrstur í
Orkneyjum og af honum eru komnir allir
Orkneyjarjarlar sem segir í ævi þeirra.
Haraldur konungur gaf mörgum stór lén fyrir sína
fylgd og virti mikils menn sem með honum höfðu
verið. Hina sem honum höfðu mótsnúnir verið rak
hann úr landi, meiddi eða drap.
44. Síðan mælti konungur til Ingimundar: „Mikla
^&<zt*HC (Ióha&oh-
*7exté: “PónA. s4<x**tu*ict&á,
konungi og aflaði sér góðs orðs. Fundinum lauk svo
sem mörgum er kunnigt og fullfrægt er orðið að
Haraldur konungur fékk ágætan sigur og varð síðan
ein völdugur yfir öllum Noregi. Hann launaði
höfðingjum öllum þeim er honum fylgdu og svo
herjum öðrum með hinni mestu stórmennsku.
Rögnvaldi gaf hann jarldóm og mælti: ,T>ú hefur
sýnt mikinn manndóm í fýlgd þinni við mig. Þú hefir
og látið son þinn fyrir mínar sakir og má hann eigi
aftur gjalda. Eg vil launa þér sæmdum, fyrst því aó
verða jarl og þar með eyjar þær er liggja fyrir vestan
haf er Orkneyjar heita. Þær skaltu fá í sonarbætur.
Margan annan sóma skaltu þiggja af mérí‘. Það efndi
konungur.
frama. Skal eg ávallt þinn vin vera en hluskipti þitt
skulu vera þrjár skipshafnir. Þar með skaltu hafa
herbúnað allan þeirra víkinga er þú barðist við og til
marks að þú hefir verið í Hafursfirði skaltu eignast að
gjöf hlut þann er átt hefur Asbjöm kjötvi sem hann
hafði mesta mætur á.“
Ingimundur þakkar konungi góðar gjafir og góð
orð og skildust með því. Konungur sagóist og
minnugur vera skyldi Sæmundar fyrir sínar tiltekjur
og drottinssvik við sig
Úrslitin eftir bókinni í 4. deildinni
Siglfírðingar héldu áfram sig-
urgöngu sinni í 4. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu um helg-
ina og þau lið sem koma líklcga
til með að veita KS hvað harð-
asta keppni í sumar, Tindastóll
og Magni, unnu einnig Iciki
sína. KS vann Hvöt 5:0 á Siglu-
fírði, Magni Þrym 4:1 á Sauð-
árkróki og Tindastóll vann
Neista 3:0 á Hofsósi.
Hávaöarok var á Siglufirði
þegar Hvatarmenn komu í heim-
sókn á föstudagskvöldið og að-
stæður til að leika knattspyrnu
hreint ekki góðar. Leikiö var á
gamla malarvellinum við Tún-
götu sem eins og búast má við er
eins og malbik eftir þurrkana
undanfarið. KS-ingar léku móti
vindinum í fyrri hálfleiknum og
þrátt fyrir það tókst þeim að skora
tvívegis, voru Steingrímur Örn
Eiðsson og Ragnar Hauksson þar
aó verki. I seinni hálfleiknum var
síðan nánast eitt lió á vellinum og
þcir Steingrímur Öm og Ragnar
voru áfram á skotskónum auk
þess sem MarkDuffield þjálfari
skoraði eitt mark. Lokatölur 5:0.
Þrymarar vörðust vel framan
af leik gegn Magna. Staðan var
0:0 í leikhléi, en gestimir komust
á bragöiö í seinni hálfleiknum og
skomðu þá fjómm sinnum, þar af
úr tveimur vítaspymum sem þeir
fengu dæmdar. Stefán Gunnars-
son skoraði tvívegis og þeir
Ingólfur Ásgeirsson og Bjami Ás-
kelsson sitthvort markið. Sigurjón
Þóróarson gerói mark Þryms.
Tindastólsmenn gerðu góða
ferö á Hofsós og vom mun betri
aðilinn í fyrri hálfleik. Þá skorðu
Tindastólsmenn þrjú mörk á
fimmtán mínútna kafla og gerðu
út um leikinn. Ingi Þór Rúnarsson
skoraði fysta markið og síðan
bætti Björn Sigtryggsson við
tveimur mörkum. Neistamenn
vom síðan betri aðilinn í seinni
hálfleik, en tókst ekki að skora
þrátt fyrir nokkur upplögð mark-
tækifæri. Því var um öruggan
Tindastólssigur að ræða, 3:0.
KS er nú efst í riðlinum, meó
fullt hús stiga, 9 stig og markatöl-
una 16:1. Tindastóll og Magni
koma næstir með sex stig. Næstu
leikir em annað kvöld, fimmtu-
dagskvöld. Þá leika á Grenivík
Magni og KS, Hvöt og Neisti á
Blönduósi og SM og Þrymur á
Melum í Hörgárdal.
□
Siglufjörður:
Ómar tekur að sér
flutnings sorps
Bæjarráð Siglufjarðar sam-
þykkti fyrir skömmu að ganga
til samninga við Ómar Kjart-
ansson á Sauðárkróki um að
hann taki að sér flutning sorps
frá Siglufirði frá og með miðju
næsta ári. Ákvörðun um að
fara þessa leið við sorpeyðingu
á Siglufírði er tekin í kjölfar
úttektar sem Gunnar Björn
Björgvinsson garðyrkjumaður
bæjarins vann í vetur, þar sem
hann kannaði ýmsa möguleika
til eyðingar sorps.
Meöal þeirra leiða sem skoö-
aðar vom, var urðun við Siglu-
fjörð, eyóing í Sorpu hf og upp-
setning nýs fullkomins
brennslofrís í bænum. Þetta kem-
ur fram í Hellunni, bæjarblaði
Siglfiröinga.
Menn á vegum Siglufjarðar-
bæjar munu sjá um að safna
saman sorpi og koma því til
brottfiutnings í pressubíl á veg-
um Ómars. Jafnframt verður
komið upp sorpgámum og er
reiknað með að fyrirtæki í bæn-
um nýti sér þessa þjónustu. Þar
með mun allri sorpbrennslu í
firðinum verða hætt og sú mikla
lyktar- og sjónmengun sem
henni fylgir, heyrir nú brátt sög-
unni til.
Ómar Kjartansson mun aka
sorpinu frá Siglufirði til urðunar í
sorpurðunarsvæóið í landi
Skarðs í Skarðshreppi. Ómar
hefur um nokkurt skeið fiutt sorp
úr öllum hreppum sýslunnar til
urðunar í Skarðslandi.
Samkeppni um tóbaksvarnir:
Nemendur af Norðvest-
urlandi verðlaunaðir
I>rír nemendur af Norðvestur-
landi voru dregnir út til verð-
launa í samkeppni sem
Krabbameinsfélag Islands og
Tóbaksvarnarnefríd efndu til
meðal reyklausra bekkja og
nemenda grunnskóla í vetur.
Að þessu sinni voru reyklausu
bekkirnir flestir í Reykjavík,
62 að tölu, 43 á Norðaustur-
landi, 37 á Reykjanesi, 35 á
Austurlandi, 21 á Vesturlandi,
19 á Vestfjörðum, 17 á Suður-
landi og 13 á Norðvesturlandi.
Allir þessir bekkir fengu við-
urkenningarskjal frá Krabba-
meinsfélaginu og Tóbaksvamar-
nefnd. Heitið var verðlaunum
fyrir nokkra 8. og 9. bekki.
Dregið var um verðlaunin og
þau send skólanum sem í hlut
áttu. Fimm 8. bekkir fengu
áletraóa háskólaboli á alla í
bekknum og sex 9. bekkir hlutu í
verölaun Söguatlas fyrir hvem
nemenda.
Jafnframt var dregið um
verðlaun til tuttugu einstaklinga í
9. bekk og fjörutíu í 10. bekk
sem höfðu lýst yfir því að þeir
neyttu ekki tóbaks. Ekki var skil-
yrði að bekkur þeirra hefði
reynst reyklaus. Verðlaunin vom
úttekt fyrir 25 þúsund í verslun-
inni Utilíf, skíðanámskeið í Kerl-
ingafjöllum, vasareiknir (Casio
fx-9700 GE) bækuman íslenska
alfræðiorðabókin, Islensk orða-
bók, Lífsmyndir skálds og Is-
lensk kvæði, og áltetraðir há-
skólabolir.
Þrír 10. bekkingar af Norð-
vesturlandi fengu verðlaun. Teit-
ur Þorbjörnsson Laugabakka-
skóla fékk vasareikninn, Gunnar
Guðmundsson Höfðaskóla fékk
íslenska orðabók og María
Hjaltadóttir Gagnfræðaskóla
Sauðárkróks fékk áletraðan há-
skólabol.
Islandsmótiö 4. deild
Blönduósvöllur
fimmtudaginn 15. júní kl. 20,00.
Hvöt - Neisti
Komiö og sjáið skemmtilegan leik.
Allir á völlinn.