Feykir - 14.06.1995, Page 7
23/1995 FEYKIR7
Hver er
maðurinn?
Upplýsingar bárust um mynd
nr. 60. Hún er sögö vera af Al-
dísi Agústu Söeby á Siglufirði.
Bestu þakkir fyrir vitnsekjuna.
Myndimar að þessu sinni em
allar nema nr. 64 teknar af Jóni
J. Dalmann ljósmyndara á Akur-
eyri. Vinsamlegast látið vita á
Héraósskjalasafnið á Sauðár-
króki, ef þið þekkið einhvem á
þessum myndum. Sími 453 6640.
Stóðhestur!
Getum tekió nokkrar
hryssur undir Geisla
1403 sem veróur í
hólfi á Hvíteyrum í
vor. Upplýsingar í
síma 453 8048.
Þegar mannskap vantaði á togarann:
Ókeypissmáar
Til sölu!
Til sölu MF 3070 árg. 1987 4x4
turbo og skriðgír ásamt snjó-
blásara, MF 50 D árg. '84 4x4,
opnanleg framskófla og skot-
bóma, Deutz Fahr GP-230 rúllu-
vél árg. '91, Kvemeland 7512
pökkunarvél og einnig mjög
góður sturtuvagn. Upplýsingar í
síma 451 2673 eftir kl. 20
(símsvari).
Til sölu 2 stk. notuð 26" fjalla-
reiðhjól. Vel með farin og í góðu
lagi. Hentar 11 ára og eldri. Verð
8000 kr. stk. Upplýsingar í síma
453 5071.
Til sölu Silver cross bamavagn.
Upplýsingar í síma 453 6673.
Til sölu Evinrude utanborðs-
mótor 4 ha. Upplýsingar gefur
Jakop í síma 4512347.
Til sölu Toyota Landcmser
disel árg. '85, stuttur, 32" dekk.
Upplýsingar í síma 451 2673
eftir kl. 20 (símsvari).
Hlutir óskast!
Oska eftir að kaupa kenuuvagn.
Upplýsingar í síma 453 6273 eftir
kl. 14,00.
Notaður og vel með farinn brúðu-
vagn óskast. Hringið í síma 453
6734.
Ljósmyndasýning!
Sigríður Soffía ljósamyndari
opnar sýningu sína á Polaroid
Transfer ljósmyndum í Karamik
Galleríinu Lundi Varmahlíð
sunnudaginn 18. júní kl. 17,00.
Opið alla daga frá kl. 9-18.
Sýningin stendur til 16. júlí.
Bændur
Skorin bíldekk,
hentug í mottur undir
hross, fást hjá
Verslun Haraldar
Aöalgötu 22
Sauðárkróki
sími 35124.
Komu fimm af Hrauninu
Einn fyrsti togarinn sem Sigl-
firðingar eignuðust var Hafliði.
I minningu margra var engin
sérstök reisn yfir útgerð þessa
skips, altént ekki síðustu árin,
enda gekk ákaflega erfiðlega
að manna „dallinn“. I>au voru
ekki eftirsótt plássin á Hafliða.
En allt á sér skýringar og Gunn-
ar Trausti skrifar skemmilega
grein í nýútkomið sjómanna-
blað Hellunar á Siglufirði.
Greinin fer hér á eftir.
Á atvinnuleysisámnum milli
1960 og ‘70 leituðu margir Sigl-
firðingar til Svíþjóðar í atvinnu-
leit. Það ásamt því að veruleg
kjararýmun hafði oróið hjá tog-
arasjómönnum varð til þess að
mikið mannahallæri varð á tog-
umnum og var víða leitað eftir
mannskap. Gripið var eitt sinn til
þess ráðs aö ráða á einu bretti
fimm menn á Hafliða, sem allir
voru nýsloppnir út af Litla-
Hrauni eftir að hafa greitt sína
skuld við samfélagið.
Þetta vom þeir Valli í Bíó,
Glæpaskalli, Diddi Slowly, Elli
flugmaður og Jói V.
Á Siglufirði bjuggu þá um
2300 manns og þótti mörgum
þetta slæm sending fyrir ekki
stærra bæjarfélag. Bæjarbúar
höfðu þó lítið sem ekkert af þess-
um mönnum að segja, nema
þegar Hafiiði var í landi og þá
gat líka orðið býsna heitt í kolun-
um.
Valli í Bíó, Valli Bíó, stund-
um einnig kallaður Bíóstjórinn,
var sjálfskipaður foringi þessara
manna og stjómaði þeim með
harðri hendi.
Ég man eftir því að eitt sinn
höfðu einhverjir skipverjar
stungið af úr bænum í inniver-
unni og skipið var bundið við
bryggja vegna þess í nokkra
daga.
Samningafundurinn
Bæjarútgerðin reyndi að
semja við þá sem eftir voru um
að fara út færri en löglegt var,
meó loforðum um bónus. En allt
kom fyrir ekki. Svo kom að því
að Valla leiddist þófió og hafði
samband við Kjartan Friðbjam-
arson framkvæmdastjóra útgerð-
arinnar og vildi semja. Samn-
ingafund skyldi halda á Isbam-
um, sem þá var í eigu Huldu
Steinsdóttur og var til húsa þar
sem nú er Verslunarfélagið Ás-
geir.
Kjartan þorði ekki að mæta
einn til samninga við menn eins
og Valla, og hafði með sér líf-
verði, þá Hjört Ármannsson og
Bjama Sigurðsson í Visnesi, lög-
regluþjóna hér í bæ.
Samningaborðið var innsti
básinn á Isbamum og sáu þeir
Valli og annar skipverji öóru
megin við borðið en Kjartan og
Hjörtur hinum megin. Bjarni
stóð vörð við vegginn og brosti
að tilstandinu eins og hans var
von og vísa.
Það var til marks um þau völd
sem Valli hafði í þessum samn-
ingaviðræðum, auk þess aó hafa
ráðið þessum óvenjulega íúndar-
stað, að á borðinu stóóu ákavítis-
flöskur ásamt blandi.
Valli var ekki lengi að semja.
Hann fullvissaöi Kjartan og líf-
vöróinn um að eftir 24 tíma færi
Hafliði úr höíh og um borð yrðu
25 kallar í stað 28, og bónusinn
yrði 2000 kall aukalega per
mann fyrir túrinn. Þegar samn-
ingamir vom í höfn greip Bíó-
stjórinn í bartana á Hirti og sneri
upp á og sagðist hafa miklu fal-
legri barta en hann. Samkundan
stirnaði upp, en Hjörtur bað
hann, sallarólegur, að koma bara
köllunum um borð!
Þessi uppákoma minnti mann
á kvikmynd frá Villta vestrinu:
Þegar allt er komið í uppnám og
maðurinn með stjömuna þarf á
öllu sínu að halda til að ekki
sjóói upp úr.
—*---------------——-------------
Askrifendur Feykis!
Þeir sem enn hafa ekki greitt heimsenda
gíróseóla fyrir áskriftargjöldum eru vinsamlega
beónir aö gera þaö hió allra fyrsta.
Dagskrá 17. júní
á Sauöárkróki
Kl. 08. Fánar degnir aö húni.
10.00. Hópreið hestamanna um bæinn,
hestamenn teyma undir börnum við íþrótta-
völlinn.
11.00. Hátíðamessa í Sauðárkrókskirkju.
13-30. Skrúðganga. Gengið verður frá
Hlíðarkaupi niður hjá dælustöð í Túna-
hverfi að Sjúkrahúsi, síðan Víðigrund,
Öldustíg, Hólveg, Skagfirðingabraut að
íþróttavelli.
14.00. Hátíðadagskrá á íþróttavelli.
Fánahylling, helgistund séra Hjálmars
Jónssonar, ávarp fjallkonu flutt af Ragnheiði
Matthíasdóttur, Helga Sigurbjörnsdóttir
formaður Kvenfélags Sauðárkróks flytur
hátíðaræðuna, og að lokum er skemmti-
dagskrá.
Skátatívolí að lokinni hátíðadagskrá.
Hljómsveitin Herramenn leika nokkur lög.
14.00. Opnuð sýningin Leiðin til lýðveldis
í Safnahúsinu.
15.30. Dagskrá Leikfélags Sauðárkróks í
Bifröst.
20-22. Útidansleikur við Faxatorg ef
veður leyfir. Hljómsveitin Herramenn.
Undirbúningsnefndin.