Feykir - 14.06.1995, Qupperneq 8
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
14. júní 1995, 23. tölublað 15. árgangur.
Auglýsing í Feyki fer víða!
6ENGÍS
Það komast allir í Gengið
unglingaklúbb Landsbankans
1 Sláðu til og komdu í Gengið
I Pottþéttur klúbbur!
áW Landsbanki
Sími 453 5353MA“alandsmanna
Óvenjulegt
hreiðurstæði
Þegar Tryggvi Þorbergsson verkamaður á
Sauðárkróki fór að huga að gömlum bíl heima
hjá sér á Víðiginndinni fyrir skemmstu, gerðist
svolítið undarlegt. Tryggvi aetlaði að fara að
vinna að lagfæringum á bílnum, og er hann
hafði fjarlægt aðra
hlífina af fram-
Ijósinu og luktina
kom svolítið í ljós.
Skógarþröstur
hafði útbúið sér
þarna hreiður,
þannig að sýnt var
að Tryggvi yrði
að ffesta eitthvað
ffamkvæmdum.
Þrösturinn hreyfði sig ekki af hreiðrinu í ljósa-
stæði Subarubflsins meðan ljósmyndarinn at-
hafhaði sig.
Fyrir um hálfum mánuði kom fyrsta eggið í
hreiðrið og fljótlega bættust síðan þrjú við. Það
fer því að líða að því að ungar fari að koma í
hreiðrið og vonandi að þeir fái nú frið fyrir
köttum bæjarins, en eins og greint var frá í síð-
asta blaði hafa þeir verið herskáir í vor gegn
varpi í bænum.
Blönduósbær veitir styrki
til atvinnuuppbyggingar
Bæjarstjórn Blönduóss hefúr
að undanförnu samþykkt að
veita á þriðju milljón króna til
atvinnuskapandi verkefna.
Framlög bæjarins eru í formi
hlutafjár og styrkja. Styrkirn-
ir eru til Vélsmiðju Húnvetn-
inga vegna nýsköpunarverk-
efnis og bátafólksins vegna ný-
mælis í ferðaþjónustu. Þá
kaupir bæjarsjóður Blönduóss
hlutafé fyrir eina milljón í
rækjumjölsverksmiðjunni
Tanga á Hvammstanga.
Sem kunnugt er hóf Vél-
smiðja Húnvetninga smíði fisk-
karaþvottavéla á sl. vetri. Þetta
verkefni virðist lofa góóu og hef-
ur þegar öðlast stuðnig og viður-
kenningu opinberra aðila. Bæjar-
stjóm Blönduóss vill ekki láta
sitt eftir liggja og styrkir Vél-
smiðjuna um eina milljón króna
til þessa verkefnis.
Bæjarsjóður veitir einnig
Bátafólkinu, Hermanni Þór
Baldurssyni og Hörpu Ingva-
dóttur, styrk að upphæð 250 þús-
und. Styrkur þessi er sérstaklega
veittur vegna frumkvæðis þeirra
Hermanns og Hörpu að sköpun
fjölbreyttari afþreyingarmögu-
leika fyrir ferðamenn er leið eiga
um héraðið.
Þá hefur bæjarstjóm Blöndu-
óss ákveðið að leggja ffarn eina
milljón króna sem hlutafé í
hlutafélag um stofnun og starf-
rækslu rækjumjölsverksmiðju á
Hvammstanga. Verði helmingur
hlutafjársins greiddur á þessu ári,
þegar vinnsla hefst í verksmiðj-
unni, og helmingur á næsta ári.
Hlutafjárframlagið er þó háð því
að gerður verði samningur við
Særúnu hf. á Blönduósi sem
tryggi aó rækjuúrgangi verði
ekki eftirleiðis hleypt í frárennsl-
iskerfið og út í sjó.
Dalla verður prófastur
Séra Dalla Þórðardóttir á
Miklabæ hefúr verið skipað-
ur prófastur í Skagafjarðar-
prófastsdæmi til eins árs.
Dalla er fyrsti kvenprófastur
á landinu, en hún er sem
kunnugt er dóttir Auðar Eir
Vilhjálmsdóttur sem var
fyrsti kvenprestur landsins og
sjálf var Dalla önnur í röð
kvenpresta.
Til stóð að séra Hjálmar
Jónsson gegndi embætti pró-
fasts fram að héraðsfundi pró-
fastsdæmisins í haust. Hjálmar
sagði í samtali við Feyki að
biskup hefði beðið sig að gegna
embætti prófasts fram á haustið
og meiningin hefði verið að
hann vísiteraði kirkjur í hérað-
inu í sumar eins og timi ynnist.
„Síðan skipuðust málin þannig í
þinginu að ég var kjörinn í fjár-
laganefnd og verkefhin hlóðust
upp, þannig að ég sá fram á aö
geta ekki sinnt prófastsstarfmu.
Það varð því samkomulag milli
mín og biskups að hann kallaði
nýjan prófast til starfa“, segir
Hjálmar Jónsson.
Ferðafélag Skagfirðinga:
Gerir tilraun með að
loka skálunum
Miklar umræður hafa farið
fram í Ferðafélagi Skagflrð-
inga um það hvort hafa ætti
skála félagsins læsta, en hingað
til hafa þeir allir verið opnir
gestum og gangandi. Hefúr sitt
sýnst hverjum í þessu efni, en
á aðalfúndi félagsins í vor var
ákveðið að gera tilraun með að
liafa nýja skálann á Þúfnavöll-
um læstan nú í sumar. Svo að
þeir sem þar ætla að koma
þufa að nálgast lykla.
Helstu rök fyrir því að hafa
skálana læsta eru: Að með því
móti myndu skálagjöld frekar
innheimtast, en nokkur brögð
hafa verið á að þau hafi ekki ver-
ið greidd. I öóru lagi sé með því
tryggt að þeir sem hafi pantað
gistingu í skálunum geti gengið
að því vísu að fá inni. Líkur á
betri umgengni aukist. Þá verði
meö þessu tryggt að að skála-
pláss geti nýst að fullu þannig aó
fámennir hópar geti ekki lagt
undir sig skálana og haldið laus-
um plássum. Stjóm Ferðafélags
Skagfirðinga bendir á í þessu
sambandi að FI sé farið að hafa
marga af sínum skálum læsta þar
sem ekki er gæsla og hefur tekið
upp viðverugjald á þeim stöðum
þar sem gæsla er.
Stjóm félagsins telur að með
þessu fyrirkomulagi sá hægt að
veita félögum og öðmm ferða-
mönnum þetri þjónustu með því
að hafa búnað í skálunum sem
bestan. Lykla að Þúfnavallaskál-
anum verður að fá hjá Ingvari
Sighvatssyni formanni FFS,
Friðriki A. Jónssyni gjaldkera og
í upplýsingaþjónustu fyrir ferða-
menn í Varmahlíð, og e.tv. víð-
ar. Þá hefur einnig veriö ákveðið
að taka upp viðvemgjald í skál-
um félagsins. Er það krónur 100,
en þess má geta að eldunaraó-
staða er í öllum skálum FFS og
upphitun, og hafa þeir því ýmis-
legt fram yfir almenna ferða-
skála.
Næsta ferð Ferðafélags Skag-
firðinga verður Jónsmessuferð í
Glerhallavflc 23. júní. Lagt verð-
ur af stað kl. 20,00 og ekið út á
Reykjaströnd. Gengið verður um
Glerhallarvík um fjöru og til
baka um bakka. I leiðinni verður
safnað sprekum í verðeld við
Sandvík. Þá verður gengið á
Reykjadisk og Grettislaug skoð-
uð ásamt því að rifjuð verða upp
atriði úr Grettissögu.
Sinubruni á
Slökkviliðið á Hvammstanga
var í tvo og hálfan tíma að
berjast við sinueld í nágrenni
bæjarins í síðustu viku. Yfir-
borð hálfs annars hektara
lands varð eldinum að bráð og
á tímabili var sumarbústaður
í hættu, en hann tókst að
verja.
Að sögn Skúla Guðbjöms-
sonar slökkviliósstjóra á
Hvammstanga var það um miðj-
an dag sl. miðvikudag sem til-
kynnt var um sinueld fyrir neð-
an Helguhvamm í nágrenni bæj-
arins. Slökkvistarf reyndist erfitt
þar sem aó þama er þýft land í
töluverðum halla. Þá var tals-
veró gola og magnaði hún eld-
inn. Um eiginlegt tjón af völdum
bmnans er ekki að ræða. Elds-
upptök em af mannavöldum og
hlutust af óvarkámi með eld.
Tanganum
„Þetta var svo sem ágætt til
að prófa nýja brunabílinn í
fyrsta skipti“, sagði Skúli, en
þess má geta að stranglega er
bannað að kveikja í sinu á þess-
um árstíma.
Oddvitinn
Menn ruglast í tímatalinu
eftir langan vetur.