Feykir - 28.06.1995, Blaðsíða 1
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Uppgræðsla á húnvetnsku heiðunum:
„Tímabært að
skoða ný viðhorf"
segir Sveinn landgræðslustjóri
Landgræðsla ríkisins er að
hefja árlega áburðardreifingu
á húnvetnsku heiðarnar. Eins
og á síðasta ári verða bæki-
stöðvar Landgræðslumanna
við nýja flugvöllinn hjá Sandá
skammt sunnan aðaluppi-
stöðulóns Blönduvirkjunar. A-
burðardreifingin mun heljast
4. júlí og er áætlað að hún
muni standa í 5-6 daga, viðri
þokkalega til fiugs.
Aó sögn Sveins Runólfssonar
landgræöslustjóra verður nú
dreií't 380 tonnum af áburöi sem
er svipað magn og í fyrra. Þaö er
hinn síungi Páll Sveinsson,
Douglasvól Landgræðslunnar,
scm veröur notaöur við dreifmg-
una, en hann er nú 52ja ára og
hefur aldrei veriö betri aö sögn
Sveins. Flugmenn Flugleiða
eyöa sumarfriinu á Páli eins og
jafnan áður, og virðist aldrei
neinn skortur á sjálfboðaliðum
úr röðum Flugleiðamanna til
þessa starfa.
Aðspuróur sagði Sveinn Run-
ólfsson að mióað við aðstæður
hefði árangur uppgræóslunnar á
heiðunum verið góóur. „Annars
held ég að nú sé timabært að
skoóa ný viðhorf í þessum upp-
græðslumálum. I stað stöðugra
áburóardreifinga væri frekar að
fara í uppgræðslu á nýjum svæð-
um. Við höfum viórað þær hug-
myndir að farið verði út í mark-
vissa uppgræðslu á suðurhluta
heiðanna. En við ráðum þessu
ekki, það cru fulltrúar upprekstr-
arfélaganna og Landsvirkjunar
sem semja um uppgræðslumálin
á heiðunum“, segir Sveinn Run-
ólfsson landgræðslustjóri.
Lágheiði var
opnuð í gær
Lágheiði var opnuð almennri
umferð, allt að fjórum tonn-
um, í gær. Lokið var við að
moka heiðina um miðja síð-
ustu viku og í góðum blæstri
undanfarna daga hefúr veg-
urinn þornað vel.
Að sögn Jónasar Snæbjöms-
sonar hjá vegageróinni á Sauð-
árkróki tók það þrjá daga að
moka heiðina að þessu sinni og
cr það svipaður tími og venju-
lcga. Mokað var báðum megin
frá; úr Fljótum og ffá Ólafsfirði.
Mikill snjór hefúr verið á Lág-
hciði tvo síðustu vetur og hefur
það, í bili að minnsta kosti, dregið
út þeim áformum að byggja
upp heilsársveg yfir heiðina.
Starfsmenn vegagerðarinnar
niunu síðan fara á Þverárfjallið
fyrir hclgina og kanna ástand
vegarins, en búist er við að
snjór sé enn þar uppi og sá veg-
ur verði ekki fær á allra næstu
dögum.
Stefán bóndi í Grænumýri að rifja túnið fyrir neðan bæinn í síðustu viku,
Sláttur hafinn í Skagafirði
Eins og oft áður var Stefán
Jónsson bóndi í Grænumýri
fyrstur skagfirskra bænda til
að hefja slátt. Hann byrjaði sl.
miðvikudag og sló þá sléttu
niður undan bænum sem orð-
in var þokkalega sprottin.
Stefán leggur ávallt áherslu á
að slá túnin snemma, þegar
fóðurgildið er sem mesL
„Eg ætlaði að byrja um síð-
ustu hclgi en frestaði því þar
sem að ekki var útlit fyrir
þurrk“, sagói Stefán í Grænu-
mýri. Astæðan fyrir því að Stef-
án byrjar slátt jafnan svo
snemma er að hann ver hluta
túnanna fyrir ágangi búfjár.
Snemmsprottin túnin gera hon-
um síðan kleift að ná tveim slátt-
um af megni túnanna. Það hefur
meira að segja komið fyrir að
Stefán í Grænumýri hafi slegið
þrisvar, en hann segist ekki vera
hrifinn af því og geri það ekki
aftur. Þá sé gengið of nálægt
jörðinni.
Sláttur mun einnig vera haf-
inn í Keldudal í Hegranesi og
ljóst að margir bændur eru í
þann mund að byrja heyskap,
þegar þetta er skrifað á mánu-
degi. Egill Bjamason hjá Búnað-
arsambandi Skagafjarðar segist
reikna með að sláttur hefjist al-
mennt í Skagafirði um mánaða-
mótin. Væntanlega verður þess
heldur ekki langt að bíða að hey-
skapur byrji víða í Húnaþingi.
Dýrbítur á Vatnsskarði:
Lágfóta kemur fram hefndum
Bændur við Vatnsskarð hafa í
vor séð greinileg ummerki
dýrbíts og leikur grunur á að
hlaupadýr hafi haldið sig á
þessu svæði. Birgir Hauksson,
bóndi í Valagerði, hefúr fúnd-
ið tvö af lömbum sínum dauð
og Friðrik Björnsson á Gili eitt
úr sinni hjörð. Báðir sakna
þessir bændur lamba og leik-
ur grunur á að fleiri séu dauð.
Birgir í Valagerði er reyndar
mjög kunnugur lágfótu, en hann
er grenjaskytta á allmiklu svæói
í lfamhéraði Skagafjarðar og yfir
sýslumörkin í Húnaþing. Birgir
hcfur skotió margar tófur undan-
fama vetur og unnið dýr á greni
að vorinu. Undanfama daga hefúr
hann legið á grenjum og vann eitt í
Sólheimafjalli í Blönduhlíð nú á
dögunum. Þaó er því ekkert
skrýtið þó að menn sjái grátbros-
legu hliðina viö dýrbítinn á
Vatnsskarðinu. Vera kann að lág-
fóta sé þama að hefúa sín á and-
skota sínum, sem Birgir í Vala-
gerði hlýtur að vera, eins fengsæll
og hann er þegar um tófuveiðar
ræðir. „Hún hefur mig þá fyrir
rangri sök, því ekki hef ég drepið
neina tófú", segir Friðrik á Gili.
—ICTctt^lll Itpl—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, bílas. 853 1419, fax 453 6019
Almenn verktakaþjónusta,
Frysti- og kœliþjónusta,
Bíla- og skiparafmagn,
Véla- og verkfœraþjónusta
bílaverkstæði
Sími 453 5141
Sœmundargötu 16 Sauöárkróki íax: 453 6140
Bílaviðgerðir Hjólbarðaverkstœði
Réttingar Sprautun