Feykir - 28.06.1995, Blaðsíða 3
25/1994 FEYKIR 3
Jónsmessuhátíðin á Hofsósi:
Á annað þúsund
þegar f lest var
Það var líflegt um að litast á
Hofsósi um helgina, en þar fór
fram Jónsmessuhátíð í annað
sinn. Mikill mannfjöldi var
samankominn á laugardag
þegar varðskipið Oðinn var til
sýnis og farið var í smásigl-
ingu með skipinu út úr höfn-
inni og hlýtt á karlakórinn
Heimi sem söng ásamt Sig-
rúnu Hjálmtýsdóttur í Staðar-
bjargarvík. Talið er að á ann-
að þúsund manns verið sama-
kominn til að hlýða á sönginn.
Um 200 manns var um borð í
varðskipinu og fólkið var allt í
kring í brekkunni og á bökk-
unum við Staðarbjargavík.
Kvöldvökur bæði á föstudags-
og laugardagskvöld voru vel
sóttar, en þar komu fram
margir frábærir skemmti-
kraftar. Einnig var dansleik-
ur með Artúnsbandinu að-
faranótt sunnudags vel sóttur.
Þar var mikið fjör og fólk
hafði á orði að það hefði ekki
verið á öðrum eins stuðdans-
ieik lengi.
Þaö leit svo sem ekkert ó-
skaplega vel út með veður á
laugardagsmorgni. Hann hafði
þykknað upp um nóttina og
kominn var þoku- og rigningar-
suddi. En þó var lygnt og það
átti eftir að rætast úr veðrinu er á
daginn leið. Þegar komið var að
Heimismönnum að syngja í
Staðarbjargavíkinni var úrkomu-
laust og farið að þoma upp. Fólk
virtist njóta þessarar stundar í
víkinni vel, enda ekki á hverjum
degi sem hin fallega rödd
Diddúar fær að njóta sín í sam-
svarandi umhverfi, þar sem
hljómburður gerist ekki betri.
Eftir sönginn í víkinni bmgðu
Heimismenn sér á hestbak smá
stund og sungur stemmurþar
sem þeir riðu eftir aðal þoipsgöt-
unni á Hofsósi. A eftir þeim fór
Jón Garðarsson frá Efra-Asi á-
samt fríðu fömneyti í hestakerm.
A planinu við bjálkahúsið og
kaffihúsið Sólvík, í kvosinni, fór
síðan ffam dagskrá vegna vænt-
anlegrar stofnunar safns tengt
vesturferðum, sem staðsett verð-
ur í gamla kaupfélagshúsinu sem
nú er unnið að endurbótum á.
Það er Valgeir Þorvaldsson
ferðaþjónustubóndi á Vatni, sem
Feðgarnir í Artúnsbandinu, Snorri Jónsson og Kristján Bjöm
Snorrason, þenja nikkurnar.
Systurnar Kristín, Þórunn og Anna Jóna taka lagið.
Karlakórinn Heimir syngur í hvamminum í Staðarbjargavík. Varðskipið Óðinn þéttskipað
fólki í baksýn.
stendur á bak viö Jónsmessuhá-
tíðina á Hofsósi. Hann er mjög
ánægður með hvemig til tókst.
„Eg held að það megi allir vera
ánægðir með þaö ef að á einni
helgi tekst að breyta ímynd
þorps eins og Hófsóss. Þetta
heppnaðist alveg eins og til var
ætiasL Veórið var alveg þokka-
Borgarstjórinn í Reykjavík,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
var heiðursgestur á Jónsmessu-
hátíðinni.
legt og það var kannski heppni
að ekki skyldi vera glampandi
sólskin; þá hefði fjöldinn sjálf-
sagt orðið of mikili“, segir Val-
geir. Aðspurður hvort aö hátíðin
stæði undir sér, sagðist hann
vera ánægður ef tækist að dekka
kostnaðinn. Það væri ekki af
gróðahvötum sem þessi hátíð
væri haldin og sjálfur bæri hann
ekki mikið út býtum. „En það er
vonandi aó þetta skili Hofsósi og
svæðinu einhverju. Þá er tak-
markinu náð“, segir Valgeir.
Diddú þenur raust sína ásamt Heimismönnum undir styrkri
stjórn Stefáns Gíslasonar.
Utanhússmálning!
Fúavöm - Þakmálning Vatnsvari - Pallaolía
Múrviögeröarefni - Kítti Oll málningarverkfæri.
Kópal steintex - Þol þakmálning
Kjörvari - Þekjukjörvari Frá Málningu h/f 5T Verslunin ) HEGRI
4 Sími 453 5132 ' Kaupvangstorgi 1 Sauðárkróki