Feykir - 28.06.1995, Side 7
25/1995 FEYKIR7
Friðrik Margeirsson
fyrrv. skólastjóri Sauðárkróki
Friðrik L. Margeirsson frv.
skólastjóri lést 12. júní s.l. ejtir
stutta sjúkralegu. Friðrik var
jarðsunginn frá Sauðárkróks-
kirkju sl. laugardag að viðstöddu
miklu fjölmenni.
Friðrik Margeirsson fœddist
á Ögmundarstöðum í Skagafirði
28. maí 1919. Foreldrar hans
voru hjónin Helga Pálsdóttir og
Margeir Jónsson kennari og
frœðimaður. Arið 1957 kvœntist
Friðrik eftirlifandi eiginkonu
sinni, Öldu Ellertsdóttur frá
Holtsmúla í Skagafirði. Þau
eignuðust sjö börn.
Samf'eróamönnum fækkar.
Einn af öórum hverfa þeir yfir
móöuna miklu. Ekki fer það að
jafnaði eftir ákveðinni aldursröð.
Kallið kemur þegar minnst varir,
stundum viðkomandi að óvömm
en stundum með nokkrum fyrir-
vara. Einn vina minna og sam-
ferðamanna, Friðrik Margeirs-
son, sem var fyrir nokkrum dög-
um hress og aó því er virtist full-
ur af lífsþrótti og áhuga á búskap
og hrossarækt, áhugamálum sín-
um, hefur nú haft vistaskipti og
er fallinn frá eftir fárra daga legu
og snarpa baráttu við dauðann.
Fyrir nokkrum dögum kenndi
hann nokkurs sjúkleika og var
fluttur á Sjúkrahúsið á Sauóár-
króki. I fyrstu virtist allt snúast til
bctri vegar og þegar ég heimsótti
hann þangað var hann hress og
bjartsýnn um bata. Eg átti því þá
von að brátt mundi ég mæta
honum á götu á leið til þcss aö
sinna hugðarefnum sínum. En
allt fór á annan veg. Skyndilega
versnaði honum sjúkleikinn svo
að ekki varð við neitt ráðið og
andaðist hann mánudaginn 12.
júní sl.
Ásamt hcimanámi stundaði
Friðrik nám í Gagnfræðaskólan-
um á Akureyri og síðan í
Menntaskólanum í Reykjavík og
tók þaðan stúdentspróf 1941.
Síðan lá leið hans í Háskóla ís-
lands og lauk hann þar námi í ís-
lenskum fræðum með magister-
prófi 1949. Jafnframt námi
stundaði híinn kennslu við ýmsa
skóla í Reykjavík.
Að námi loknu fluttist hann
norður á Sauðárkrók til kennslu-
starfa við Gagnfræðaskólann á
Sauðárkróki og Iðnskólann þar.
Skólastjóri Iðnskólans var hann
frá 1951 til 1964 og skólastjóri
Gagnfræðaskólans frá 1956 til
1984.
Á heimili þeirra Öldu og
Frióriks hefur alla tíð verið gest-
kvæmt, enda vel tekið á móti
hverjum þeim sem að garði bar.
Böm þeirra öll sjö hafa skapað
sér traustar stöður og starfsvett-
vang í lífinu.
Leiðir okkar Friðriks lágu
fyrst saman er hann kom til
Sauðárkróks til kennslustarfa.
Strax bundumst við vináttubönd-
um, sem héldust alla tíð. Sam-
starf í skóla og að skólamálum
var ætíð með ágætum. Leiðir
okkar í og úr skóla lágu lengst af
saman og var því oft komiö við
hjá þeim Öldu og Friðrik, þeginn
kaffisopi og spjallað saman.
Fjölskyldur okkar voru báðar
bammargar og bömin á svipuð-
um aldri og áttu því oft samleið í
leik og starfi. Þau vom tíðir gest-
ir á heimili hvert annars og léku
sér saman. Á þeim ámm sem
bömin vom að alast upp var hér
mikill áhugi fyrir sundíþróttinni
og áttu Skagfirðingar fjölmennan
hóp unglinga, sem á margra ára
tímabili skaraði fram úr í sundi á
Norðurlandi. Eg minnist á-
nægjulegra stunda með sund-
hópnum á heimili Friðriks og
Öldu eftir vel heppnaðar sund-
ferðir til að efla samhug hópsins,
enda vom systumar á Hólavegi 4
drjúgur hluti þessa sundhóps. Þar
var sungið og glaðst saman. Fyr-
ir þessar samvemstundir vil ég
þakka sérstaklega.
Friðrik Margeirsson var
traustur vinur vina sinna, hjálp-
samur og velviljaður. Hann var
fróður um marga hluti, hafði
skemmtilegan frásagnarmáta og
var vel hagorður. Þannig heyrði
ég hann fara meó löng fréttabréf
til vina sinna í bundnu máli.
Hann sóttist ekki eftir vegtyllum
eða völdum en var trúr þeim
störfúm sem hann tók að sér að
vinna.
Eg hefi áóur minnst á áhuga
Friðriks á búskap og hrossarækt.
Jafnframt kennslustörfum stund-
aði hann ætíð smábúskap og að
mestu á Ögmundarstöðum. Eftir
að hann hætti kennslu sneri hann
sér í ríkara mæli en áöur að
hrossum, uppeldi þeirra og tamn-
ingu, eins og sönnum Skagfirð-
ingi sæmdi, og var búinn að
koma sér upp hrossastofhi, sem
hann hafði miklar væntingar um.
Síðustu árin eyddi hann miklum
hluta tíma síns í að vinna að
þessum hugðarefnum.
Við hjónin söknum mjög vin-
ar í stað þar sem Friórik var.
Heimsóknum til annarra en
bama okkar hefur fækkað með
árunum. Til þess liggja margar á-
stæður. Til Friðtiks og Óldu
hlutum við þó að koma ööru
hvoru til að rifja upp gamlar
minningar okkar öllum til á-
nægju og gleði, þaö var bara
einn þáttur lífsins. Við hörmum
það mjög að höggvið hefur verið
stórt skarð í vinahópinn.
Eg vil aó lokum fyrir hönd
konu minnar og bama þakka öll
samskipti og votta Öldu, bömum
hennar og fjölskyldum þeirra
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Minnumst þess að við andlát
Friðriks Margeirssonar kvöddum
við góðan dreng.
Guðjón Ingimundarson.
Snemma í vor festi ungur athaftiasamur maður á Sauðár-
króki, Örvar Pálmason, kaup á pylsuvagni. Örvar hyggst
verða á ferðinni með vagninn í sumar, þar sem að eitthvað
verður að gerast. Ljósmyndari Feykis hitti hann á Jóns-
messuhátíð á Hofsósi um síðustu helgi og fékk sér þá að
bragöa á hinum ágætu ,rsvaðapylsum“. Örvar er til hægri á
myndinni, aðstoðarmaður hans Njáll Njálsson til vinstri.
Þcssi miði gildir scm 15%
afsláttur á pizzum á Bíó Cate
föstudagskvöldið 30/6 og
laugardagskvöldið 1/7
KK
BANDog
ElleilKristjáns
á tónleikum/dansleikjum í
Bíó salnum Siglufirði nk.
laugardagskvöld.
Hvernig væri að breyta til og
skreppa til Sigló eina
kvöldstund.
18 ára aldurstakmark.
Nýja bíó hf.
Okeypds smáar
ofnar og hreinlætistæki, fást gef-
ins. Upplýsingar í síma 453
5700.
Til sölu!
Til sölu fimm fimm gata felgur
og varadekk, 175 R 15. Selst
ódýrt. Upplýsingar í síma 453
6106.
Bílaáhugamenn! Til sölu Austin
árg. 1946 (fyrsti eigandi Jón
Nikódemusson). Upplýsingar gefa
Bára og Magnús í síma 567 5050.
Til sölu 26 tommu DBS kvenhjól,
lítið notað. Upplýsingar í síma
453 5392.
Hlutir fást gefins!
Gamlir miðstöðvarofnar, pott-
Atvinna í sveit!
Bamlaus kona óskar eftir ráðs-
konustöóu á sveitabæ í 2-3
mánuði í sumar. Upplýsingar í
síma467 1054.
Hestar til sölu!
Vanti einhvem gott reiðhestsefni,
þá hringi hann í síma 453 6546.
Fasteign til sölu!
Til sölu tveggja herbergja íbúð á
jarðhæð að Víðigrund 16.
Upplýsingar í síma 453 6210.
+
Okkar innilegustu þakkir færum við þeim
fjölmörgu sem veittu okkur styrk í sorg okkar meó
blómum, samúð og hlýju, vió fráfall elskulegs
eiginmanns, föóur, tengdafööur, afa og langafa
Friðriks Margeirssonar,
Hólavegi 4, Sauðárkróki,
Guð blessi ykkur öll.
Alda Ellertsdóttir
Helga Frióriksdóttir Kristinn Hauksson
Heiðrún Friöriksdóttir Sveinn Sigfússon
Hallfríóur Friöriksdóttir Siguröur Þorvaldsson
Jóhann Frióriksson Sigríöur Siguróardóttir
Margeir Frióriksson Sigurlaug Valgarósdóttir
Valgeróur Frióriksdóttir
Páll Frióriksson Guóný Axelsdóttir
bamaböm og bamabamabam.