Feykir - 01.11.1995, Side 2
2FEYKIR 38/95
Þannig var Strandvegurinn á Sauðárkróki útlítandi eftir
brimið sem fylgdi óveðrinu í síðustu viku. Miklar skernmdir
urðu á veginum og flettist klæðningin af á Iöngum kafla.
Brimið var slíkt að spýtnabrak barst úr sjónum langt upp á
Hegrabraut.
Sigurður Ágústsson rafveitustjóri flytur ávarp við afliendingu
gjafarinnar til sjúkrahússins. Hilmi Jóhannessyni formanni
veitustjórnar virðist skemmt, Páll Pálsson veitustjóri er þung-
búnari, en hinum megin borðs er Snorra Birni bæjarstjóra
litið á Bjarna Brynjólfsson.
Rafveita Sauðárkróks 70 ára:
Gefur Sjúkrahúsi
Skagfirðinga lýsingu
í tilefni 70 ára afmælis Rafveitu Sauðárkróks hefur veitan
gefið nýja lýsingu við Sjúkrahús Skagfirðinga. Gjöfin var
afhent formlega í síðustu viku. Þar kom fram að það hefur
verið venja forráðamanna veitnanna að útdeila gjöfum á
stórafmælum. Þannig gaf veitan nýja útidyrahurð á 50 ára
afmælinu og þegar hún varó sextug var gefin lýsing við
Sauðárkrókskirkju.
MMC Galant GLS.I 2000,
árg. 1988, ekinn 146 þús.
km. Verð 790.000.
Lada 1500 station, árg. '92, ekin
72 þús. km. Verð 320.000.
Upplagðurvinnubíll.
BÍLASALA/BÍLALEIGA
SKAGAFJARÐAR SF.
Löggild bílasala
Borgarflöt 5, Sauðárkróki,
sími 453 6050 og 453 6399.
Systurnar að ná sér
Flugeldasýning í Síkinu
Tindastóll vann stórsigur á Þór í gærkveldi
,Jú það má segja að þetta hafi
farið betur en það leit út í fyrstu.
Stelpumar cru að ná sér, byrjaðar
í skólanum aftur en þurfa dálitla
umönnum. Síðan er vonandi að
engin eftirköst komi í ljós og þær
geti haldið áfram í íþróttunum“,
MMC Pajero V6 3000, langur
4x4, ekinn 103 þús. km. Verð
2.100.000. Fallegurbíll.
Daihatsu Feroza EL-II. EFI,
árg. '91, ekinn 45 þús. km. Verð
1.100.000. Góðurbíll.
segir Kristín Lúðvíksdóttir amma
systranna þriggja sem lentu í rútu-
slysinu í Hrútafirði á dögunum.
Sjálf lenú Kristín í slysinu og við-
beinsbrotanaði og tognaði bæði á
höndum og fótum. Kristín er
einnig að ná bata.
Systumar heita Fríða Dögg 15
ára, Katrín Sjöfn 12 ára og Eyrún
Osp 11 ára og era dætur Hauks
Friðrikssonar og Sigríðar Önnu
Ragnarsdóttur. Katrín slasaðist
mest af stúlkunum og var llutt til
aðgeróar á Akureyri þar sem gert
var að fótbroti. Katrín var stödd í
Reykjavík íyrir helgina ásamt for-
eldram sínum, en hinar systumar
voru á Hvammstanga hjá Kristínu.
Systumar þrjár vora að koma
frá sundkeppni í Rcykjavík ásamt
fleiri unglingum frá Hvamms-
tanga þegar slysið varð. Kristín
amma þeirra er búsett í Reykjavík
en hún varð samferða stúlkunum
norður, þar sem hún ætlaói að
taka aö sér að sjá um hcimilió
meðan foreldramir Haukur Frið-
riksson og Sigríður Anna dveldu
syðra við nám í nokkrar vikur.
Haukur faðir stúlknanna kom strax
norður og hann frétti af slysinu og
íylgdist með framvindu mála.
Þeir voru flestir sem reiknuðu
með hörkubaráttu þegar
Tindastóll fékk nágranna sína
í Þór á Akureyri í heimsókn í
gærkveldi. En það var einung-
is á fyrsta fjórðungi þessarar
„derbyviðureignar“ sem jafn-
ræði var með liðunum. Tinda-
stóll var kominn með 15 stiga
forustu í hálfleik og þegar leið
á seinni hálfleikinn keyrðu
Stólarnir yfir gestina. Gátu
meira að segja leyft sér að
hvfla allt byrjunarliðið í lokin
og bættu samt við forustuna.
Lokatölur urðu 98:66.
Bandaríkjamaðurinn Fred
Williams lék mjög vel til að
byrja meó hjá Þórsuram og það
var fyrir hans tilstilli sem jafn-
ræði var meö lióunum fyrstu
mínútumar. En það var erfitt að
ráða við Tindastólsmcnn eins og
þeir spiluðu í gærkveldi. Vamar-
leikurinn var sterkur, boltinn
gekk og skyttumar vora heitar.
Undir körfunni hirti síðan Hinrik
ófá fráköstin. Þau vora alls 13
þriggja stiga skotin sem rötuðu
ofan í hjá Tindastóli og þar reið
Láras Dagur á vaðið með góðri
hittni í fyrri háfleiknum. Ómar
fór að hans framkvæói og síðan
bættust þeir Arnar og Atli í
skyttuliðiö í seinni hálfleiknum.
Þórsar náðu að minnka mun-
inn í byrjun seinni hálfleiks og
klóra í bakkann annað slagðið.
En er á leió leikinn riðlaðist leik-
ur þeirra. Bandaríkjamaðurinn
fékk sína fimmtu villu þegar 5
mínútur vora til leiksloka og eít-
ir þaö var um upplausn aö ræða.
Williams hafði ekki sagt sitt síð-
asta orð eftir að leik lauk og fékk
brottrekstrarvíti.
Hinrik var bestur í liði heima-
manna að þessu sinni en í heild
lék allt liðið vel. Hjá Þór voru
Williams og Kristinn Friðriks-
son bestir og þeir Konráð og
Birgir Öm komust ágætlega frá
leiknum.
Stig Tindastóls: Amar K. 22,
Láras D. 20, Tprrey 18, Hinrik
11, Atli Þ. 11, Ómar S. 9, Pétur
G. 5 og Halldór H. 2.
Stig Þórs: Kristinn F. 26, F.
Williams 15, Konráó Ó. 15,
Birgir Ö. B. 4, Kristján G. 2,
Hafsteinn L. 2, Bjöm S. 2 og
Davíð H. 2.
Gangur leiksins: 5:2, 12:11,
19:19, 24:19, 28:22, 35:25,
44:25 (46:31)
52:33, 54:40, 56:46, 66:51,
72:53,83:59,88:61 (98:66)
Dómarar: Leifur Garðarsson
og Georg Þorsteinsson, ágætir.
Áhorfendur 490.
Maður leiksins: Hinrik Gunn-
arsson Tindastóll.
Tindastólsmenn hittu illa í íyrri
hálfleik gegn Val og voru oft fljót-
færir í sóknaraðgerðum sínum. I
síðari hálfleiknum hittu þeir
betur og voru þá að taka opin og
góð skot. Allir leikmenn Tinda-
stóls skoruðu í leiknum og eru
greinilega efnilegir leikmenn að
koma upp, segir Sverrir Sverr-
isson í DV um Valsleikinn.
Torrey skoraði 23 stig.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Sími
45 35757. Myndsími 45 36703. Ritstjóri Þór-
hallur Ásmundsson. Fréttaritarar: Eggert
Antonsson og Om Þórarinsson. Blaðstjóm: Jón
F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson,
Sæmundur HeiTnannsson, Sigurður Ágústsson
og Stefán Ámason. Áskriftarverð 137 krónur
hvert tölublað m/vsk. Lausasöluverð 150 kr.
m/vsk. Setning og umbrot Feykir. Prentun
Sást hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og
héraðsfréttablaða.