Feykir - 01.11.1995, Blaðsíða 4
4FEYKIR 38/1995
II
Ég lokaði á allar þessar tilf inningar.
ii
Spjallað við Björn Jónsson og Sigríði Guðmundsdóttur um reynsluna af Patreksfjarðarflóðinu
„Þetta var ólýsanleg reynsla. Björg-
unarstörfin voru mjög erfíó. Við
óðum krapaelginn allan daginn og
fljótlega varð maður dofinn fyrir
kuldanum. Það var ekki fyn- en ég
kom heim um kvöldió aó ég áttaði
mig á því að ég var ekki í beint hent-
um klæónaði til aö standa í mokstri
úr krapaelg. Þegar þetta gerðist var
ég klæddur í samfesting og á tré-
klossum og vitaskuld gaf maður sér
ekki tíma til aó skipta um föt. Ég og
mágur minn vorum sendir til að ná í
gamlan mann sem bjó í húsi við jað-
ar seinna flóðsins sem féll. Þaö má
heita að þaó hafi fallið á hæla okkar,
svo naumt var það. Þetta var geysi-
leg andleg raun fyrir fólkið þama í
plássinu eins og næiri má geta. Þama
var maður að leita að fólki sem maó-
ur gjörþekkti og var búinn aó vinna
meó lengi. Ég lokaói á allar þessar
tilfinningar eftir aö þetta var um garó
gengió og það var ekki fyrr en fyrir
2-3 árum að ég var tilbúinn aó tala
um þetta að nýju“, segir Bjöm Jóns-
son á Sauðárkróki, en hann var bú-
settur á Patreksfiröi þegar krapaflóð-
ió féll þar 22. janúar 1983. í samtali
við Bjöm og konu hans Sigríði Guö-
mundsdóttur, sem er borinn og bam-
fæddur Patreksfirðingur, varð blaóa-
maður Feykis þess áskynja hve mik-
il andleg áreynsla fýlgir því fýrir fólk
aó veróa vitni að þeim voðaatburð-
um sem snjóflóð em, aó ekki sé tal-
að um ef fólk tekur sjálft þátt í björg-
unaraðgerðunum eins og Bjöm gerói
á Pati'eksfirói.
Hjónin Björn Jónsson og Sigríður Guðmundsdóttir ásamt börnum sínum Guðmundu, Guðrúnu og Sigurbirni Vopna.
„Þaó er ekkert efamál aó ég þurfti stór-
lega á áfallahjálp aö halda á sínum tíma.
Það er heldur ekki spuming að fólkiö
þama hefói ekki farið jafhilla út úr þessu
og það gerói ef áfallahjálp hefði verið
komió á. Þaö skiptir óskaplega miklu
máli að geta losnaö við eitthvaó af þessu
út strax, frekar en vera aö byrgja þetta
inni svo ámm skipti. En það var ekki til
neitt sem hét áfallahjálp á þessum tíma.
Þegar björgunarstarfið var búiö þá vom
menn bara sendir heim. Það var ekki einu
sinni að mönnum væri boðin svefntafla til
aö róa sig niður. Síðan fór maður heim og
náði sér vitaskuld engan veginn nióur eft-
ir þetta og gat ekki sofið", segir Bjöm
Jónsson.
Þau Bjöm og Sigríður byrjuðu búskap
á Patreksfirði árið 1971 og vom því búin
aó búa á Patreksfirði í 12 ár þegar krapa-
flóðin féllu. Slæmt atvinnuástand vestra
varð til þess að þau fluttu ffá Patreksfirði
Afgreiöslutími okkar
Mánudaga - Föstudaga
kl. 9-19
Laugardaga kl. 10-16
Verið velkomin
Skagfirðingabúð
simi 455 4530
til Sauðárkróks fyrir fimm ámm, vorió
1990. Ef þau hefðu ennþá búið á Pctreks-
firði sl. vetur, hefðu þau oft þurft að rýma
húsið sem þau bjuggu í, en það er taíió á
snjóflóðahættusvæði. Fram að þeim tíma
hafði slíkt verið fátítt, þó svo að flóð hafði
fallið þar 12 ámm áður.
Umræðan breyttist við
Súðavíkurslysið
Þau Bjöm og Sigríður segja alla um-
ræóu um snjóflóðamálin hafa breyst við
Súðavíkurslysið í fyrravetur, og menn
hafi nú meiri andvara á en áóur. Þau
mundu ekki eftir að menn hefðu haft ein-
hvem ótta af flóðum áður en það féll á
Patreksfirði, enda hafði verió lítið um flóð
á þessum slóóum. Það var helst að menn
minntust þess að flóð hafði fallið við eina
af efstu götunum í þorpinu og valdið þar
smávegis eignartjóni. „Eftir krapaflóðin
vom menn eins og gengur að reyna aó
finna skýringu á þeim, og helsta niður-
staðan var sú að þarna hefðu skapast
mjög sérstakar aðstæður, en ég minnist
þess ekki að gefið hafi verið út eitthvcrt
sérstakt hættumat eftir þetta flóð, eða ver-
ið talin ástæða til að breyta fyrra mati. Það
hefur svo margt breyst í þessum málum
við þessa nýjustu atburði“, segir Sigríður.
Þorrablótið átti að vera
um kvöldið
Sigríóur var reyndar stödd við nám í
Reykjavík þennan örlagaríka vetur 1983.
Laugardaginn 22. janúar var blíðskapar-
veður um morguninn á Patreksfirói, en
hellirigning hafði verið kvöldið áður.
Fljótlega fór þó að rigna aftur og rigndi
sleitulaust og bleytti í miklum snjóalög-
um sem sest höfðu fýrir ofan kauptúnið í
hlíðar fjallsins, sem heitir því sérstæða
nafhi Brellur. Mikið stóó til á Patró þenn-
an dag. Þorrablótió átti að vera um kvöld-
ið og margar kvennanna í þorpinu vom
mættar snemma dags í félagsheimilið til
að hafa til matinn fýrir blótið. Það var síó-
an um tvö leitið sem dmnur miklar heyró-
ust og fyrra flóðið féll. Ekki var langt lið-
ið þegar annað flóð féll og vakti mikla
undrun hve mikil kraftur fylgdi því flóði
miðað vió að það féll úr lítill hæð, nánast
af jafnsléttu. En ógnarkraftur fýlgdi þess-
um flóðum. Hús sprungu og tættust und-
an þrýstingnum. Fjórir létu lífið.
„I dag mundi ég ekki fyrir nokkra
muni vilja búa viö þessar aðstæður fyrir
vestan og ég er ákaflega fegin að við
skyldum flytja. Hugurinn hjá manni er
samt mjög ntikið vestra, enda búa þrjú
systkini mín á hættusvæðum á Patrcks-
firði, beint undir fjallinu. Mér finnst þetta
vera orðið þannig að alltaf þegar veóur er
slæmt, þá vakna ég upp á nóttunni og er
þá jafnvel að hugsa unt að kveikja á út-
varpinu. Það getur alltaf eitthvað hafa
verió að gerast. Eins veró ég fljótt vör við
það hjá Bjössa ef veóurútlitió er þannig
og kannski er farió að rýma hús, að þá
rnerki ég það strax að honum líður ekki
vel“, segir Sigríður Guðmundsdóttir.
Körfubolti, DHL-deildin
Tindastóll - KR
í Síkinu fimmtudagskvöld kl. 20.
Áfram Tindastóll!