Feykir - 01.11.1995, Blaðsíða 5
38/1995 FEYKIR5
íþróttabærinn
Þaö hcfur veriö margt nýtt aö
gerast í íþróttamálum á Sauöár-
króki nú í sumar. Ber þar hæst
þrjá atburði. Sá fyrsti er sá tíma-
mótasamningur sem Sauöár-
króksbær og sex aðrir aóilar geröu
mcð scr til að veita Jóni Amari
Magnússyni frjálsíþróttamanni
þann stuöning sem hann þarf til
aö æfa fyrir Olympíuleikana á
næsta ári í Atlanta í Banda-
ríkjunum.
Krókshlaup og
hjólarall
Hinir tveir íþróttaviðburðimir
eru Krókshlaupió, sem haldið
var á Sauðárkróki og hjólarallið
sem Ungmennasamband Skaga-
fjarðar gckkst fyrir. Þó svo aó
fresta hafi orðið hjólarallinu
vcgna lítillar þátttöku má ekki
gefast upp vió fyrstu tilraun, þó á
móti blási.
Þessir viðburðir cru til marks
um mikinn og vaxandi íþrótta-
áhuga í fjóröungnum og vonandi
að menn bcri gæfu til að halda
þessu starfi áfram og efla með
þessu almenningsíþróttimar, auk
þess sem þetta mun væntanlega
draga til sín þátttakendur alls
staðar að af landinu og koma
Króknum á „kortið“ sem öflug-
um íþróttabær.
Krókshlaup og hjóla-
rall um verslunar-
mannahelgina
Astæðan fyrir þessari grein er
að undirritaðan langar til að
koma eftirfarandi á ffamfæri til
þeirra sem standa fyrir Króks-
hlaupinu og hjólarallinu.
Nú er það svo aó í fjölda
bæjarfélaga um land allt er boóið
upp á almenningshlaup og mæta
þangað hlauparar alls staðar af
landinu til að taka þátt í þeim. í
dag er þó hvergi boðið upp á
neitt slíkt hlaup um verslunar-
mannahelgina. Það er ljóst að
mikill fjöldi hlaupara þarf að
hlaupa mikið þessa helgi, því
þjálfunin fyrir Islandsmótið í
maraþoni, Reykjavíkurmara-
þonið, stendur þá sem hæst hjá
þcim sem ætla sér að taka þátt í
því, þ.e. 3 vikum fyrir þaó hlaup.
Væri ekki athugandi aó
seinka Krókshlaupinu um viku
og halda það um verslunar-
mannahelgina og bjóða öllum
hlaupurum landsins að eyða
verslunarmannahelginni á
Króknum meö fjölskyldunni og
taka þátt í Krókshlaupinu og
hjólarallinu. Það þyrfti aó sjálf-
Sauðárkrókur
sögðu að bjóða upp á styttri vega-
lengdir eins og gert var í sumar
en einnig hálft maraþon og
maraþon.
I tengslum við hlaupió væri
best að opna íþróttasvæðið fyrir
þá sem koma og dvelja þarna
yfir helgina, og bjóða bömum og
unglingum að spreyta sig í
frjálsum íþróttum, götubolta
o.s.frv. Hægt væri að þróa slíkt á
ýmsan hátt, setja jafnvel upp
mót með stigagjöf, þannig að
allir í fjölskyldunni fýndu þama
eitthvað við sitt hæfi og nóg væri
að gera alla helgina. Vel mætti
hugsa sér góða samvinnu við
Siglfiróinga og Skagstrendinga
og það yrði boðið upp á sæta-
ferðir á kvöldin ffá Króknum á
skemmtanir á þessum stöðum.
Fjárhagshliðin
Allir þeir sem taka þátt í
almenningshlaupum em vanir aó
greiða fyrir þátttöku í slíkum
hlaupum. Að sjálfsögðu yrði
tekió slíkt gjald fyrir þátttöku í
Krókshlaupinu sem jafnframt
gæti innifaliö aðgang að íþrótta-
svæðinu og sundlaug. Ef vel
yrði að þessu staðið gæti Króks-
mótið orðið vinsælt íþrótta- og
fjölskyldumót. Fólk kæmi á
Krókinn með unglingana frekar
en að fara á hefðbundnar úti-
hátíðir um verslunarmannahelg-
ina. Slíkt mót gæti orðið tekju-
lind fyrir íþróttafélögin sem að
þessu standa og bæjarfélagið og
ef til vill yrði hægt að stofría sér-
stakan afrekssjóð til að styrkja
frjálsíþróttamenn eins og Jón
Amar Magnússon.
Friðrik Hansen Guðmundsson
skokkari og áhugamaður um
almenningshlaup.
Sýnum samhug
í Bóknámshúsi
Fjölbrautaskólans í kvöld.
Fjöldi tónlistarmanna kemur
fram.
Aögangseyrir krónur 1000,
rennur óskiptur til
fórnarlamba snjóflóóa.
Sýnum samhug í verki til
styrktar fólkinu á Flateyri.
FATASKÁPUR 80 x 205 cm
VERÐFRÁ 26.400,- stgr.
BAÐINNRE'niNG
VERÐ FRÁ 56.100,-stgr.
KOMIÐ OG LEITIÐ TILBOÐA
FAGLEG RÁÐGJÖF Á STAÐNUM
ELDHÚSINNRÉTTING
VERÐ FRÁ 161.000,- stgr.
AFGREIÐSLUTÍMIER1 - 3 VIKUR FRÁ
STAÐFESTINGU PÖNTUNAR.
T-BORG
INNRÉTTINGAR
/