Feykir - 01.11.1995, Side 8
Öháð fréttablað á Norðurlandi vestra
1. nóvember 1995, 38. tölublað 15. árgangur.
Auglýsing í Feyki fer víða!
A6 nema...
ber ávöxt
L
NAMAN
Landsbanki
fslands
Banki allra landsmanna
Sími 453 5353
„Sýnum samhug" í
bóknámshúsinu á
Króknum í kvöld
Fjölmargir tónlistarmenn í
Skagafiröi standa ásamt Leik-
félagi Sauðárkróks og Kvenfé-
lagi Sauðárkróks að kvöld-
stund „Sýnum samhug“ í bók-
námshúsi Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðár-
króki í kvöld, miðvikudaginn
1. nóvember kl. 20,30. Að-
gangur er krónur 1000 þús-
und og rennur óskiptur í sjóð
til styrktar fórnarlömbum
snjóflóða. Allt dagskrárefni er
flutt endurgjaldslaust. Ungir
sem aldnir eru hvattir til að
mæta.
Húsió verður opnaó kl. 20,00
og þá verður Kristján Stefánsson
frá Gilhaga mættur meö nikk-
una. Samverustundin hefst síðan
með hugvekju séra Gísla Gunn-
arssonar. Kirkjukórinn syngur
því næst sálminn Bæn eftir
Hilmi Jóhannesson og Sigríður
Elliðadóttir syngur lag eftir
Hilmar Sverrisson sem sérstak-
lega er samið vegna hörmung-
anna á Flateyri. Ársæll Guð-
mundsson aðstoðarskólameistari
hefur gert texta við lagió.
Fjölmargir lista- og tónlistar-
menn koma fram. Auk leikara úr
Leikfélagi Sauöárkróks: Rökk-
urkórinn, hljómsveitin Herra-
menn, Hljómsveit Geimiundar
Valtýssonar, Norðan þrír + Ás-
dís, Karlakórinn Heimir, Blás-
arasveit Tónlistarskólans og Jó-
hann Már Jóhannsson.
Jón F. Hjartarson skólameist-
ari og Eyþór Einarsson forseti
nemendafélags FNV flytja
ávörp og Kvenfélag Sauðár-
króks sér um kaffiveitingar.
Líkur á að Fiskiðjan
og HG sameinist
„Ég tel líklegt að af þessari
sameiningu verði. I»að er verið
að skoða þessa hluti og ég
reikna ekki með niðurstöðu
fyrr en í fyrsta lagi um miðjan
nóvember, en þá koma stjórn-
ir fyrirtækjanna saman. Það
sem augljóslega mundi vinn-
ast með þessu væri að þarna
hefðum við úr stærri kvóta-
potti að spila“, segir Einar
Svansson framkvæmdastjóri
Fiskiðjunnar Skagfirðings um
þá hugmynd að fyrirtækið
verð’ sameinað Hraðfrystihúsi
Grundarfjarðar, en FISK er
meirihlutaeigandi í HG.
Aðspurður sagði Einar að
frekari sérhæfing vinnslnanna
væri eitt af þeim atriðum sem
væri til skoðunar, en aó öðm-
leyti vildi hann ekki tjá sig um
fyrirhugaða sameiningu, kosti
hennar og galla, enda hefði
stjómum fyrirtækjanna ekki ver-
ið kynnt málið frekar.
HG er um helmingi minni
rekstrareining en Fiskiðjun
Skagfirðingur en sameiginlega
yrðu fyrirtækin fjórða stærsta
sjávarútvegsfyrirtæki landsins.
HG á tvo togara, Drang og
Klakk, og rekur frystihús,
rækjuvinnslu, skelfiskvinnslu og
mjölverksmiðju.
Grænlenski togarinn afhentur
Grænlenski rækjutogarinn sem Skagstrendingur festi kaup á í
sumar verður afhentur um næstu helgi.
Að sögn Jóels Kristjánssonar hjá Skagstrendingi mun skipið fara
í slipp þar sem genðar verða á því endurbætur, en síðan er reiknað með
að það fari til veiða strax í byrjun nýs árs. Jóel sagði að enn lægi
ekki fyrir ákvörðun um það hvort skipið færi í slipp hér heima eða
erlendis og afhendingarstaður skipsins væri því einnig óákveðinn.
Dorgveiði á lóni Blönduvirkjunar er meðal þess sem boðið er upp á í ævintýraferð þeirra Glaða-
heimamanna á Blönduósi. Mynd/PIB.
Góð nýting á sumarhúsunum
í Brautarhvammi á Blönduósi
„Rekstur húsanna hefiir geng-
ið mjög þokkalega þetta árið
og mikil aukning orðið frá
fyrra árinu. Nú þegar er þetta
orðið þónokkuð atvinnuskap-
andi fyrir sýsluna. Fólkið sem
hérna dvelur skilur eftir tals-
verða fjármuni sem allar
greinar atvinnulífsins njóta
góðs af. Mér finnst þetta lofa
góðu“, segir Hafþór Sigurðs-
son hjá Trésmiðjunni Stíg-
anda á Blönduósi um rekstur
sumarhúsanna í Brautar-
hvammi. Þetta er annað
rekstrarár Glaðaheima hf.
hlutafélags sem stofnað var
um húsin, en það er í eigu fyr-
irtækja, félaga og einstaklinga
í Austur-Húnavatnssýslu, auk
þess sem norskur framleið-
andi húsanna er einnig hlut-
hafl.
Hafþór segir að vel hafi
gengið að leigja húsinu út í sum-
ar, bæði til erlendra feröamanna
og Islendinga. Sum húsin hafi
verið leigð til langs tima, til
verkalýósfélaga sem þá hafi leigt
húsin í 12 vikur í einu. Húsin í
Brautarhvamminum em sex að
tölu og fjögur þeirra eru meó
heitum potti og gufubaði auk
annarra þæginda.
„Við erum eins og aðrir að
reyna að lengja ferðamanna-
tímabilið í báða enda. I haust
hafa t.d. komið þrír hópar í veiði
og náttúmskoóun og við eigum
von á fleiri hópum í vetur. Við
stílum upp á ævintýraferðir inn á
hálendið. Ferðinni verður heitið
á jeppum eftir fannbreiðunni til
Hveravalla og farið þar í laug-
ina. Það em fimm ferðaskrifstof-
ur erlendis aó kynna þessar ferð-
ir fyrir okkur og maður vonar að
eitthvað komi út úr því. Þær em
í Danmörku; Noregi og Þýska-
landi. En þetta er sem sagt smám
saman að hlaða utan á sig‘% sagói
Hafþór Sigurósson á Blönduósi.
Erfitt með hráefni
Hráefnisöflun hetur verið erf-
iðleikum bundin hjá Fiskiðj-
unni að undanförnu. Tekist
heftir að halda uppi vinnslu í
frystihúsinu á Sauðárkróki, en
uppihald var í tvær vikur á
Hofsósi. Þegar síðan hráefni
barst til Hofsóss á þriðjudeg-
inum í síðustu viku fór raf-
magnið og vinnslan komst
ekki í gang aftur af þeim sök-
um fyrr en liðið var á fímmtu-
daginn.
Einar Svansson framkvæmda-
stjóri Fiskiðjunnar er bjartsýnn á
að hráefnismálin fari aó ganga
betur á næstunni, og vonir standi
Ul að tvöföldunin hjá línubátum,
sem byrjar núna um mánaða-
mótin, skili auknu hráefni til
húsanna. „Línubátamir fara að
koma inn núna, svo framarlega
sem gæftir verði. Annars er þetta
alltaf versti tíminn með hráefnis-
öflun, þessir síóustu mánuðir
fyrir áramótin", segir Einar.
Siglingar togaranna og sölur í
erlendum höfnum fara nú að
byrja að nýju. Hegranes og
Skagfirðingur em aö afla í sigl-
ingu. Hegranes á söludag nk.
mánudag 6. nóvember, Skag-
firðingur þann 13. og Skafti 27.
nóvember.
!