Feykir - 08.11.1995, Síða 2
2FEYKIR 39/95
Þverárfjallsveginn á dagksrá
Umræður um samgöngumál í
kjördæminu hafa ekki verið
áberandi undanfarið, utan núna
upp á síðkastið að Siglfirðingar
hafa hreyft nokkuð hugmyndum
um bættar samgöngur við stað-
inn og meira að segja nú nýverió
stofnað samtök um það málefhi.
Hugmyndir Siglfirðinga virðast
ganga mest út á það að komast í
góða tengingu við Akureyri,
með tveimur jarðgöngum, frá
Skútudal yfir í Héðinsfjörð og
þaðan yfir á Kleifahorn við
Olafsfjörð. Þessi framkvæmd er
talin kosta á þriðja milljarð
króna. Þaö er kannski vel skilj-
anlegt að Siglfirðingar vilji
tengjst í þessa átt, með því móti
komast þeir í tengingu við stórt
atvinnu- og þjónustusvæði,
nokkuð sem ekki er inni í mynd-
inni í vesturáttina. Hinsvegar er
spumingin hvenær svo risavaxið
verkefiii sem þetta komist á dag-
skrá fjárveitingavaldsins.
Fyrir nokkrum ámm var tals-
vert rætt um fyrirhugaðan Þver-
árfjallsveg, sem mjög hag-
kvæma tengingu atvinnusvæða í
Skagafirði og Austur-Húna-
vatnssýslu. Síðustu misseri hefúr
þessi umræða legið niðri að
mestu, en vel kann að vera að
tímabært sé að vekja hana að
nýju. Þaö er altént íhugunarefm
hvort tilkoma þessa vegar gæti
ýtt undir það að atvinnulíf á
svæðinu taki að glæðast á ný og
nýsköpun komi í stað þeirrar
stöðnunar sem ríkt hefur um
talsvert skeið.
Það er ekkert efamál að það
gæti breytt ýmsu ef vegalengdir
milli Sauöárkróks og þéttbýlis-
staðanna við austanverðan
Húnaflóa, Blönduóss og Skaga-
strandar, styttist úr 70-85 kíló-
metmm í 42-45 kílómetra. Þetta
svæði er líka að ýmsu leyti vel
fallið til þess að byggjast upp
sem sterkt atvinnusvæði, til að
mynda er svæðið talið nokkuð
öruggt gagnvart eldvirkni eða
jarðskjálftahættu, tryggara en t.d.
suðvesturhomið þar sem stærstu
atvinnufyrirtækin og stóriðjan
hefur byggst upp.
Það er einnig í ljósi tíóinda
þessa árs sem full ástæða er til
að hyggja að uppbyggingu
sterkra atvinnu- og búsetusvæða
úti á landsbyggðinni. Hér er átt
við þá miklu vá sem snjóflóó og
snjóflóðahættan er. Það er nokk-
uð augljóst mál að einhver til-
flutningur fólks muni eiga sér
stað á næstu ámm af snjóflóða-
•hættusvæðum, og það liggur í
augum uppi að hann mun liggja
á suðvesturhomið. Abyggilega
er það samt svo að ekki kæra sig
allir um að flytja þangað, mundu
ffekar vilja flytja á annan staó á
landsbyggðinni. Vel má hugsa
sér að Norðvesturland gæti tekið
við þessu fólki með tilkomu
Þverárfjallsvegar. Þá mun skap-
ast það stórt atvinnusvæði að
stóriðjuver við austanverðan
Húnaflóa væri vel inni í mynd-
inni. - Hvemig væri að ráóa-
menn í Skagaflrði og Húnaþingi
sameinuðust um aó knýja á um
Þverárfjallsveginn og hreyfa við
því máli að nýju.
ÞÁ.
MMC Galant GLS.I 2000,
hlaðbakur 4x4, árg. '91, ekinn
70 þús.km.Verö 1.270.000.
Subaru Justy J 10 4x4, árg. '87,
ekinn 121 þús. km. Verð
290.000. Lipurbíll.
Toyota Corolla DX 1300,
árg. '87, ekinn 140 þús. km.
Verð 285.000. staðgr.
Range Rover Vouge árg. '87,
ekinn 139 þús. km. Verð
1.390.000. Snotur bíll.
MMC Pajero disel, stuttur, árg.
'83, ekinn 187 þús. km., nýupp-
tekin vél. Verð 480.000.
BÍLASALA/BÍLALEIGA
SKAGAFJARÐARSF.
Löggild bílasala
Borgarflöt 5, Sauðárkróki,
sími 453 6050 og 453 6399.
Heimasími sölumanns 453 5410.
Þegar Árni Jónsson bóndi á
Sölvabakka var að svipast um
eftir fé sl. laugardag í svoköll-
uðu Hellnagili syðst í Ósvík
þar sem Laxá í Refasveit renn-
ur til sjávar, varð hann þess
var að kindur voru þar grafii-
ar í fönn. Það ótrúlega gerðist
að úr fönninni gróf Árni átta
lifandi kindur. Þá voru liðnir
um 10 dagar frá óveðrinu
mikla sem gróf þær í fönnina.
Segja má að þessi fundur hafi
verió aó sumu leyti sárabót fyrir
Ama bónda sem missti drjúgan
hluta fjárstofhs síns í óveðrinu.
Þegar Árni kom í Hellnagil á
laugardaginn, vom tvær kindur
þar í fjömnni sýnilega nýkomnar
úr fönn. Sex kindur gróf Ámi
dauðar úr fönninni og ein af
þessum átta sem var lifandi, náði
sér ekki eftir aó hún var komin á
hús. Hinar sjö braggast hinsveg-
ar vel og em komnar á beit aftur
eins og ekkert hafi í skorist.
Það var líf og fjör í fclagsmiðstöðinni Friði á Sauðárkróki fyrir
helgina, en þá þrcyttu nemendur 10. bekkjar maraþon til að afla
tekna fyrir skólaferðalagðið í vor. Krakkarnir voru að í einn
sólarhring samflcytt og á þeim tíma tókst það sem stefht var að, að
bæta mctið á þrekhjólinu og hjóluðu nú vegalengd sem dugað
hefði til að komast til Spánar. Þá gerðu þau listaverk mikið úr
fátatölum og pottrétturinn scldist upp á einum klukkutíma. Alls
safnaðist í áhcitum rúmlega hálf milljón, en kvöldið fyrir
maraþonið gáfu þau 50 þúsund úr ferðasjóðnum til Flateyrar-
söfhuninnar.
Brimvörnin neðan Strandvegar gaf sig víða í óveðrinu á
dögunum. I síðustu viku var unnið að því að koma mestu af
grjótinu, sem hreyfst hafði til í veðrinu, á sinn stað.
Fjölliðamót 10. flokks
Tindastóll hafnaði í þriðja
sæti í fjölliðamóti 9. flokks
karla, A-riðli sem fram fór á
Sauðárkróki um helgina.
Keflvíkingar sigruðu og
Njarðvíkingar urðu í öðru
sæti.
Tindastóll vann ÍR 68:43, Val
62:33, KR 65:46, en tapaði fyrir
Keflavík 71:107 og Njarðvík
85:78 eftir ffamlengdan leik.
Um helgina fer fram
fjölliðamót í 10. flokki karla í
íþróttahúsinu á Sauðárkróki.
Keppni hefst kl. 13,00 á laugar-
dag.
Krakkar af leikskólanum Furukoti ásamt fórstrum sínum á
göngu við Skagfirðingabraut. Það hefur viðrað til gönguferða
upp á síðkastið.
Kindur lifandi eftir
10 daga í fönn
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Sími
45 35757. Myndsími 45 36703. Ritstjóri Þór-
hallur Ásmundsson. Fréttaritarar: Eggert
Antonsson og Om Þórarinsson. Blaðstjóm: Jón
F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson,
Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson
og Stefán Ámason. Áskriftarverð 137~íTrónur
hvert tölublað m/vsk. Lausasöluverð 150 kr.
m/vsk. Setning og umbrot Feykir. Prentun
Sásthf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og
héraðsfréttablaða.