Feykir - 08.11.1995, Blaðsíða 7
39/1995 FEYKIR7
Ferð Sindbaðs á heimsleikana
Kafli úr annarri ferð Sindabaðs sem farin var til Austuríkis og Þýska-
lands 1987. - Skráð af Sigurjóni Runóflssyni Dýrfinnustöðum
Farið var með þotu Flugleiða
frá Keflavík 9. ágúst, árla morg-
uns og lent í Salzburg í Austur-
ríki. Þaðan var haldið áffam með
rútubílum til Munchen í Þýska-
landi og dvalið þar í tvo daga,
sem notaðir vom til þess að skoóa
borgina og næsta nágrenni henn-
ar.
Fararstjóri var Þorsteinn
Magnússon, fróður maður og
greinagóður. Lífvöróur Sindbaðs
var Grettir Guðmundsson frá
Búðardal. Gist var á Hótel Penta.
- Munchen er fögur borg og
margt þar að sjá, bæði gamalt og
nýtL Þar er víða í bland byggingar
frá löngu liðinni tið og nýtískuleg
hús og mannvirki, reist eftir síðari
heimstyrjöld. Þar sáust líka
„svefnþung port og svartar gættir
sörra lýðsins neðstu dregg“.
Borgin er illa farin eftir loftárásir
Bandamanna, mörg hverfi voru
þar nánast í rúsL Einn slíkur stað-
ur var til sýnis, óhreyfður frá
stríöslokum, og var þar óhugnan-
legt yfir að líta. Þarna voru
sprengjugýgir djúpt í jörðu þar
sem áður stóðu hús, og haugar af
jarðvegi og braki úr byggingum
umhverfis. Ekki er vafi á því aö
þama hefur fjöldi manns farist pg
aðrir orðið örkumla ævilangL „Ég
heyri milljónir manna gráta, sé
milljónir þola sinn refsidóm“.
Arnarhreiðrið
Þýskarar kalla Munchen fæð-
ingarstað nazismans og það með
réttu því að á knæpum og götum
borgarinnar byrjaði Hitler að pré-
dika sína visku.
Farið var upp í Amarhreiður
Hitlers, sem er Þýskalandsmegin í
Ölpunum, ekki langt frá
Munchen. Þangað er ekið á sér-
hönnuðum rútum því ekki er
hægt að aka leiðina á venjulegum
bílum vegna brattans. Fjöllin
þama eru víða um og yfir 2000
metra há. Þegar upp var komið
blasti við stórfenglegt útsýni yfir
tinda Austurísku Alpanna en
Matterskom sást ekki vegna fjar-
lægðar.
Amarhreiðrið var sprengt inn í
fjallið skammt fyrir neðan efstu
tinda þess. Vom þar við störf, auk
vinnuþræla, menn úr verkfræð-
ingasveitum, sem stjómuðu fram-
kvæmdum. Þetta mannvirki er
meistaraverk frá tæknilegu sjón-
armiði séð og ber vott um snilli-
gáfu þeirra arkitekta sem þar vom
að verki.
Gengið var inn í þetta greni
einvaldsins um neðanjarðargöng
og fyrst komið í sal einn allstóran,
sennilega eins konar biðstofu. Þar
innaf var lyfta, sem flutt gat 40
manns í einu upp á efri hæðir.
Veggir lyftuklefans vom klæddir
innan með koparflísum og sjáan-
lega hefur ekki verið horft í
kostnaðinn því að íburður var
þarna allsstaðar mikill, enda
þýska ríkið látið borga brúsann.
Eftir stutta dvöl þama uppi var
haldið niður til Munchen og tekið
aö skoða borgina og nágrenni
hennar betur. Komið var að
hrikalegum gljúffum skammt ffá
borginni og fóm margir í göngu-
ferð meðfram þeim. En Sindbað
og lífvörður hans fundu þarna
kaffihús, sem þeir fóm inni í til aó
sjá hvað væri þar til sölu. Kom þá
í ljós að þama var selt arabískt
kaffi, sem þeir keyptu vegna þess,
að þeir höfóu aldrei smakkað það
áður. Þetta kaffi var kolsvart og
svo þykkt, aó þaó hné varla þegar
hallað var bollanum. Tóku þeir
því það ráð að þynna það örlítið
með visky og var þetta þá orðinn
indælis drykkur.
Stórsöngvarinn
Næst var haldió inn í borgina,
farið í verslanir, komió á knæpur
og kíkt á lífið á strætum úti.
Hvergi var stansaó neitt að ráði
fyrr en farið var inn í veitingahús
eitt, sem varó á vegi göngu-
manna, til þess að hvíla sig og fá
sér hressingu. Þetta var finn stað-
ur og þokkalegur en ekki mjög
stór. Sindbað og Ami Jóhannsson
söngvari fóru inn í svítu eina
þama, sem búin var leðurklædd-
um sófum og stólum, settust þar
og báðu um visky í glas, sem
þjónn kom óðara með á bakka.
Félagar þeirra settust á bar annars
staðar í húsinu, fengu sér drykk
og fóm svo án þess að gera þeim
viðvart. Þegar Sindbað og Ami
komu út á tröppur hússins sáust
hinir hvergi, en gatan neöan við
var full af fólki, sem allt gekk í
sömu átt, en bílaumferð var þama
engin. Allt í einu fer Arni aó
syngja lag úr Pagliacci eftir Leon
Cavallo. Stansar þá allt fólkð og
stóð kym þar til Ami hafði lokið
söngnum. Kvaó þá við glymjandi
lófaklapp frá áheyrendum. I því
næsta kemur maður út úr húsinu
og býður þeim félögum inn og
upp á drykk. Ekki þorðu þeir að
þiggja boðið þótt þá langaði til
þess því það var ljúfur ylmurinn
af viskyinu, sem þcir fengu þama
inni. En þeir vissu ekki gjörla
hvar þeir vom staddir í borginni
og fóm því án tafar að leita að
samferðamönnum sínum, sem
þeir fundu fljótlega.
Islendingunum var nú boðið í
ölkjallara, þar sem hver og einn
mátti drekka svo sem hann fremst
gaL án þess aó borga. Notfærðu
sér það margir. Sindbað sagðist
ekki fara í þennan kjallara því
hann væri meira hallur undir
visky en bjór. Fleiri voru sama
sinnis og fóm ekki í kjallarann en
vildu heldur skoða borgina betur.
„Hvað viljið þið sjá meira?“, spyr
þá fararstjórinn. „Við viljum sjá
allt“, segir Sindbað. „Þá verðið
þið að koma í kátínuhús“, segir
hann og var það samþykkt sam-
hljóða.
Næturlífið
Ekki þurfti langt að fara til aó
finna slíkan stað og var þar óðara
ráðist til inngöngu. Skeði nú
margt í senn og má þó eigi nema
frá einum hlut í senn að segja.
Um leið og Islendingar gengu inn
í slotið kom svartur drjóli á móti
þeim, svipaóur á vöxt og Ami Jó-
hannsson. Hann leit snöggt yfir
hópinn og horfði á Ama lengur
en aðra, líkt og til að meta hvor
mundi hafa betur ef í harðbakka
slægi. Samtímis birtist kona ein
uppi á sviði, sem fór að dansa og
kasta af sér klæðum þangað til
ekkert var eftir utan smá pjatla á
einum stað, sem Pétur á Hjalta-
stöðum benti Bimi á Hofstöðum á.
Dreif nú að kvenfólk úr öllum
áttum og fékk hver og einn dömu
sér við hlið. Sindbað settist á
bekk nálægt sviðinu til að sjá bet-
ur konuna, sem þar var að leika
listir sínar. Um leió kernur kven-
maður, sem treóur sér niður við
hliðina á honum. Þetta var glæsi-
leg miðaldra kona sem mönnum
varð starsýnt á. „Englasvipur er á
hvarmi, undirheima bros á vör“.
Kemur þá doktor Helgi Sigurðs-
son til Sindbaðs og segin „Þama
ert þú kominn með fallegustu
konuna norðan Alpa“, og var
hann sjáanlega ekki laus við öf-
undsýki. Þá leggur hún hendina á
lærió á Sindbað og segir eitthvað
sem hann skildi ekki. Helgi túlk-
aði og segir að hún sé að biðja um
eitthvaó að drekka. Það væri til
siðs í svona húsum að herrann
gæfi dömunni drykk áóur en önn-
ur viðskipti hæfiisL Var nú pant-
aður vodki, -tvöfaldur - og skálað,
en tjáskipti gengu ekki greiðlega
því Sindbað kunni ekki mörg orð
í þýsku og hún ekkert í norður-
landamálum, en eitthvað í ensku.
Ekki var að sjá að daman væri
undir áhrifum víns og grunaði
Sindbað að hún hefði fengið eitt-
hvað léttblendi í sitt glas
þó aó hann væri látinn
borga fullt veró fyrir
bæði. A svona stöóum eru
ýmsar brellur notaðar til
að ná aurum af kúnnum
meóan eitthvað er eftir í
buddunni og honum síðan
hent út á götu.
Enginn tími var til að
eiga nánari kynni við kon-
umar, þó að sumir heföu
eflaust kosið þaó, en nú
varð aó hafa hratt á hæli
því halda átti til Salzburg
um kvöldið og eftir var að
ganga frá farangri og
greiða hótelreikninga.
Kvaddi nú Sindbað sína
dömu og sagði að hún
væri: „Queen of the house
[drottning hússins). Þá
brosti hún og þakkaði fyr-
ir. Ekki var laust við aó
undrunarsvipur kæmi á
konumar þegar Islending-
ar gengu út, enda hafa
þær ugglaust búist viö
meiri viðskiptum en raun
varðá.
Framhald.
Ókeypis smaor
Til sölu!
Til sölu vélsleðahjálmur, hand-
lóðasett, bullworkerstöng og
Panasonic vidcovél. Einnig brensín-
brúsar, burðarbogar á jeppa, flautur,
6 tonna tjakkur og framljós á
BMW 732. Upplýsingar í síma
588 I 756ákvöldin.
Til sölu stórt og vandað bama-
rimlarúm, hvítt að lit. Upplýs-
ingar að Skagfirðingabraut 35
t.h. í síma 453 5686.
Til sölu grátt leðursófasett,
3-t-l+l. Veið 35 þúsund. Upplýs-
ingar í síma 453 6269.
Til sölu hestakerra, sem tekur tvo
hcsta. Á sama stað óskast tík af
labradorkyni. Upplýsingar í síma
452 4495.
Til sölu Mazda sendibíll E 2200
árg. '88, disel. Duglegur vinnu-
bíll.Upplýsingar í síma 453 5744.
Til sölu lyftingabekkur, Wider.
Upplýsingar í síma 453 8105.
Húsnæði óskast!
íbúð óskast til leigu strax. Upp-
lýsingar í símum 453 5133
(Jóhann) og 453 5622 (Ragna).
Tapað - fundið!
Hefur einhver séð 5 mánaða litla
læðu, sem er búin að vera týnd
síðan á fimmtudagskvöld. Hún er
hvít að lit með stórum svörtum
doppum.
Körfubolti í íþróttahúsinu
á Sauðárkróki um helgina
Laugardagur kl. 16,00
1. deild kvenna:
UMFT - KR
Sunnudagur kl. 20,00.
DHL-deildin
UMFT-UMFN
Fjölliöamót 10. flokks fer fram bæöi
laugardag og sunnudag. Hefst þaö kl.
13,00 álaugardag.
Góðir áskrifendur!
Munið að greiða heimsenda gíróseöla
fyrir áskriftargjöldunum
Umboðsmenn fyrir
Æskuna og ABC
Vió viljum ráða umboðsmenn um allt land,
fullorðið fólk til aó safna áskrifendum fyrir
Æskuna og ABC. Góð sölulaun.
Einnig vantar okkur innheimtumenn
ásriftargjalda. Óskað er eftir skriflegum
umsóknum.
Upplýsingar gefur Nanna Marinósdóttir
í síma 551 9799.
Æskan og ABC
Eiríksgötu 5,
101 Reykjavík.