Feykir - 08.11.1995, Page 5
39/1995 FEYKIR5
Skagf irsk söngveisla
Mikið tónaflóð fyllti hió nýja
og glæsilega íþróttahús í Varma-
hlíð í Skagafirði í gærkveldi þegar
Skagfirska söngsveitin, Söng-
sveitin Drangey og söngflokkur-
inn Veirurnar, ásamt sjö ein-
söngvurum fluttu minningartón-
leika um Jóhann Pétur Sveins-
son lögffæðing ffá Varmalæk í
Skagafirði. Allt þetta sönglið tel-
ur fast að 140 manns, að sögn
formanns Skagfirsku söngsveit-
arinnar Sigurbjargar Stefánsdótt-
ur. Stjómendur vom þau Björg-
vin Þ. Valdimarsson og Snæ-
björg Snæbjamardóttir en undir-
leikari Vilhelmína Olafsdóttir.
Tónleikamir vom haldnir til
tekjuöflunar fyrir Menningarsjóó
Jóhanns Péturs og verða endur-
teknir í lítió breyttu formi í Fella
og Hóladómkirkju eftir viku og
veróur þá haldið upp á 25 ára af-
mæli Skagfirsku söngsveitarinn-
ar.
Snæbjörg var stjómandi söng-
sveitarinnar fyrstu 13 árin og
stjómar nú Söngsveitinni Drang-
ey, en Björgvin hefur stjómað
Skagfirsku söngsveitinni síðustu
12 árin.
A söngskránni vom 22 lög
öll eftir kunna skagfirska höf-
unda. Atti Jón Bjömsson 8 þeirra,
Grímur Gíslason.
Eyþór Stefánsson 8, Pétur Sig-
urðsson 4, Kristján Stefánsson 1
og Geirmundur Valtýsson 1.
Mikil fjölbreytni var í söng-
skránni og hvorki meira né
minna en 7 einsöngvarar: þær
ffænkumar Helga Rós Indriða-
dóttir og Margrét Stefánsdóttir,
Friðbjöm G. Jónsson, Asgeir Ei-
ríksson, Guðmundur Sigurðs-
son, Oskar Pétursson og Sigur-
jón Jóhannesson. Auk einsöngs-
ins sungu þau tvísöng og þrí-
söng, og lagið Vorið kom í nótt
eftir Jón Bjömsson flutti ein-
söngvarakvartett skipaður Helgu
Rós, Margréti, Ásgeiri og Sigur-
jóni.
Skagfirska söngsveitin og
Söngsveitin Drangey sungu
saman Ætti ég hörpu eftir Pétur
Sigurðsson við ljóð Friðriks
Hansen og lagið Björt nótt eftir
Jón Bjömsson við ljóð Davíðs
Stefánssonar.
Kom söngur einsöngvaranna
inn á milli flutnings kóranna og
setti léttan blæ á heildar söng-
skrána sem öll einkenndist að
samhug flytjenda og gleði. Hæst
reis þó tónaflóó þessa fjölmenna
söngliðs er að sameinaðist allt
og söng að lokum Skín við sólu
Skagafjörður, og hinn mikli
fjöldi áheyrenda reis úr sætum í
virðingarskyni við söngfólkið og
héraðið.
Hér verður ekki gerö tilraun
til þess að leggja listrænt mat á
umrædda tónleika en ekki fer
það á milli mála að það er mikið
afrek að uppfæra slíka söng-
veislu í byrjun vetrarstarfs og
undmn að flutningurinn tók ekki
nema ufn hálfa aðra klukku-
stund, sem tókst lyrir agað skipu-
lag og stjómun en ekkert af efii-
inu var endurtekið þrátt fyrir
ákafar tilraunir áheyrenda þar
Kvartett skipaður ungum og efnilegum einsöngvurum: Sigur-
jón Jóhannesson, Margrét Stefánsdóttir, Helga Rós Indriða-
dóttir og Ásgeir Eiríksson.
um. Mátti þó ljóst vera að með
því var komið í veg fyrir að gert
væri upp á milli flytjendanna.
Meðal áheyrenda í Varma-
hlíð í gærkveldi var ekkja Jó-
hanns Péturs og móðir hans
ásamt fjölda skyldmenna og
vina. Er ástæða til að samfagna
þessu fólki svo og söngfólkinu
sjálfu með þetta vel heppnaða
kvöld.
Tónleikamir vom haldnir til
þess að heiðra minningu Jó-
hanns Péturs og afla þeim sjóði
tekna sem tengdur er naíni hans
og ætlað það hlutverk að styrkja
fatlaða til náms.
Hvorutveggja tókst vel og
eiga allir er að stóðu þakkir fyrir.
22. október 1995
Grímur Gíslason.
FATASKÁPUR 80 x 205 cm
VERÐFRÁ 26.400,- stgr.
BAÐINNRÉTTING
VERÐ FRÁ 56.100,- stgr.
KOMIÐ OG LEITIÐ TILBOÐA
FAGLEG RÁÐGJÖF Á STAÐNUM
ELDHÚ SINNRÉTTTN G
VERÐFRÁ 161.000,- stgr.
AFGREIÐSLUTÍMIER1 - 3 VIKUR FRÁ
STAÐFESTINGU PÖNTUNAR.