Feykir


Feykir - 10.01.1996, Qupperneq 5

Feykir - 10.01.1996, Qupperneq 5
1/1996 FEYKIR5 Gengið úr kirkju í Ketu. Eftir að fullhugar höfðu hlaupið um syllur og skúta efst í bjarginu, flykktumst við aftur í bílinn. Næsti áfangi var ekki langt undan - aðeins út að Ketu. Þegar sessunautur minn, Bjöm Egilsson, renndi augum að kirkj- unni og yfir sviðið, varð honum að orði að hér væri snyrtilegt umhverfi við kirkjuna þennan friðhelga stað. Hér er húsuni haldið við, hér er snyrtistaður. Drottni veita vaskir lið, veit og sér hver maður. Engir munu efa það, allt íföstum skorðum, hér í þessum helga stað, úr hefluðum viðarborðum. Sumir settust undir kirkju- vegg, í skjóli með kaffibrúsa, en stundin varð eigi næðissöm fyrir vindinum, og feginn varð hver skjólinu í bílnum. Húsmóðirin í Ketu, Hrefna Gunnsteinsdóttir, leiddi aðra í kirkju. Margir gengu í garðinn til að huga að leiðum horfmna ástvina og enn aðrir höfðust ekki út úr bíl. Var því ákveðið að halda áffam ferðinni, að Hrauni, ef þar gæfist betra tóm og næði til snæðings. Var svo gert. Síðari hluti greinarinnar birtist í blaðinu á næstunni. Gengi Tindastóls í úrvalsdeildinni: Grimmir eftir jólin Tindastólsmenn hafa komið grimmir til leiks í úrvalsdeild- inni að loknu jólafru. Þeir voru aðeins hársbreidd frá því að leggja hið firnasterka lið Hauka að velli í leik syðra sl. fimmtu- dagskvöld og völtuðu síðan yfir Akurnesinga á Skaganum á sunnudagskvöldið. Tindastóll er nú í 6. sæti deildarinnar jafii KR með 22 stig, jafhmörg stig og liðið fékk á síðasta keppnis- tímabili. IR-ingar og Skalla- grímsmenn eru á næstu grös- um, IR með 20 og Skallagrímur 26. Tíu umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Framan af leiknum gegn Haukum leit út fyrir að sunnan- liðið ætlaði að innbyrða sigurinn ömgglega. Staðan í leikhléi var 41:30 fyrir Hauka og þeir juku síðan forskotið í 18 stig í byrjun seinni hálfleiks. Þá var það sem Tindastólsmenn tóku við sér og með John Torrey í broddi fylk- ingar minnkuðu þeir muninn jafnt og þétt og komust yfir, og það vom Haukamir sem máttu þakka fyrir að ná ffamlenginu. Þar kom reynslan Haukamönnum að góð- um notum og úrslit leiksins urðu 86:82 þeim í vil. Torrey var lang- atkvæðamestur Tindastólsmanna með 39 stig, Ómar Sigmarsson gerði 11, Láms Dagur og Hinrik Gunnarsson 10 hvor, Pétur Guð- mundsson 9 og Atli Þorbjömsson 3. Láms Dagur fór síðan á kost- um strax í upphafi leiksins á Skaganum og skaut heimamenn í kaf. Hann skoraði fimm þriggja stiga körfúr í röð og var búinn að setja 22 stig fyrir leikhlé. Tinda- stóll hafði mikla yfirburói í leikn- um, staðan í leikhléi var 55:37 og sigurinn var aldrei í hættu. Loka- tölur urðu 89:77 fyrir Tindastól. Torrey var stigahæstur með 25 stig, Láms Dagur gerði 23, Hinrik 12, Pétur 10, Oli Barðdal 6, Ómar 5 og Baldur Einarsson 2. „Þessi sigur eykur til muna líkumar á sæti í úrslitakeppninni. Nú er bara að taka einn leik í einu og tryggja sætið“, sagði Páll Kol- beinsson þjálfari. Aðspurður sagði hann það ekki skipta höfúð- máli hvaða liði Tindastóll lenti á móti ef úrslitasætið næðisL „Fjög- ur efstu liðin em það jöfn“, sagði Páll. Hlé verður nú gert á deildar- keppninni vegna undanúrslita í Bikarkeppninni. Næsti leikur Tindastóls í úrvalsdeildinni verð- ur gegn Skallagrími á Sauðár- króki fimmtudagskvöldið 18. jan- úar. Álfar á ferli í Varmahlíð Fjölbreytni skemmti- og menningarlífs Skagfirðinga jókst um hátíðarnar, þegar Ungmenna- og íþróttafélagið Smári stóð fyrir því að endur- vekja skemmtun sem Ung- mennafélagið Fram stóð fyrir í Varmahlíð um árabil og jafnan var haldin á þessum tíma. Það er álfadans og brenna, sem nú var haldin að nýju laugardagskvöldið 30. desember og voru þá 18 ár lið- in frá því síðast var haldin skemmtun þessarar tegundar í Varmahlíð. Fjölmenni var mætt við fé- lagsheimilið Miðgarð á laugar- dagskvöldið þegar skemmtunin hófst og er talið aó um 600 manns hafí fylgst með og urðu einhverjir frá að hverfa þegar seinni hluti álfadansins hófst, en hann fór fram inni í félagsheim- ilinu. Veður var hið fegursta, stjömubjart og logn, en 10 stiga ffost og nokkuð kalt. Eftirvænt- ing ríkti þegar álfamir og fylgd- arlið þeirra, ýmsar kynjavemr s.s. púkar og ljósálfar komu úr skógræktinni á íþróttavöllinn þar sem brennunni hafði verið kom- ið fyrir. I hlutverki álfakóngs og álfadrottningar vom þau Stefán Indriðason og Hjördís Tobías- dóttir, en auk þeirra dönsuðu tólf Hersingin komin inn í félagsheimilið Miðgarð þar sem seinni hluti álfadansins fór fram, en alls stóð skemmtunin yfir í tæpa tvo tíma. Myndir/Soffia Kristjánsdóttir. pör sem þau hjónin Sigurður Karl Bjarnason og Jóhanna Karlsdóttir höfðu þjálfað frá nóvemberbyrjun. Kristján Stef- ánssonar ffá Gilhaga lék á harm- onikku undir dansinum. Búningar dansaranna voru hinir skrautlegustu. Enn var til talsvert af búningum frá því skemmtanimar vom haldnar fyr- ir um 20 ámm. Vom þeir endur- bættir og bætt við fleiri búning- um. Forráðamenn Smára eru mjög ánægðir með hvemig til tókst með skemmtunina og því hreint ekki ólíklegt að svona skemmtun verði haldin aftur. Þjóðdansafólkið lét ekki þar við sitja heldur hélt hópurinn skemmtun fyrir vistmenn á Hjúkmnar- og Dvalarheimilinu á Sauðárkróki sl. laugardag. Og fékk eins og í Varmahlíð góðar móttökur og skemmti gamla fólkið sér mjög vel. BORGARAFUNDUR um aðalskipulag Sauðárkróks 1994-2014 Borgarafundur verður haldinn í Safnahúsinu á Sauöárkróki mánudaginn 15. janúar kl. 20,30. Kynnt verða drög aö aðalskipulagi fyrir Sauöárkrók 1994-2014. Byggingarfulltrúi.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.