Feykir


Feykir - 22.04.1998, Blaðsíða 1

Feykir - 22.04.1998, Blaðsíða 1
22. apríl 1998, 15. tölublað 18. árgangur. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Hvað skyldi það vera sem vekur kætí hjá þeim Jóni Magnússyni hjá Byggða- stofnun, Pétri Valdimarssyni í Hegra og Haraldi Þór Jóhannessyni bónda í Enni? Kannski það sé pólitíkin, enda má bóast við að hún fari að lifna eins og grösin á næstunni. Fimm sækja um skóla- stjórastöðuna á Krók Fimm sækja um skólastjórastöðu nýs sameinaðs grunnskóla á Sauð- árkróki, en samþykkt hefur verið að Barna- og Gagnfræðaskólinn fari undir eina stjóm í sumar og nýr sameinaður skóli taki til starfa í haust. Þrír umsækjenda em starf- andi skólamenn á Króknum. Umsækjendur eru í stafrófsröð: Bjöm Bjömsson skólastjóri Bamaskóla Sauðárkróks, Bjöm Sigurbjömsson skólastjóri Gagnfræðaskóla Sauðár- króks, Guðlaugur Oskarsson skólastjóri Kleppjámsreykjaskóla í Borgarfirði, Jón Einar Haraldsson skólstjóri Gmnn- skólans Eiðum og Óskar G. Bjömsson yfirkennari við Gagnfræðaskóla Sauð- árkróks. Að sögn Ásbjamar Karlssonar for- manns skólanefndar vom umsóknim- ar kynntar á fundi skólanefndar í gær og stefnt að því að ganga frá ráðningu í skólastjórastöðuna sem fyrst. —IClfeH^Íff eNjDI— ^ 5 Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 o SCQ • ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA O • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA ö) • BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Kaupfélag Skagfírðinga Verulegur bati á sam- stæðureikningi milli ára Heldur betri útkoma varð á rekstri Kaupfélags Skagfirðinga á síðsta ári en árið á undan. Hagnaður fyrir skatta var 15,2 milljónir í fyrra en var 10,2 milljónir árið áður. Hagnaðurinn eftír skatta í íyrra var 10,5 miUjónir, en ef dótturfyrirtækin em tekin með í reikninginn var hagnaðurinn 8,6 milljónir. Það er svokallaður sam- stæðureikingur og þar hefúr afkoman batnað um 172 miUjónir milU ára, en 162,5 miUjóna tap var á samstæðu- reikningi rekstrarárið 1996. Þessum umsnúningi er að þakka bata í rekstri Fiskiðjunnar Skagflrðings hf. Að sögn Siguijóns Rafnssonar full- trúa kaupfélagsstóra er gert ráð fyrir að rekstur kaupfélagsins verði svipaður í ár og síðasta ár. Fjárfestingar félagsins síð- ustu árin hafa verið í takt við afskriftim- ar og á síðasta ári vom þær talsverðar í verslunarrými félagsins; aðallega vegna breytinga í Skagfirðingabúð, en lang- mestar vom þær þó í fórðuverksmiðj- unni nýju í Vallhólma. „Verksmiðjan fer mjög vel af stað í rekstri og gengur vel”, segir Siguijón. Tekjur Kaupfélags Skagfirðinga á síðasta ári vom 2.465 milljónir og jukust um rúm 10% frá árinu á undan. Veltan með dótturfyrirtækjunum sem mynda samstæðureikning KS em tæpir fimm milljarðar. Hjá KS og dótturfýrirtækjum starfa nú um 480 manns. Aðalfundur fé- lagsins verður haldinn á Sauðárkróki nk. laugardag, 23. april. Áfengisnevsla unglinga á Sauðárkróki Ástandið síst betra en í miðbæ Reykjavíkur eða í Bmðholtinu ,JMér sýnist ástandið í áfengismálum ungiinga vera síst betra hér en í mið- bæ Reykjavíkur og Breiðholtínu sem ég þekki mjög vel til. Hér horfi ég á unglinga bera áfengi inn og út úr fé- lagsheimilum nánast eins og þá lystir og dyraverðir virðast ekki ráða neitt við neitt. Við vorum með forvamar- fund í gær og mér finnst áhugi póli- tíkirsa á svæðinu ekki mikill, einung- is tveir vom þar mættir á 30 manna fundi”, segir Ámi Pálsson rannsókn- arlögreglumaður á Sauðárkróki. Ámi segir að sér blöskri áfengis- neysla unglinga á Sauðárkróki og eitt- hvað verði að gera í þeim málum. For- eldrarölti verði komið á að nýju og sjálf- ur ætli hann sér að fylgjast vel með á dansleikjum í sumar. Þá má rekja lík- amsárás sem kærð var til lögreglunnar á Sauðárkróki fyrir skemmstu til áfengis- neyslu unglinga. Þar réðust nokkir ung- lingar á unglingspilt úr sveitinni. Piltur- inn og móðir hans kærðu atburðinn og ber móðirin að rif hafi brotnað. Atburð- urinn flokkast undir grófa árás. Rann- sókn málsins er lokið. Drengimir hafa viðurkennt brot sitt enda liggur atburðar- rás ljós íyrir, að sögn lögreglu. □

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.