Feykir - 22.04.1998, Síða 8
22. aprfl 1998,15. tölublað, 18. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
I
l
Jón Benediktsson bóndi á Kleif og búrhvalurinn sem rak í Kleifarvík í síðusut viku,
Stærðar búrhvalur á Skaga
Stærðar skepnu, um 14
metra langan búrhval, rak
síðdegis sl. fimmtudag á fjöra
við bæinn Kleif á Skaga, sem
er skammt frá Selvík þaðan
sem Kolbeinn ungi réri til
Flóabardaga. Þegar Jón
Benediktsson bóndi á Kleif
leit niður í víkina við bæinn
rétt fyrir kvöldmat til að gá
að rekaviði varð hann skepn-
unnar var. Sagði hann greini-
legt að hún hafi þá verið
nýdauð og svo að sjá á legu
hennar og umróti í fjöru-
borðinu að hún hefði reynt að
flýja örlög sín.
Sléttur sjór var á Skagafirði
sl. fimmtudag eins og dagana á
undan. Jón bóndi á Kleif óttast
að losna ekki við hvalinn af fjör-
F
T
F
L í S A R
Aöalsteinn J. Maríusson
Víðihlíð 35.
s: 453 5591
Fars: 853 0391
>iökl. 17-19 eða
tir samkomulagi
Umboö fynr
\ Traustar Flísar
rMúrvið-
t / gerðarefni
/ - flotgólf o.fl.
unni og torvelt muni reynast að
koma hræinu burtu. Legustaður
hans er aðeins um 500 metra
austan við bæinn og hætta á að
austanáttin, sem stundum getur
verið ríkjandi á þessum slóðum,
beri ódauninn frá hræinu.
„Það verður ólíft héma ef
ekki tekst að koma hræinu
burtu. Mín fyrstu viðbrögð
verða að leita til starfsmanns
heilbrigðiseftirlitsins á Sauðár-
króki. Ætli inegi ekki segja að
þama muni fyrst reyna á sam-
eininguna”, segir Jón bóndi í
gamansömum tón.
Grynningar em inn að fjör-
unni þar sem hvalurinn liggur,
skerjótt úti fyrir og ófært skip-
um. Það virðist því sem það
gæti orðið þrautin þyngri að
koma hræinu af íjörunni, en
eins og nú háttar er erfitt að
koma að þyngri tækjum til
flutnings á dýrinu, sem þyrftu
þá að vera stór bómukrani og
vömbfil með tengivagn, en lflc-
lega skiptir þyngd hvalsins ein-
hveijum tugum tonna.
Öllu starfsfólki
Yöku sagt upp
Öllu starfsfólki saumastof-
unnar Vöku á Sauðárkróki,
uni 15 manns, hefur verið
sagt upp störfum. Ástæðan
er erfiður rekstur og verk-
efnaskortur, en vonast er til
þess að verkefnastaðan muni
batna þegar líður á vorið, og
gæti þá orðið um endurráðn-
ingar að ræða.
Allt frá því að Sauðárkróks-
bær tók við rekstri Vöku fyrir
sex ámm hefur reksturinn verið
erfiður. Ekki hefur tekist að
ráða fram úr markaðsmálum og
sala á erlenda markaði bmgðist.
Að sögn Snorra Bjöms Sig-
urðsson bæjarstjóra hefur Sauð-
árkróksbær á þessum sex ámm
látið um 50 milljónir króna til
reksturs saumastofunnar. For-
ráðamönnum bæjarins hefur
þótt ástæða til að freista þess að
halda starfseminni áfram, sök-
um þess að atvinnu fyrir full-
orðnar konur hefur skort á
svæðinu. Störfin í Vöku em
sérhæfð og ljóst að konum sem
þar vinna hefði gengið erfiðlega
að komast í aðra vinnu.
Húnavakan byrjuð
Húnavakan hófst um síðustu
helgi og stendur að þessu sinni
fram til föstudagskvöldsins 1.
maí. Jafnan hefur verið venj-
an að Húnvetningar kveðji
vetur og fagni sumri með
Húnavöku og svo er einnig
nú. Vakan hófst sl. föstudags-
kvöld með söngskemmtun
sem bar yfirskriftina „Söngur
um sumarmál”. Fjölmenni
var samankomið í félagsheim-
ilinu þar sem Skagfirska
söngsveitin, Karlakór Ból-
staðahlíðarhrepps, Samkór-
inn Björk og Rökkurkórinn
úr Skagafirði sungu.
Við upphaf Húnavöku opn-
aði Nikulás Sigurðsson læknir
sýningu á vatnslitamyndum sem
verður opin fram til 1. maí. Á
sunnudag var opið hús í félags-
heimilinu fyrir eldri borgara. Þar
var boðið upp á kaffiveitingar,
harmonikkuleik félaga úr harm-
onikkuklúbbnum og línudans og
skemmti gamla fólkið sér kon-
unglega.
Húnavakan heldur síðan
áffarn á morgun, sumardaginn
fyrsta, með skátamessu kl. 11 í
Blönduóskirkju. Eftir hádegið
verður síðan á dagskrá sumar-
skemmtun Grunnskólans á
Blönduósi. Á laugardag verða
síðan jazztónleikar í félagsheim-
ilinu með hinni þekktu sveit
Kúran swing. Um kvöldið verð-
ur svo á sama stað hagyrðinga-
kvöld og harmonikkuball. Þar
koma fram þrír alþingismenn:
SighvaUir Björgvinsson, Jón
Kristjánsson og Hjálmar Jóns-
son, ásamt hagyrðingum úr röð-
um heimamanna Óskari Sigur-
finnssyni í Meðalheimi, Skarp-
héðni Einarssyni á Blönduósi og
Jóhanni Guðmundssyni í Holti.
Á harmonikkuballinu leika fjór-
ar sveitir, frá Nikkólínu í Dala-
sýslu, Skagfirðingum, svo og
Vestur- og Austur-Húnvetningum.
Sunnudaginn 26. apríl verður
síðan ársþing USAH, en ung-
mennasambandið stendur fyrir
Húnavökunni sem fyrr. Vökunni
lýkur svo með dagskrá á degi
verkalýðsins 1. maí. Þá verður
um miðjan daginn opið hús í fé-
lagsheimilinu í boði stéttarfé-
lagsins Samstöðu. Kaffiveiting-
ar, ávarp dagsins, söngur og
margt fleira verður þar á dag-
skrá. Hljómsveitin Sixties sér
síðan um ijörið á lokadansleik
Húnavöku um kvöldið.
Heimismenn á fullu
í Sæluvikunni
Að vanda kemur Karlakórinn
Heimir talsvert við sögu í Sælu-
vikunni sem hefst nk. sunnudag.
Fimmtudagskvöldið 30. apríl
verða Heimismenn með tónleika
á sal Bóknámshúss Fjölbrauta-
skólans. Stórtónleikar verða síð-
an í Miðgarði laugardagskvöldið
2. maí, þar sem þrír kórar syngja
auk Heimismanna. Ekki er of-
sögum sagt af vinsældum kórs-
ins, húsfyllir var í Akureyrar-
kirkju sl. laugardag og í kvöld
verður Heimiskvöld á Hofsósi.
Heimismenn verða með svip-
aða söngdagskrá á tónleikunum í
Bóknámshúsinu og verið hefur á
Heimiskvöldum í vetur. Þá syng-
ur einnig kór Fjölbrautaskólans
undir stjóm Hilmars Sverrisson-
ar við undirleik Ingibjargar Jóns-
dóttur. Sem fyrr stjómar Stefán
R. Gíslason Heimi, undirleikarar
em Thomas Higgerson og Jón
St. Gíslason.
Á stórtónleikunum í Mið-
garði 2. maí syngja auk Heimis-
manna Rökkurkórinn, Karlakór
Rangæinga og Samkór Suður-
Qarða. Að vanda er búist við fjöl-
menni í Miðgarði þetta kvöld, en
að söngskemmtuninni lokinni
mun Hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar leika fyrir dansi.
Gæðaframköllun
BÓKABtJÐ
BRY1«ARS