Feykir - 10.06.1998, Qupperneq 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Góð þátttaka var í hátíðahöldunuin á sjómannadaginn, en hann var að venju haldinn hátíð-
legur í öllum sjávarplássum kjördæmisins. Myndin er frá hátíðahöldunum á Sauðárkróki.
Rekstur KVH í jafhvægi í fymi
Fiskiðjan Skagfirðingiir hf
Afkoman batnað
stórlega á þessu ári
Rekstraruppgjör Fiskiðjunn-
ar Skagfnðings hf. fyrstu átta
mánuði rekstrarársins, það er frá
september sl. til apríl á þessu
ári, liggur nú fyrir. Rekstrar-
hagnaður tímabilsins er rúm 61
milljón króna, en þar af er sölu-
hagnaður 5,6 milljónir.
Að sögn Jóns E. Friðriks-
sonar íiramkvæmdastjóra FISK
hefur mesti umsnúningurinn
orðið í landvinnslunni, útgerð-
arþátturinn er í svipuðu horfi og
áður. Jón segir að aukin áhersla
hafi verið lögð á frystinguna að
undanfömu og einhver aukning
orðið á tjölda starfsfólks, en
tæplega 50 manns starfar í
vinnslunni í dag. Aðspurður
sagði Jón að engin áform væru
uppi í dag að ijölga frystiskip-
um hjá félaginu, en sá mögu-
leiki var skoðaður á tímabili.
„Bilið milli landvinnslu og
sjófrystingar hefur verið að
minnka og meðan ég sé land-
vinnsluna og ísfiskeríið skila
því sem það er að gera ídag, sé
ég ekki þörf breytinga", segir
Jón Friðriksson.
Fjárfestingar FTSK á tímabil-
inu nema rúmlega 200 milljón-
um, mestmegnis vegna kaupa á
veiðiheimildum. Veiðar og
vinnsla í maí gengu mjög vel og
vom tekjur skipanna í þeini
mánuði rúmlega 200 milljónir,
þar af 150 milljónir vegna veiða
á úthafskarfa.
Sveitarstjóm Skagafjarðar
Hátíðarfimdur í
Gilsstofii á morgun
Hagnaður varð af rekstri
Kaupfélags Vestur-Húnvetninga
á Hvammstanga á síðasta ári
upp á 40,827 milljónir eftir
skatta. Hagnaðurinn er tilkom-
inn vegna söluhagnaðar eigna
upp á 60,370 milljónir, slátur og
frystihúss til Norðvesturbanda-
lagsins. Ef ekki er tekið er tillit
til söluhagnaðar var rekstarút-
konta í kringum núllið í fyrra,
að sögn Gunnars V. Sigurðsson-
ar kaupfélagsstjóra.
Að sögn kaupfélagsstjóra
var útkoman í fyrra heldur lak-
ari en árið á undan og veldur þar
einkum versnandi afkoma
verlunarinnar, en á síðasta ári
skilaði hún einungis 10,5 ntillj-
ónum upp í sameiginlegan
kostnað í stað 20 milljóna árið
áður. Gunnar V. Sigurðsson seg-
ir skýringuna á þessu einkum
vera þá miklu samkeppni sem
ríki í versluninni. Kappkostað sé
að halda vömverðinu sem
lægstu á sama tíma og tilkostn-
aðurinn aukist. Þá var verri út-
koma á fjármagnslið rekstrar-
reiknings en áður, en þar hefur
kaupfélagið venjulegast verið
með vaxtatekjur. Nú vom
vaxtagjöldin 2,1 milljón króna
hærri.
Kaupfélag Vestur-Húnvetn-
inga á Hvammstanga keypti á
síðasta ári þau 20% sent Kaup-
félag Hrútfirðinga áttí í mjólkur-
samlaginu á Hvammstanga og
er það nú algjörlega í eigu
KVH. Starfsmenn KVH vora
um síðustu áramót 46 í 38
stöðugildum og er þar mjólkur-
samlagið meðtalið.
Fyrsti fundur nýkjörinnar
sveitarstjómar í sameinuðu
sveitarfélagi í Skagafirði verð-
ur haldinn í Gilsstofu við
Glaumbæ á morgun, fimmtu-
daginn 11. júní, og hefst kl.
14,00. Á dagskrá em kosningar
í helstu störf sveitarstjómar-
innar og ennig verður nafti hins
nýja sveitarfélags ákveðið á
fundinum, en það mun vera
löngu ákveðið, nafnið Skaga-
ljörður.
Ákveðið var að hafa fyrsta
fund nýrrar sveitarstjómar með
nokkmm hátíðarblæ og halda
hann í Gilsstofu þar sem íyrsti
fundur sýslunefndar Skagfirð-
inga var haldinn árið 1874.
Hús þetta hefur farið víða, eins
og fram kom í grein í síðasta
blaði Feykis, og var meðal
annars lengi notað sem stjóm-
sýsluhús Skagfirðinga, en á
síðasta ári lét héraðsnefnd
Skagfirðinga endurbyggja það
í Byggðasafninu í Glaumbæ.
Vegna þessa þótti nýrri sveit-
arstjóm við hæfi að hefja störf
sín í þessu sögufræga húsi.
Mokveiði í Blöndu
Mokveiði hefur verið í Blöndu ffáþví veiði hófst í ánni 5. júní sl.
Um hádegisbil á mánudag vom komnir 65 laxar úr ánni. Þetta er
besta byrjun veiðitímabils í Blöndu í manna minnurn. Veiðin byij-
aði reyndar einnig mjög vel í fyrra en samt ekki eins vel og nú. Áin
er mjög tær um þessar mundir, enda em leysingar efra með minnsta
móti eftir snjóléttan vetur.
Aðra sögu er að segja af veiði í Laxá á Ásum. I gær hafði ekki
neinn fiskur komið upp úr ánni ffá því byijað var 1. júní, en Jóhanna
Kristjánsdóttir veiðivörður segist engar áhyggjur hafa af þessu.
„Veiði hefur oft verið mjög dræm til að byija með og t.d. komu ekki
nema þrír fiskar úr ánni fyrstu dagana í fyrra. Það er oft sem byijar
ekkert að veiðast fyrr en 10.-12. og þannig verður það sjálfsagt
núna”, sagði Jóhanna.
CX5 —KTeN£Íf! chjDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 O
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
o • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA 0)
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
jm
bílaverkstæði
Simi: 453 5141
Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
^Bílaviðgerðir & Hjólbarðaviðgerðir
& fíéttingar Sprautun