Feykir - 10.06.1998, Page 2
2FEYKIR 22/1998
Samstarf framhaldsskól-
anna á Norðurlandi
Sl. föstudag var undirritaður í
húsnæði Menntaskólans á Akur-
eyri að viðstöddum fulltrúa
menntamálaráðuneytisins, sam-
starfssamningur framhaldsskól-
Stuðull
Tölvubúnaður
Borgarmýri 1,
sími 453 6676
Viðgerðarþjónusta
á sjónvörpum,
myndbandstækjum,
tölvum, prenturum
ogöðrum
rafeindatækjum.
Verð kr. 16.900
Úrval af nýjum
leikjum
Nokia 3110
Frábær GSM sími
Þyngd: 187 gr.
Rafhlaða: 95 klst. bið,
2,45 klst. tal.
Kr. 19.900
anna fimm á Norðurlandi:
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki, Framhalds-
skólans á Húsavík, Framhalds-
skólans á Laugum, Menntaskól-
ans á Akureyri og Verkmennta-
skólans á Akureyri.
Markmið samningins er m.a.
að bjóða nemendum á Norður-
landi eins tjölbreytt nám á fram-
haldsskólastigi og kostur er svo
unnt sé að tryggja þeim sem
bestan undirbúning undir frekara
nám og störf. Einnig að draga úr
þeim vanda sem stafað getur af
fámenni eða vanbúnaði í ein-
stökum skólum og nýta aðstöðu
og kennslukrafta á Norðurlandi í
sem flestra þágu.
Ekki náðist í skólameistara né
aðstoðarskólameistara FNV til
að leita álits þeirra á
þessufyrirhugaða samstarfi, en
ljóst er að það hlýtur að hafa
talsverða þýðingu og tilkoma
samningsins skapa aukna
möguleika á að efla skólastarfið.
Samstarfsnefnd um samning-
inn skipa allir skólameistaramir
fimm. Verkefnisstjóri verðurráð-
inn til starfa, en kostnaður af sam-
starfinu er áætlaður 3,9 milljónir
króna á ári á þriggja ára samn-
ingstíma, en þá verður samn-
ingurinn endurskoðaður í ljósi
fenginnar reynslu. Kostnaðurinn
skiptist jafnt á milli ráðuneytis og
skólanna fimm.
Útskrifaðist
með 208
einingar
Við útskrift hjá Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á dögunum
var einn nemenda brautskráður
með sérlega margar námseiningar,
líklega með því mesta sem gerist á
landinu að sögn Jóns F. Hjartar-
sonar skólameistara. Þetta var
Skagfirðingurinn Gunnar Búason,
en hann útskrifaðist með 208 ein-
ingar en til stúdentsprófs þarf 140
einingar. Gunnar hlaut viðurkenn-
ingu fyrir ágætan alhliða námsár-
angur á stúdentsprófi eðlisfræði-
og hagfræðibrautar, einnig við-
skiptabrautar og grunndeildar raf-
iðna. I síðasta blaði misritaðist
föðumafn Gunnars Búasonar, var
sagður Bóasson. Sömuleiðis
Ágústs Jóhanns sem fékk viður-
kenningu fyrir ágætan alhliða
námsárangur í sérgreinum iðn-
brautar vélsmíði. Ágúst er Þor-
bjömsson en ekki Þorbergsson.
Feykir biðst velvirðingar á að hafa
rangfeðrað þessa ágætu náms-
menn.
Svipmyndir £rá sjómannadeginiim á Sauðárkróki
Fjölmenni var samankomið í íþróttahúsinu á Blönduósi nýlega þegar Sinfoníuhljómsveit
Islands kom í heimsókn og kórar staðarins sungu með sveitinni. Mynd/Sigurður Kr.
Kemur út á miðvikudögutrt. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægissttg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box4,
550 Sauðárkróki. Síinar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsími 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang:
feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaritari: Öm Þórarinsson.
Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Ámason.
Áskriftarverð 170 krónur hveit tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítl & Svart hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.