Feykir - 10.06.1998, Blaðsíða 3
22/1998 FEYKIR 3
Stjórn Prestafélags Hólastiftis ásamt heiðursgestum og fyrrverandi og núverandi sóknar-
prestum Sauðárkróks við húsið sem prestafélagið var stofnaði í á sínum tíma, en þá bjó þar
sr. Árni Björnsson. Húsið er Lindargata 9.
Fyrsti fundurinn í Húnaþingi í dag
„Skrifstofa Húnaþings góð-
an daginn” segir símastúlkan á
hreppsskrifstofunni á Hvamms-
tanga, en hins vegar var í aug-
lýsingu um starf sveitarstjóra
talað um sveitarstjóra í Vestur-
Húnavatnssýslu. Vestur-Hún-
vetningar virðast því ætla að
halda að sér höndum í fyrstu
með notkun nafns á nýju sveit-
arfélagi, Húnaþingi.
I dag, miðvikudag, verður
fyrsti fundur sveitarstjómar í
nýju sameinuðu sveitarfélagi í
Vestur-Húnavatnssýslu. Gengið
hefur verið ffá verkaskiptingu í
stærstu embætti eins og getið
var í síðasta Feyki.
Sfðasti fundur fráfarandi
hreppsnefndar á Hvammstanga
var haldinn sl. laugardag. Að
sögn Guðmundar Guðmunds-
sonar sveitarstjóra var um
venjulegan afgreiðslufund að
ræða, en jafnframt kveðjufund
sveitarstjómaiinnar. Sameining
sveitarfélaganna tók gildi í V.-
Hún. sem og á fleiri svæðum
þennan dag, 6. júní.
Prestafélag Hóla-
stiftis hins forna
100 ára
Sl. mánudag 8. júní voru 100
ár liðin frá stofnun elsta
prestafélags á íslandi. Það
var stofnað á Sauðárkróki í
húsi sr. Árna Björnssonar
sóknarprests. Af því tilefni
kom stjóm félagsins saman á
Sauðárkróki, í safnaðar-
hcimili Sauðárkrókskirkju
til háh'ðarfundar. Helsta cfni
fundarins var að heiðra fyrr-
um formenn félagsins og
biskupa, þá sr. Pétur Sigur-
geirsson, sr. Sigurð Guð-
mundsson og sr. Bolla Þ.
Gústavsson.
Annað helsta efni fundarins
var að ákveða annað sem gert
verður til hátíðarbrigða á aldar-
afmælinu. Ætlunin er að njóta
hátíðarinnar allt afmælisárið,
að sögn sr. Kristjáns Bjöms-
sonar sóknarprests á Hvamms-
tanga sem er nýkjörinn for-
maður félagsins. Afmælisár
endar með útgáfu á Tíðindum
Prestafélags hins foma
Hólastiftis, sem er tímarit fé-
lagsins. Það kom fyrst út árið
1899 og hafa aðeins fáein hefti
komið út síðan af þessu elsta
tímariti presta á íslandi, sem
enn kemur út.
Markmið prestanna sem
stofnuðu félagið var „að glæða
sannan kristnidóm og áhuga í
kristnidómsmálum og kirkju-
legri starfsemi” eins og segir
enn í lögum félagsins frá 1898.
Meðal helstu hvatamanna og
stofnenda má nefna fyrstu for-
menn félagsins, þá sr. Hjörleif
Einarsson Undirfelli og sr.
Zophanías Halldórsson Viðvík,
auk sr. Bjöms Jónssonar
Miklabæ. Eftir að embætti
vígslubiskupanna var stofnað
vom þeir yfirleitt sjálfkjömir
formenn, enda var það draum-
ur prestanna að Hólastóll yrði
endurreistur. Þessir formenn
vom sr. Geir Sæmundsson, sr.
Hálfdán Gíslason, sr. Friðrik J.
Rafnar og sr. Sigurður Stefáns-
son, auk þeirra sem nefndir
vom áður og síðar kontu.
Vorið er komið þegar veiðimennimir taka stangir sínar og
fara að renna fyrir fisk í Vesturósnum, segja sumir á Krókn-
um. Það er vitaskuld langt síðan að Valli Björns og margir
fleiri fóm að sjást niður við Osinn, og Birgir Friðriksson
(Malla skó) er jafnan einn af þeim fengsælustu við Osinn. Hér
er hann bara með hluta af aflanum sem hann hafði fengið dag
einn sem ljósmyndari Feykis átti leið um Osinn.
föstudaginn 12. júní
20% afsláttur
af herrafatnaði
Diego verður á staðnum
og veitir faglega ráðgjöf!
Tilboð
Dömublússur 1.990 kr.