Feykir - 24.03.1999, Qupperneq 3
11/1999 FEYKIR3
Fjöldi söngfólks skemmti
á styrktartónleikum
Styrktartónleikar til minningar um
Kristján Frímannsson bónda á Breiða-
vaði voru haldnir í félagsheimilinu á
Blönduósi sunnudaginn 14. mars.
Kristján var félagi í Karlakór Bólstaða-
hlíðarhrepps. Hann andaðist 7. janúar
sl. vegna skæðs sjúkdóms, frá eigin-
konu og þremur ungum dætrum.
Það voru kórfélagar Kristjáns sem
gengust fyrir tónleikunum og varð af
þeim samstarf fimm kóra með u.þ.b.
150 þátttakendum. Var það Samkórinn
Björk undir stjóm Thomasar Higger-
son, Söngsveit Sigrúnar undir stjóm
Sigrúnar Grímsdóttur, Karlakór Ból-
staðahlíðarhrepps undir stjóm Sveins
Ámasonar, Rökkurkórinn einnig undir
stjóm Sveins Ámasonar og Kór
Blönduóskirkju undir stjóm Sólveigar
S. Einarsdóttur.
Sungið var í bíósal félagsheimilisins,
var áheyrendasviðið þéttsetið og talið
að um 400 manns hafi verið í húsinu.
Vom veitingar framreiddar í sam-
komusalnum að söngnum loknum.
„Blandaði söngfólk þessara tveggja
grannhéraða þannig geði saman í söng
og samræðum og sveif mjög hlýr og
góður hluttekningarandi yfir samkom-
unni í heild. Allur ágóði af tónleikunum
rennur til ljölskyldunnar á Breiðavaði
og fleiri hafa komið þar til s.s. Karla-
kórinn Heimir hélt tónleika í Blönduós-
kirkju tveim kvöldum fyrr, en þá var
slæmt veður og tvísýnt færi svo að færri
Samfylkingin
birtir fram-
boðslistann
Framboðslisti Samfylkingarinnar á
Norðurlandi vestra var birtur í síðustu
viku. Kristján Möller framkvæmdastjóri
Siglufirði skipar efsta sæti listans og
Anna Kristín Gunnarsdóttir kennari
Sauðárkróki er í öðm sætinu, en þau
höfnuðu í þessum sætum í prófkjörinu
í liðnum mánuði, og vom þau sæti bind-
andi. í þriðja sæti framboðslistans er
kominn Valdimar Guðmannsson verka-
lýðsleiðtogi í A.-Húnavatnssýslu og
hyggjast samfylkingarmenn þar með
styrkja listann gagnvart Húnvetningum.
Signý Jóhannesdóttir verkalýðsleið-
togi á Siglufirði er í fjórða sætinu, en
hún varð þriðja í prófkjörinu. Ágúst Frí-
mann Jakopsson kennari á Hvamms-
tanga er í fimmta sætinu, Eva Sigurðar-
dóttir bankastarfsmaður Sauðárkróki er
sjötta, þá Pétur Vilhjálmsson leiðbein-
andi á Laugarbakka, Ingibjörg Hafstað
bóndi og sveitarstjómarmaður Skaga-
firði, er í áttunda sætinu, Steindór Har-
aldsson framkvæmdastjóri Skagströnd
níundi og heiðurssæti listans það tíunda
skipar Ragnar Amalds fyrrverandi al-
þingismaður.
nutu þeirra tónleika en ætla hefði mátt
ef veður og færi hefði verið sæmilegt
eða gott. Víst er að mikil sönggleði ríkti
á Blönduósi umrædda helgi og sannað-
ist að rnikið má sá er vel vill. Hafi allt
það fólk kæra þökk fyrir er að góðu
máli studdi”, segir í frétt sem Feykir
fékk senda. Skrásetjari kýs að nefna sig
„einn af mörgum viðstöddum”.
Karlakór Bólstaðahlíðarhrepps syngur við stjórn Sveins Árnasonar.
SPENNANDI
FERMINGARTILBOÐ
Vaxtalínan
- á réttri íeið
ALLIR SEM ERU A FERMINGARALDRI
GETA ÁTT VON Á GLÆSILEGRI GJÖF
FRÁ BÚNAÐARBANKANUM.
Ef þú leggur 5.000 kr. eða meira inn á Kostabók,
sem er bundin í 12 mánuði eða lengur, leggur
bankinn 1.000 kr. til viðbótar inn á reikninginn
þinn.Auk þess færðu glæsilega reiknivél að gjöf.
VAXTALÍNAN HEFUR ÝMISLEGT
ÁNÆGJULEGT í FÖR MEÐ SÉR
• Taktu úr peninga með Vaxtalínukortinu,
hér heima og erlendis.
• Flettu upp dagskrá dagsins í skóladagbókinni.
• Vertu í Vaxtalínubol og geyrndu seðlana í
Vaxtalínuveskinu.
• Fáðu tímaritið Smell, afsláttarkort og fleira
óvænt og skemmtilegt.
• Settu þig í stellingar fyrir ókeypis bíómiða eða
jafnvel 5.000. kr. vinning sem dreginn er út
mánaðarlega.
LÁTTU OKKUR SJÁ UM FJÁRMÁLIN OG
NJÓTTU ÞESS AÐ VERA UNGLINGUR.
ÞÚ FÆRÐ BRÉF FRÁ OKKUR BRÁÐLEGA!
BÉNAÐARBANKI
ISLANDS Traustur banki
Útibúið Sauðárkróki
Afgreiðslurnar Varmahlíð og Hofsósi