Feykir


Feykir - 24.03.1999, Qupperneq 7

Feykir - 24.03.1999, Qupperneq 7
11/1999 FEYKIR7 Guðrún Steinsdóttir frá Reynistað t Guðrún Steinsdóttir fœddist 4.9.1916 að Hrauni á Skaga og ólst þar upp í stórum systkina- hópi. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Kristmundsdóttir og Steinn Leó Sveinsson. Arið 1947giftist hún eftirlifandi eigin- manni sínum Sigurði Jónssyni f. 4.9. 1917 ogfluttist til hans að Reynistað þar sem hún bjó til œviloka. Guðríín og Sigurður eignuðust jjóra syni. Jón f. 26.9.1948 vörubílstjóri á Sauð- árkrók. Kona hans Sigurbjörg Guðjónsdóttir kennari og eiga þau þrjú böm. Steinn Leo bif- reiðastjóri á Mel f. 2.2.1951. Kona hans er Salmína Tavsen húsmóðir og eiga þau jjögur böm. Hallurf. 11.5.1953 vélvirki á Sauðárkrók. Kona hans erSig- ríður Svavarsdóttir kennari og eiga þau þrjár dœtur. Yngstur er Helgi Jóhann f. 14.2.1957 bóndi á Reynistað. Hann er giftur Sig- urlaugu Guðmundsdóttur hús- móður og eiga þau þrjú böm. Útför Guðrúnar fór fram frá Reynistaðarldrkju laugaid. lí.mars Það hefur vafalaust oft verið þröng á þingi á Hrauni á milli- stríðsárunum er hinn myndarlegi systkinahópur sem taldi tólf bræður og systur var að alast þar upp við öllu fábreittari aðstæður en við þekkjum í dag. Það kom þó ekki að sök og öll komust þau til fullorðinsára nema yngsta systirin Hrefna sem lést í frum- bemsku. Æskusporin okkar hér er mjög Ijúft að muna. Þegar ánunfjölga fer fram í tilveruna. Oft var hlegið afar dátt allt þá söng afgleði Því að lífið létt og kátt lék í okkargeði. (Svanfr. Steinsd) Eins og tijálundur með ellefu sterkum stofnum og gróskumikl- um greinum hafa þau systkinin staðið saman í blíðu og stríðu og alið af sér stóra og samheldna ætt. Það var því stórt skarð höggvið í lundinn er Guðrún föðursystir okkar á Reynistað kvaddi þennan jarðneska heim sunnudaginn ö.mars einmitt þeg- ar sól var farin að hækka á lofti og boðaði langþráð vor. Það hefur ugglaust verið mik- il breyting að alast upp yst á Skaga og flytja þaðan ffam í grösugan og skjólsælan Skaga- fjörð að höfuðbólinu Reynistað til að taka við búsforráðum ásamt Sigurði manni sínum, á mann- mörgu og gestkvæmu heimili. En Guðrún hafði allt til að bera, myndarskap, dugnað og alúð og ávann sér virðingu og vináttu allra er við hana áttu samskipti. Þessum dyggðum skilaði hún síðan óskiptum til sona sinna og fjölskyldna þeirra. Fyrstu minningar okkar bræðra um heimsóknir í Reyni- stað eru sveipaðar hálfgerðum dýrðarljóma því allt var svo ólíkt því sem við áttum að venjast. Grösugur garðurinn, áin við hús- vegginn, gæsimar ógnvekjandi, baðstofan dularfulla og svo allt þetta fólk. Heimilisfólkið, sumar- dvalarböm í hópum og gestir. Öllu var stjómað af ákveðni en sanngimi af Guðrúnu stórífænku eins og við kölluðum hana gjam- an okkar í milli. Gestrisni og tryggð hennar við ættingja og vini gerði það að verkum að gestagangur var mikill enda margir sem bundust heimilinu sterkum böndum eftir lengri eða skemmri dvöl þar. Ekki fómm við bræður var- hluta af umhyggju Guðrúnar fyr- Námskeið í skíðagöngu Vegna mikillar þátttöku í skíðagöngukennslu í Skagafirði hefur Skíðasamband íslands ákveðið í samráði við skíðadeild Tindastóls að standa fyrir þriggja daga námskeiði í skíða- göngu dagana 30. mars til 1. apríl. Laugardaginn 3. apríl verð- ur síðan ýmislegt gert sér til skemmtunar á skíðasvæðinu, s.s. þrautabrautir o.fl. kl. 13-17 og er það innifalið í námskeiðinu. Námskeiðið ferfram á skíðasvæði Skagfirðinga á Laxárdals- heiði. Gjald fyrir námskeiðið er kr. 1000. Þátttakendur geta feng- ið lánuð skíði, skó og stafi og er það innifalið í námskeiðs- gjaldi. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri: l-4bekkur, 30., 31.marsog l.aprílkl. 13-15 5-9 bekkur 30., 31. mars og 1. apríl kl. 15-17 16 ára og eldri 30. mars og 1. apríl kl. 18. Skráning í síma 453 6111 og/eða 453 5913 fyrir sunnudaginn 28. mars nk. Skíðasamband íslands. Skíðadeild Tíndastóls. ir skyldfólki sínu og upp í hug- ann kemur fjöldi minninga er kalla fram hlýju og þakklæti: Dmngalegan haustdag fyrir margt löngu er ffænka komin í heimsókn að Hrauni. Lítill hvolpur stekkur uppúr pappa- kassa á eldhúsgólfinu og er eign- aður yngsta bróðumum við ógleymanlegan fögnuð viðkom- andi. Er við síðan uxum úr grasi urðu ferðimar í Reynistað marg- ar ýmist í kaffispjall, vegna skóla- vistar eða til að sýna frænku ört stækkandi fjölskyldur okkar. Alltaf var tekið á móti okkur af sömu hlýjunni og gestrisninni Umræðuefnin vom nóg því hún fylgdist alltaf vel með öllu því sem fram fór heima á Hrauni og við fúndum vel fyrir þeim sterku taugum er lágu þangað. Guðrún og Sigurður hafa leiðst í gegnum lífið í meira en hálfa öld og hafa átt því láni að fagna að vera umkringd sonum sínum og fjölskyldum þeirra alla tíð sem reyndust henni svo vel og þannig getað fylgst með uppvexú bamabamanna sem Guðrúnu vom svo kær. En dagur Guðrún- ar er kominn að kveldi og var hún lögð til hinstu hvílu heima á Reynistað í nálægð við fólkið sitt og umhverfið sem hún unni. Þá er lokið þessum leik þrýtur allt sem byrjun hefui: Gleðin blíð og vonin veik vit og þekking marg oft sveik. Liðni tíminn líkist reyk sem lítið atvik gleymsku vefur Þá er lokið þessum leik þrýtur allt sem byrjun hefiir. (Gunnar Einarsson) Sigurði, bræðmnum á Reyni- stað og fjölskyldum þeirra fæmm við okkar innilegustu samúðar- kveðjur og biðjum góðan Guð að blessa minningu Guðrúnar. Bræðumir á Hrauni og fjölskyldur þeirra Okeypis smáar Til sölu! Ttl sölu tvíbreitt bamarimla- rúm úr fum, 4 stk. felgur 8 bolta 16,5 tommu, AEG eldavél með blástursofni, Tomson 150 lítra ísskápur með 150 lítra frysú- skáp undir. Upplýsingar gefa Selma eða Tómas í síma 453 5561. Ttl sölu gamall Simo kerm- vagn. Upplýsingar í síma 453 6763 fyrir hádegi. Ttl sölu stórbaggar af 2ja ára gömlu heyi. Upplýsingar í síma 467 1030. Sjálfstæðisfólk! Næstkomandi laugardag og framvegis alla laugardaga úl kosninga verður morgunkafFi í Sæboigfiákl. 10-12. Nefridin. Kínversk nálarstunguaðferð og námskeið fyrir fólk sem vill hætta að reykja og/eða grennast á Sauðárkróki fimmtudaginn 25.-27. mars í Sjálfsbjargarhúsinu. Pantanir í síma 861 6657. Egill Héðinn Bragason sálfræðingur. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu Önnu Jónsdóttur Stóru-Ökrum, Skagafirði Sigurður Hólm Jóelsson Hólmfríður Sigurðardóttir Kristján Steingrímsson Ingibjörg Sigurðardóttir Rögnvaldur Ámason Sólveig Sigurðardóttir Jón Sigurðsson Helga Sigurðardóttir Ragna Sigurðardóttir Katrín Sigurðardóttir bamaböm og barnabamabörn Bjöm Bjömsson Hulda Ásgrímsdóttir Einar Pálmi Ámason Rúnar Magnússon Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki Augnlæknir Ragnar Sigurðsson augnlæknir verður með móttöku á stofnuninni • 7. apríl næstkomandi. Tímapantanir í síma 455 4000 þriðjudaginn 30. mars n.k. kl. 9,30 - 10,30 og kl. 12,00 -13,00.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.