Feykir - 12.05.1999, Qupperneq 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MED RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Jón Bjamason fagnar ásamt stuðningsmönnum í Aðalgötunni að morgni sunnudagsins þegar
úrslitin lágu fyrir og ljóst að hann var kominn á þing.
Niðurstaða alþingiskosninganna á Norðurlandi vestra
Sjálfstæðismenn og Vinstri -
Grænir sigurvegarar
Það eru sjálfstæðismenn og
Vinstri hreyfingin - Grænt
framboð sem teljast sigurveg-
arar kosninganna á Norður-
landi vestra. Sjálfstæðisflokk-
urinn bætti við sig fylgi og er
nú stærsti flokkurinn í kjör-
dæminu og Vinstri-Grænir
hrepptu uppbótarþingsætið, en
fyrirséð var að kosningarnar
mundu snúast um hvar það
lenti og sýndist mörgum að
um tvísýnar kosningar yrði að
ræða eins og kom á daginn.
Fólk man ekki jafn spenn-
andi og langa kosninganótt á
Noióurlandi vestra og nú. Fyrstu
tölur komu mönnum í opna
skjöldu og fæstir lögðu mikinn
trúnað á að lokatölumar yrðu á
sömu nótunum, en þar var Sam-
fylkingin með litlu minna fylgi
en sjálfstæðismenn og framsókn
þar fyrir neðan. I næstu tölum
var síðan VG kominn inn með
Jón á Hólum í stað annars manns
Samfylkingar, og Framsókn bú-
inn að ná forustunni og kominn
meðtvo menn. I þriðju tölum var
orðið verulega mjótt á munum
milli Framsóknarfokks og Sjálf-
stæðisflokks, einungis fjögur at-
kvæðaforskot þess fyrmefnda.
Síðustu tölur komu síðan-á
fimmta tímanum um morguninn
og þá kom í ljós að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafði fengið langmest
út úr utankjörstaðaatkvæðunum
sem talin vom síðast og var oiðinn
stærsti flokkurinn, og það ó-
vænta gerðist, miðað við tölumar
þar á undan, að Vinstri-Grænir
vom aftur komnir inn með mann,
hrepptujöfhunarsætið.
A landsvísu er þetta besta út-
koma Sjálfstæðisflokksins í
þingkosningum í aldíirljórðung,
eða ffá árinu 1974, fylgis-
aukningin var þó minnst hér í
Norðurlandi vestra.
Hætta á kali í austan-
verðiun Skagafirði
En lítur vel út á öðrum svæðum
„Mér sýnist þetta líta mjög
vel út hjá okkur héma austan
megin. Við vomm hræddir um
Skagann en það virðist ekki hætta
þar nema þá á þeim bæjum sem
standa ofarlega og þar sem snjór
liggur enn. En það er alveg ljóst
að kal verður ekki sem neinu
nemur hér á þessu svæði”, segir
Jón Sigurðsson ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi Austur-Hún-
vetninga.
Jón telur að ástand gróðurfars í
Húnaþingi vestra hljóti að vera
sambærilegt og í austur sýslunni,
en Feykir náði ekki sambandi við
ráðunaut Búnaðarsambands Vest-
ur - Húnvetninga.
Egill Bjamason ráðunautur
hjá Búnaðarsambandi Skagfnð-
inga segir að ágætlega líti út í
vestanverðum Skagafirði, enda
hafi októbersnjóinn tekið upp af
því svæði og því ekki legið lengi
klaki og snjór á. Hinsvegar óttist
menn kal í Hjaltadal og dölunum
að austanveiðu og í Fljótunum. Á
þessu svæði hafi snjór legið á ffá
því um miðjan október á liðnu
hausti.
Kombændur í Skagafiiði hafa
verið að huga að ökmm sínum að
undanfömu. Plæing er komin af
stað, en menn þurftu frá að hverfa
vegna klaka í jörðu. Ljóst er að
sáning hefst ekki fyrr en í fyrsta
Iagi nú um miðjan mánuðinn. Út-
lit er fyrir að áfram verði aukning
í komræktinni í sumar, þó svoað
bændur verði talsvert seinna á
ferðinni með sáningu nú en und-
anfarin vor, en þá hefur veriðsáð
um og fyrir mánaðamótin apríl -
maí.
* Urslit alþingiskosninganna 1999
fyigi breyt. atkvæði þingm. áður
B-listi 30,3%.. ...- 8,4.. 1807 1 2
D-listi 31,9%.. •••+1,2.. 1904 2 2
F-listi 3,3%... 195
H-listi 0,2%.... 13
S-listi 24,8%... 1481 1
U-listi 9,4%.... 561 1
Kjörsókn var 88,8%. Auðir seðlar voru 111 og ógildir 5.
—KTcn^ifl ckjDI— JíMff1bílaverkstæði
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 jÆJLJL M * sími: 453 5141
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax:4S36140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA jfcBílaviðgerðir & Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA vA fíéttingar jfcSprautun
\