Feykir - 12.05.1999, Page 7
17/1999 FEYKIR 7
Margrét K. Jónsdóttir
Löngumýri, Skagafirði
F. 10. febrúar 1937, d. 21. aprfl 1999
Sorg er mér í sinni
svíður und í hjarta.
Þannig hefur mér liðið síðan
mér barst sú helfrétt að Matgrét á
Löngumýri hefði látist að kvöldi
21. apríl. Hún hvarf inn í sólar-
lagsins eld, inn í ríki ljóss og frð-
ar. Ég veit að sál hennar kemst á-
fram í dýrðarríki himnanna. Hún
átti í sálu sinni svo mikinn hrein-
leik og ástúð, sem allir nutu í ná-
lægð hennar. Hún átti nóg að sól-
argulli og yl. Hún setti ekki svart-
an blett á sálar sinnar mjöll. Með
öðmm orðum, Margrét var yndis-
leg manneskja, ein af þessum
fáguðu dýrmætu perlum er vaða
á vegi okkar.
Ég hef dvalið á Löngumýri í
nokkur sumur, í hópi eldri borg-
ara. Sú vera mín þar var dýrmæt.
Enginn gleymir bænastundunum
í Kapellunni. Margrét las í Bíblí-
unni og við sungum sálma. Hún
var einlæg í trú sinni og gaf svo
mikið af sér. Enginn fór ósnortinn
af þeim fundum. Við vorum
mörg á Löngumýri nokkrum
dögum áður en Margrét hvarf
okkur. Engum hefur dottið í hug
að svo stutt yrði í endalokin. Mar-
grét virtist svo heilbrigð og
hraust. Hún kvaddi mig með
hlýju faðmlagi og sagði „þú ert
alltaf velkomin”. Þannig varþað,
það voru allir velkomnir að
Löngumýri.
Kæra nafna mín, þín er sárt
saknað. Ég veit að það hefúr verB
kallað í þig, „meira að starfaGuðs
um geim”.
Erfellur tár um föla kinn,
erfellur úði á gluggann minn.
Er húmið stynur, stynur hljótt,
hvísla ég að þér góða nótt.
Ég sendi ættingjum og vinum
mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Margrét Jónsdóttir frá Fjalii.
Hún Margrét á Löngumýri er
dáin! Þessi orð gátu ekki verö
sönn. Við viljum gjaman líta á
umhverfiðog fólkið sem við um-
göngumst eins og sjálfsagðan
hlut,eitthvað sem breitist aldrei,
það bara er og veitir okkur ör-
yggi, þannig var Margrét á
Löngumýri ómissandi.
Hún og staðurinn sem hún tók
í fóstur og helgaði sitt æfistarf
voru svo tengd,hún var alltaf til
staðar og tilbúin til að leggja sitt af
mörkum á ótrúlega mörgum
sviðum. Við í félaginu Alþýðulist
fengum að njóta krafta
hennar.víðsýni og gæsku og fyr-
ir það emm við þakklát.
Við söknum hennar og syrgj-
um og biðjum góðan Guð að vera
með henni.
Leggji drottinn lófatm sinn
Ijúfa tncer, að enni þínu.
Blessi drotúnn bústað þinn
búi um þig í Ijósi st'nu.
Sendum öllu skyldfólki og
vinum innilegar samúðarkveðjur.
Félagar í Alþýðulist.
Ég kom að sunnan. Sagnir allar
sungu mér umjjörðinn.
Og himininn vargull og glit
og grœn sem Eden jörðin.
AfVatnsskarði ég loksins leit
eins langt og augað sér
og Skagafjörður átti allt,
sem óskaði ég tnér. (Hulda)
Okkar kæra vinkona Margrét
á Löngumýri er látin. Horfin
sjónum okkar á einni svipstundu
og eftir stöndum við hnípin og
söknum.
Margrét kom í þetta hérað
sem kennari við Húsmæðraskól-
ann á Löngumýri og tók þar síð-
ar við staðarforráðum. Varð í hug-
um manna ótjúfanlegur hluti
þess staðar. Þar vann hún sitt ævi-
starf. Var vakin og sofin yfir vel-
ferð og framgangi staðarins og
vildi veg hans og starfssemi alla
sem mesta. Þaðan vann hún að
sínum mörgu hugðarefnum og
lagði sitt lóð á vogarskálamar við
að gera mannlífið hér í sveitinni
fjölbreyttiu'a.
Margrét var einlægur tónlist-
arunnandi og hafði ríka tónlistar-
þörf. Þegar nokkrir áhugamenn í
héraðinu tóku sig saman um að
stofna tónlistarfélag og síðan tón-
listarskóla var Margrét þar í far-
arbroddi og þetta voru hennar
óskaböm. Hún var óþreytandi að
laða hingað virtustu listamenn
landsins svo við fengjum að njóta
listar þeirra og aldrei gafst hún
upp þótt ekki væri alltaf fjöl-
mennt á þessar samkomur. Allir
þessir góðu gestir áttu víst hús-
rúm á Löngumýri og nutu þar
samvista við Margréti.
Otrúlegt er hvað okkur hefur
boðist á að hlýða Tónlistarskól-
ann studdi hún ætíð með ráðum
og dáð. Erlendum kennurum tók
hún opnum örmum og aðstoðaði
þá við að búa sér heimili og allt
það annað sem hún gat. Þó held
ég að margir af yngri kynslóðinni
minnist hennar lengst sem kon-
unnar með jólahappdrættið. Því
fyrir jólatónleika skólans var
hún búin að útvega vinningafjöld
og svo vom seldir miðar og Mar-
grét stóð uppi á senunni í Mið-
garði og dró út vinningshafana.
Oft með aðstoð smáfólksins. Og
bömin fengu blik í auga, hlutim-
ir nýja eigendur og hljóðfæra-
kaupasjóðurinn óx. Þama var
Margrét í essinu sínu.
Við sem höfum starfað með
henni á þessum vettvangi eigum
margar góðar minningar. Hvort
sem verið var að halda „Vordaga í
Varmahlíð”, fá hluta Ópemnnar í
heimsókn eða undirbúa komu
þeirra fjölmörgu landsþekktu
listamanna sem hafa heiðrað okk-
ur með komu sinni hingað var
sérstök stemning ríkjandi. Bjart-
sýni og eldmóður hreiðraði um sig
í hjörtunum og okkur fannst all-
ir vegir færir og smá vandamál
væm bara úl að krydda úlvemna.
Ég vil fyrir hönd félaga minna í
Tónlistarfélaginu færa Margréti
alúðarþakkir fyrir samstarfið og
ég vil einnig fyrir hönd okkar
sveitunganna færa henni þakkir
fyrir þann menningarlega metn-
að sem hún sýndi. Að við mætt-
um einnig fá brot af því besta.
Margrét var vefnðar- og
handavinnukennari og hafði víð-
feðman áhuga á allri handmennt
og listum yfirleitt. Vann hún jöfh-
um höndum við að viðhalda gam-
alli hefð í hannyrðum og stuðla að
ffamþróun og nýrri hönnun
handverksmuna. Var hún virkur
þáttakandi í vinnuhópnum „Al-
þýðulist” sem stuðlar að eflingu
handverks hér í Skagafiiði.
Ahugamál Margrétar vom
mörg og margvísleg. Hún var
einlæg í sinni guðstrú en var jafh-
framt víðsýn og hleypidómalaus
gagnvartöðrum trúfélögum. Hún
var ljóðelsk og kunni ó-
grynni af ljóðum, lögum og vís-
um og henni var Ijúft að leiða aðra
í söng og annarri samvem.
Dýravinur var hún hinn mesti og
er mörgum minnisstætt dálæti
hennar á kettinum sáluga og
hundinum sem var fastur fylgi-
sveinn hennar. Hún unni ís-
lenskri náttúm og gióðri og lagði
metnað sinn í að garðurinn á
Löngumýri væri staðarprýði.
Þaðem margar minningamar
sem koma í hugann á skilnaðar-
stundu því leiðir okkar hafa oft
legið saman bæði í leik og starfi.
Það er öllum dýrmætt að eigagóð-
ar minningar og víst er að minn-
ingin um þig með bjarta brosið
þitt á oft eftir að ylja mér um
hjartarætur. I mörg ár höfúm við
komið saman nokkrar konur og
málað á postulín.
Það var undarlegt að koma að
Löngumýri á laugardagsmorg-
uninn og þama varkassinn henn-
ar Margrétar opinn og hlutimir
hennar hálfgerðir á borðinu en
hún farin annað að starfa Guðs um
geim. Elsku Margrét, mikið
söknum við þín og hafðu þökk
fýrir allt sem þú varst okkur öll-
um. Guð blessi minningu þína.
Valdís Óskarsdóttir.
Okeypis smáar
Til sölu!
Til sölu Toyota Corolla GTI
1600, árgeið ‘88, hvítur. Upplýs-
ingar í síma 453 6543 (Jón).
Til sölu líúð notað og vel með
farið karlmannsreiðhjól.
Upplýsingar í síma 453 5505.
Til sölu Axis fataskápur.
Upplýsingar í síma 453 5191.
Til sölu nokkrar háarrúllur.
Upplýsingar í síma 453 8258.
Til sölu 33 tommu sumar-
dekk, 33x15. Upplýsingar í
síma 453 7472.
Tvö sólhús til sölu, kúluhús
og trégrindarhús með plexígleri.
Upplýsingar í síma 453 7350.
*
Ibúð óskast!
Þijár reglusamar stúlkur í
Fjölbraut óska eftir 3-4 herbergja
íbúð dl leigu á Sauðárkróki frá
miðjum ágúst úl loka maí.
Upplýsignar í síma 862 6172 eða
467 1142.
Tapað - fundið!
Einhver tók í misgripum
dökkgráan ffakka merktum eig-
anda í íþróttahúsinu á úrslita-
kvöldi dægurlagakeppninnar 30.
apríl sL og skildi eftir sinn eigin.
Upplýsingar í síma453 5038 og
í íþróttahúsinu í síma 453 5098.
Munið eftir áskriftargi öldunum
Áskrifendur góðir! Vinsamlegast munið að
greiða áskriítargjöldin. Þeir sem hafa glatað
greiðsluseðlum og eiga ógreiddar áskriftir er
bent á að hægt er að millifæra inn á reikning nr.
1660 í útibúi Búnaðarbankans á Sauðárkróki.
Sólgarðaskóli í Fljótum
Staður fyrir ættarmót og aðrar samkomur.
Gisting ,svefnpokapláss og uppbúin rúm.
Upplýsingar í síma 467 1060 eða 467 1054.
t
Eiginmaður minn
Þorsteinn Ásgrímsson frá Varmalandi,
Öldustíg 1, Sauðárkróki
lést 8. maí sl.
Utförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn
15. maíkl. 14:00. Jarðsett verður að Reynistað.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir
sem vilja minnast hans láti Byggðasögu
Skagafjarðar njóta þess. Bankareikningur nr. 0310 -
13 - 136000 í Búnaðarbankanum á Sauðárkróki.
Fyrir hönd aðstandenda
Ingibjörg Sigurðardóttir.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við fráfall elskulegrar systur okkar,
mágkonu og frænku
Margrétar Katrínar Jónsdóttur
Löngumýri
Sérstakar þakkir viljum við færa stjórn
Löngumýrar og Kvenfélagi Seyluhrepps fyrir þá
miklu virðingu sem þau sýndu minningu hennar.
Systkinin og fjölskyldur þeirra.