Feykir - 03.11.1999, Blaðsíða 4
4 FEYKIR 37/1999
Dagbók Rökkurkórsins í
ferðinni miklu í Portúgal
Rökkurkórinn í Skagafirði er ný-
kominn úr miklu ferðalagi til
Portúgals. Kórfélagar em mjög
ánægðir með ferðina og Árdís
Bjömsdóttir formaður segir að
hún hafi verið sérlega velheppn-
uð. „Svona ferð fer maður bara
einu sinni á ævinni”, sagði Árdís,
en hún hélt dagbók í ferðinni og
koma þessi dagbókarbrot nú fyr-
ir sjónir lesenda Feykis.
20. okt. Flogið til Algarve á Faro
flugvöll. Þar beið rúta sem flutti okkur
á mjög glæislegt hótel í Albufeira sem
heitir Cerro da Alagoa og þar vorum
við í fjórar nætur í mjög góðu yfirlæti.
21. okt. Skoðunarferð um héraðið,
ekið var t.d. á suðvestasta hom megin-
lands Evrópu sem kallaður er „-
heimsendi”, en þar var rannsóknarstöð
Hinriks sæfara. Kom hópurinn við í
bæjunum Lagos og Sagres og kíkti í
búðir.
Fyrstu tónleikarnir voru haldnir í
borginni Faro í stórglæsilegri kirkju
sem var fagurlega skreytt, en kirkjan er
helguð Pétri postula og heitir Igrecia
Do Sao Pedro.
22. okt. Eftir hádegi var farið í skoð-
unarferð til bæjarins Silves og gengið
um gamla Máravirkið sem er frá dög-
um Rómverja og áttum við sögustund
með fararstjóra, sem býr yfir mikilli
frásagnarsnilld sem hver sagnffæðing-
ur gæti verið stoltur af.
Þaðan var ekið um sveitina til Alte.
Kvöldverður í boði Tavira bæjar.
Tónleikar haldnir í boði bæjarstjómar
Tavira í glæsilegri kirkju sem heitir
Icrecia Do Carmo. Rökkurkómum var
afarvel tekið og Hallfríður Hafsteins-
dóttur var beðin að endurtaka ein-
söngslagið sem hún flutti af miklu ör-
yggi, við ákafan fögnuð áheyrenda.
Söngstjóra og formanni fyrir hönd
kórsins færðar fagrar gjafir af bæjar-
stjóra sem og fékk gjöf frá kómum.
23. okt. Haldið til Faro til að skoða
gamla bæinn og verslanir. Síðan farið
áfram til bæjarins Loul’e en þar er
sígauna- og bændamarkaður alla laug-
ardaga, en þangað er skemmtilegt að
koma og margbreytilegt mannlíf, og
margt að sjá.
Kvöldverðuríboði bæjarins Olha. Á
hverju ári eru vor- og hausttónleikar
sem standa yfir alla vikuna í Faro.
Rökkurkómum var boðið að taka þátt í
þessum hausttónleikum og var eini
gestakórinn sem söng á móti heimakór
þetta kvöld í kirkjunni. Þar var okkur
sómi sýndur og söngstjóra, undirleik-
ara og einsöngvara færðir fagrir blóm-
vendir, en formanður f.h. kórsins
hampaði þungum silfurskildi sem
letrað var á Festival De Faro, Ao Coral
Rokkurkórinn coral Ossónoba Faro
out ‘99.
24. okt. Brottför frá Albufeira, lagt
af stað noður og ekið um dreifbýlustu
sveit landsins, um Beja og þaðan yfir
nýja og glæsilega brú sem er 14 km
löng yfir Tejo ána, til Falíma. En
Fatíma er helgur staður sem fólk víðs
vegar að í heiminum fer í pflagrímsför
til. Þetta er staðurinn sem María mey
birtist þremur bömum, sem vöktu yfir
vellinum einu sinni í mánuði í tæpt ár
þar til fyrri heimstyrkjöld lauk.
Þaðan var haldið áffam norður til
Bussaco, þar sem gist var eina nótt í
glæsilegri gamalli konungshöll sem
starfrækt er sem hótel. Þetta er ógleym-
anlegur staður með hallargarði í Ifönsk-
um fallegum stfl með syndandi svön-
um í álögum. I hliðarálmu hallarinnar
er gamalt klaustur og kapella þar sem
fólk ástundar fyrirbænir..
25. okt. Um hádegi var lagt af stað
til Lissabon með viðkomu í Leira Alc-
obaco og um Mafei en þar stendur
stærsta höll landsins. Gist var í tvær
nætur á Hótel Saboia. Vomm við þar í
góðuyfirlæti.
Hópurinn samankominn í konungshöllinni.
Inngangurinn í klaustrið í konungshöllinni í Bussaco.
26. okt. Lagt af stað til Sintra, sem
í hugum margra Portúgala samsvarar
Þingvöllum í hjörtum okkar íslend-
inga. Síðan var farin skoðunarferð um
Lissabon og litið í búðir. Frjáls tími var
eftirmiðdaginn í miðborginni. Fólk not-
aði tímann til að líta á minnismerkið um
landafundina miklu og margt fleira.
Þar sem þetta var síðasta kvöldið
okkar í Portúgal var ákveðið að fara í
Fado veitingahús en þar er snæddur
þriggja rétta kvöldverður á portúgalska
vísu en á meðan sungu heimamenn
fyrir okkur 2-3 lög með hálftíma milli-
bili. Þessi söngur var mjög sérstakur
og er í textanum verið að segja frá á-
kveðnum atburðum á dramatískan hátt.
Þessu ætti enginn að sleppa sem heim-
sækirLissabon.
27. okt. Ekið meðfram ströndinni til
Carcavelos. Koinum við í vínkjaUaran-
um, Jose Maria da Fonseca Succ, og
fengum hressingu. Þetta em úrvals vín
sem einnig eru seld á Islandi. Þessi
vínkjallari er gríðarlega stór og til-
komumikill frá 1834 og í gegnurn
hann fara um 18 milljónir lítra á ári.
Þessi víngerð hefur verið í eigu
sömu ættarinnar frá upphafi og nú er
sjötti ættliður sem sér um víngerðinaen
það er ung og falleg stúlka sem er leið-
sögumaður og meðan við gengum um
gamla vínkjallarann heyrðist munka-
söngur á milli tunnanna. Allt er gert
fyrir ferðamanninn, fortíðin færð til nú-
tímans á skemmtilegan hátt.
Frá þessum stað fómm við áfram til
Algarve í veg íyrir flug á Faro flugvelli
heim til Islands.
Þá er fyrstu utanlandsferð Rökkur-
kórsins lokið og vil ég nota tækifærö
og þakka öllum sem tóku þátt í fað-
inni. Fyrir hönd ferðafélaganna þakka
ég ferðaskrifstofunni Urval/Utsýn og
fararstjóranum Jóni Karli Einarssyni
fyrir ógleymanlega og velheppnaða
ferð.
Ardís M. Bjömsdóttir
form. Rökkurkórsins.
Tindastólsmenn komnir
á skrið í körfiiboltanum
Tindastóli hefur gengið vel í körfu-
bolanum að undanfömu. Tindastóls-
menn lögðu Isfirðinga í deildarkeppn-
inni fyrir vestan á föstudagskvöldið og
síðan á laugardag sigmðu þeir lið Ár-
manns/Þróttar auðveldlega í Bikar-
keppni KKI, 115:69, og em því komn-
ir áfram í keppninni, en tvö úrvals-
deildarlið em úr leik, Þór Akureyri og
Islandsmeistarar Keflavíkur sem töp-
uðu fyrir Njaiðvík.
Þetta var annar sigur Tindastóls-
rnanna fyrir vestan, en blaðamaður
Feykis gleymdi í síðasta blaði sigri
sinna manna vestra í hitteðfyrra, en
Tindastóll hefur jafnan átt í erfiðleikum
með ísfnðinga á heimavelli.
Leikmenn Kfl vom lítt stemmdir í
upphafi leiks og áttu í nokkmm vanda-
málum, bæði í vöm og sókn. Tinda-
stólsmenn léku hins vegar prýðilega
saman framan af og á sex mfnútna
leikkafla breyttu þeir stöðunni úr 7:6 í
7:21 sér í hag. Leikmenn KFI tóku sig
saman í andlitinu í síðari hálfleik og
tókst að jaíha leikinn, en öll orka virt-
ist fara í það, því gestimir tóku leikinn
í sínar hendur á lokamínútunum og
sigmðu 73:58.
Hjá Tindastóli bar mest á Kristni
Friðrikssyni í þessum leik og þá var
Láms Dagur Pálsson atkvæðamikill,
skoraði m.a. þijár þriggja stiga körfur.
Stig Tindastóls: Láms Dagur 16,
Kristinn Friðriksson 15, Sune Hendrik-
sen 12, Shawn Myers 11, Svavar Big-
isson 7, Flemming Stie 7, Helgi Mar-
geirsson 3 og Isak Einarsson 2.
Næsti leikur Tindastóls í Epson-
deildinni er gegn Skallagrími í Borgar-
nesi annað kvöld. Skagamenn koma
svo í heimsókn á sunnudagskvöld.