Feykir


Feykir - 15.12.1999, Síða 5

Feykir - 15.12.1999, Síða 5
43/1999 FEYKIR 5 Hinumegin við heiminn í annarri útgáfu Skrifuð af heilindum og hlýhug til lands og þjóðar Guðmundur L. Friðfinsson frá Egilsá. Út er komin frá bókaútgáf- unni Skjaldborgu, önnur útgáfa skáldsögu Guðmundar L. Frið- finnssonar, „Hinumegin við heiminn, sem út kom fyrst 1958 og var fimmta í röð bóka Guðmundar. Það er Indriði G. Þorsteinsson sem ritar formála að þessari útgáfu bókarinnar og þar segir í seinni hluta formál- ans: Hinummegin við heiminn er saga Barkar Arasonar. Hún er líka saga af vini hans í Morgunstjömunni, sem hann ávarpar þannig strax við upp- haf annars kafla bókarinnar: „Vinur minn góður á Morgun- stjömunni. Þú ert mér nálægur, en þó fjarri. Eg sé þig ekki og veit ekkert hvemig þú ert - hvort þú ert veruleikinn eða draumur minn - von mín eða ó- fullnægð þrá.” Þannig hefjast þessi samskipti, þar sem tími mannsins Barkar Arasonar og fólksins í dalnum kemur í ljós og daglegt amstur þess. Þessi tíð er liðin, en er þó hluti af kynslóðum þessarar aldar. Nú er allt annar tími kominn, þótt aðeins rúmir fimm tugir ára séu liðnir síðan upplifun skáldsög- unnar var í fullu gildi. Svo hratt hefur skriðið í þjóðfélaginu verið þann tíma síðan Hinumegin við heiminn var skrifuð, eftir þúsund ára kyrr- stöðu, að sagan er líkust gömlu landabréfi landkönnuðar sem var í tygjum við Morgunstjöm- una í leit að nýjum víðáttum. Samt yfirgaf Guðmundur aldrei þennan dal sinn, heldur stjáklaði þar við bústrit sitt, staddur í miðju andartaki lífs- ins, spjallandi um fátæklega en nærkomna hluti, einyrkinn í nánu sambandi við ýmist sum- ar og sól eða þungbúinn og dimman vetur, þegar frosið var fyrir skilningarvit árinnar. Hann veit að kyrrstaða er ekki til, en lætur ekki tmflast af því. Hann notar ekki veginn hinumegin í dalnum til að elta fólkið í burt. Söguhetjan Börkur Arason telur sig í góðum félagsskap. Máríuerlan situr í fjóskampin- um og dyntar sér. Hún á við kæra gestakomu og sóleyjan er að opna augðað. Maðurinn, sem situr kyrr, hoifir á þessa sóley, „og hugur hans fyllist fögnuði yfir því að fá að lifa og taka þátt í vexti lífsins.” Sum- arið er að vakna. Börkur Ara- son ætlar enn einu sinni að leita á náðir þess. íslendingar hafa farið víða vegu í bókmenntum á Jjessari öld. Þeir hafa eignast höfunda, sem þeir líta á sem hálfguði. Þeir hafa skírt skáldskap þeirra erlendum fræðiheitum, sem auka eiga við þýðingu hans, ef ekki í alheimi, þá á meðal tvö hundruð þúsund manna. Með þessum hætti hafa þeir komið sér upp einskonar alþjóðlegu mati á heimavinnunni. Þeir gamna sér við að verðlauna og tína þá til flest þau erlend heiti yfir bókmenntir sem þeir kunna. A bak við þessa gylltu forhlið bærast svo bókmenntir þjóðarinnar, gómsárar af innlif- aðri reynslu, en án erlendra skýringaheita eða lofrolla um stfl. Þær hafa fengið að þroskast eins og lágvaxið gras- ið og em sífellt að gleðja okkur á sinn hlóðláta og ósungna hátt. Hinumegin við heiminn er ekki bók fyrir ólympíuleika bók- menntanna. En hún er skrifuð af heilindum og hlýhug til lands og þjóðar. Gleðilegjól ogfarsœU komandi ár Þökkum viðskiptin á árinu sem er að Uða /^BÚNAÐARBANKI \a) ÍSLANDS HF Útibúið á Sauðárkróki Afgreiðslurnar Hofsósi og Varmahlíð TRAUSTUR BANKI

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.