Feykir - 26.01.2000, Page 3
4/2000 FEYKIR 3
„Skiptir miklu máli að börn
njóti tónlistarlegs uppeldis“
segir Elínborg Sigurgeirsdóttir skólastjórl Tónlistarskóla
Nememdagarðar teknir
í notkun á Hólum
Það var í byrjun maímánaðar
að liafist var handa við bygg-
ingu nýrra neniendagarða. Það
var síðan í lok ársins, nánar til-
tekið þann 22. desember sem
Bjöm Svavarsson og Hinrik
Jóhannesson yfirmenn Tré-
smiðjunnar Ýr aflientu Skúla
Skúlasyni, skólameistara,
lyklana að nýju nemendagörð-
unum.
Framkvæmdir gengu sam-
kvæmt áætlun og var fram-
kvæmdum utanhúss að fullu lok-
iðíbyrjunoktóber. Húsiðer250
fm. á tveim hæðum með þremur
íbúðum, tvær á efri hæð hússins
og ein á þeirri neðri. Ibúðimar
eru bjartar og rúmgóðar og bún-
ar öllum nauðsynlegum heimilis-
tækjum. Með tilkomu nýja húss-
ins bætist við rými fyrir 10
manns en fyrir eru 7 orlofshús
sem nýtt em fyrir nemendur á
vetuma og ferðamenn yfir sum-
artímann. Nýja húsið gerir Hóla-
skóla frekar kleift að taka við
íjölskyldufólki til náms, en fram
til þessa hafa möguleikar til þess
verið takmarkaðir.
Draumur organistans rættist
V. - Hún. en 115 nemendur stunda nám við skólann
„Mig dreymir” er sönglaga-
hefti eftirGuðmund St. Sigurðs-
son en þar er að finna 16 lög af
ýmsum toga, létt veraldleg lög
og einnig trúarleg, skrifuð fyrir
blandaðan kór og einsöng með
píanóundirleik. Meðal laga í
heftinu er lagið: „Trúföst í
byggðum”, við texta Rúnars
Kristjánssonar en lagið fékk
verðlaun Tónmenntasjóðs þjóð-
kirkjunnar á liðnu ári. Verkið
var ffumflutt af 70 manna kór á
Kristnitökuhátíð Húnavatns-
prófatsdæmis á Blönduósi í júlí
síðastliðnum. Textahöfundar
em: Valdimar Lámsson leikari,
Rúnar Kristjánsson Skaga-
strönd, Ingi S. Gunnlaugsson
Akranesi, Jónína Hallgrímsdótt-
ir Hvammstanga og Stefán frá
Hvítadal. Margir kunnir hljóm-
listarmenn hafa komið að út-
setningu laganna, þeirra á með-
Guðmundur St. Sigurðsson ásamt börnum sínum Andra
Páli og Fanneyju Dögg. Mynd/GJ.
al Magnús Ingimarsson, Jón organisti og kórstjóri við Víði-
Hlöðver Askelssson og fleiri. dalstungukirkju um árabil.
Guðmundur hefur starfað sem GJ.
„Mér finnst skipta miklu máli
að böm njóti tónlistar í upp-
eldi, bæði í leikskóla og
grunnskóla. Við leggjum
mikla áherslu á það hér og í
grunnskólunum er bömum
kennt á blokktlautu. Það er
mikilvægt að allir fái ákveðinn
gmnn í tónlistarfræðslunni,
þannig að allir fái tækifæri á
því að kynnast tónlistinni og
ég hugsa að það auðveldi
mörgum að velja sér tóm-
stundir þegar fram í sækir”,
segir Elínborg Sigurgeirs-
dóttir skólastjóri Tónlistar-
skóla Vestur - Húnvetninga,
en mikil gróska hefur jengi
verið í starfsemi skólans. I vet-
ur er hún líklega meiri en
nokkru sinni áður. Það em 115
nemendur sem stunda nám
við skólann, sem er mjög hátt
hlutfall íbúa á svæðinu. Unnið
er stöðugt að eflingu skólans
og á dögunum var t.d. haldin
skemmtun þar sem ágóðinn
rann til hljóðfærasjóðs skól-
ans.
Tónlistarskóli Vestur -Hún-
Daníel Geir Sigurðsson leikur á harmonikku.
vetninga var stofnaður 15. júní
1968. Aðalhvatamaður að
stofnun hans var Steingrímur
Sigfússon lagaskáld frá Kol-
beinum í Bæjarhreppi, en hann
hafði þá um árabil staðið að
kórþjálfun í V.-Hún. Fyrsti
skólastjóri var Eyjólfur Ólafs-
son. Elínborg Sigurgeirsdóttir
hefur stýrt skólanum síðustu 10
árin og hafði þar áður gengt
skólastjórastarfinu með hléum,
fyrst veturinn 1973-’74 og síð-
an tímabilið ‘77-’81.
Auk Elínborgar starfa sex
kennarar við skólann. Systum-
ar Ingibjörg og Ólöf Pálsdóttir
frá Ytra-Bjargi, Guðmundur
Hólmar Jónsson ffá Syðsta-Ósi,
Pálína Skúladóttir kennari við
Reykjaskóla og pólsku hjónin
Marta Marek Michalska og Jan
Michalski, sem komu til
Hvammstanga á liðnu hausti.
„Við erum að reyna að auka
við hljóðfærakost skólans. Það
var nú um áramótin sem við
eignuðumst fyrstu strengja-
hljóðfærin, fiðlur og selló.
Fjáröflunarskemmtunin, sem
við héldum 15. janúar, tókst
mjög vel. Þátttakan var mjög
góð, fjöldi áheyrenda, kórar
sungu og mikill söngur og
hljóðfæraleikur.
Fjárhagslegur grunnur undir
rekstri skólans byggist á fram-
lagi sveitasjóðs, síðan kemur til
gjafafé frá fyrirtækjum og ein-
staklingum sem styðja við
Elínborg Sigurgeirsdóttir og Sigurður Oddsson leika
saman á fjáröflun artónleikunum. Myndir B jarni Þór.
starfsemi skólans, ásamt ýms-
um fjáröflunum. Má þar nefna
t.d. útvarpsupptöku sem gerð
var í hitteðfyrra og útvarpað
var á nýársdag í fyrra, fyrir það
fengum við 50.000 krónur.
Skólinn eignaðist blásturs-
hljóðfæri þegar fyrsta mót
skólalúðrasveita var haldið hjá
okkur 1984. Þá var skólinn bú-
inn að byggja upp nokkum
hljóðfærakost, en það þarf að
halda honum við, enda lánum
við nemendum hljóðfæri til að
byrja með, þeiin er þess óska,
meðan þeir eru að ákveða sig
hvort joeir ætli að stunda við-
komandi nám meira en einn
vetur.
Tónlistaráhuginn hér á
svæðinu er mjög mikill. í tón-
listarskólanum er reynt að
bjóða upp á mikla fjölbreytni,
við reynum að gefa bæði ungu
fólki og fullorðnum kost á að
læra á sem flest hljóðfæri. Við
emm með píanó, slagverk,
klassískan gítar, raf gítar, raf
bassa, blásturshljóðfæri,
strengjahljóðfæri og söng fyrir
utan bóklegar greinar.”
Em einhver hljóðfæri áber-
andi vinsælli en önnur?
„Gítarinn er nú alltaf vinsæll
hjá ungum drengum. Það em
þessar lyrirmyndir sem þeir sjá
í sjónvarpinu og fjölmiðlunum
og það er mjög vaxandi að
drengir séu í tónlistarskólanum.
Hjá stúlkunum hefur píanó-
námið alltaf verið vinsælt og er
það enn.
En allt byggist þetta eins og
annað nám á vinnu, og í tónlist-
inni fer hún mikið fram á heim-
ili nemandans. Þannig að fram-
tíð nemandans getur ráðist af
aðstæðum hans heima fyrir.
Það er því mjög mikilvægt að
foreldrar ýti undir ástundum
bama sinna við námið. Sérstak-
lega er þetta nauðsyn með unga
nemendur sem hafa ekki nægj-
anlegan þroska til að skipu-
leggja sinn tíma með tilliti til
námsins “, sagði Elínborg, en
hún hefur síðstu árin verið að
auka við menntun sína í tónlist
og kennslu og sótt nám til
Reykjavíkur. Hún stefnir að því
að ljúka áttunda stigi í píanó-
leik í vor.