Feykir


Feykir - 23.02.2000, Side 3

Feykir - 23.02.2000, Side 3
8/2000 FEYKIR 3 Metnaður frönskunemenda í FNV Ætla að halda á vit listagyðjunnar til Frakklands Nemendur í frönsku í Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra vinna í vetur að metn- aðarfuliu verkefni. Þeir að- hyllast leiklistargyðjuna nú um stundir og eru að setja á svið franska þjóðsögu er nefn- ist Le Fin Valet, eða Góði þjónninn á Islensku. Þessi sýning verður liður í evrópsk- um nemendasamskiptum. Góði þjónninn, sem svipar víst nokkuð til sögunnar af Signýju, Asu og Helgu sem margir kannast við, er frá Auvergne héraði og þar eru ncmcndur að setja upp Miklabæjar-Sólveigu, kunna skagfirska þjóðsögu. Bæði leikritin verða sett upp þegar nemendur hittast í apríl í vor. Fram að þeim tíma eru nem- endur beggja landa í virkurn samskiptum. Leiksýningar verða væntanlega á Sauðár- króki, I Reykjavík, Montlucon og París. FNV og framhaldsskóli í Auvergne-héraði í Frakklandi tengdust sl. haust innan Sókratesar, menntunaráætlunar Styttist í fótbolta- vertíðina Knattspymumenn em famir að reima skóna og brátt hefst deildar- bikarkeppnin sem að þessu sinni fer að miklu leyti fram á yfir- byggðum gervigrasvelli sem tek- inn var formlega í notkun í Reykjanesbæ um síðustu helgi. Tindastóll leikur þar gegn Njarð- vík 11. mars í sínum fyrsta leik í mótinu, en einnig em KS, KR. Fram og FH í riðli með Tindastóli. Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Tindastóls. Þeir Sverrir Þór Sverrisson, Unnar Sig- urðsson, Viktor Viktorsson og Auðunn Blöndal em horfnir á braut, en góðar líkur er á því að Gísli Sveinsson markvörður verði um kyrrt. I staðinn hafa komið nokkrir leikmenn, þar á meðal tveir frá Hvöt á Blönduósi, Svein- bjöm Asgrímsson og HörðurGuð- bjömsson, Agnar Sveinsson ffá KS á Siglufirði, Marteinn Guðjónsson frá Reyni í Sandgerði og Sævar Borgarsson frá Víði í Garði. Þjálf- ari Tindastóls er eins og síðasta sumar Sigurður Halldórsson frá Akranesi. Evrópusambandsins, er h'tur að nemendasamskiptum tveggja landa. Fjölbrautaskóli Norður- lands vestra hefur þegar hlotið styrk vil verkefnisins sem svar- ar a.m.k. ferðakostnaði fyrir þá 13 nemendur og tvo kennara sem að verkefninu standa. Auk leiksýninganna er gert ráð fyrir að nemendur sæki kennslu- stundir í erlenda landinu og dvelji FNV-nemar hjá nemend- um í Montlucon. Nemenda- samskiptin eru þegar komin á í gegnum pennavinasamband, en gert er ráð fyrir að sýningamar á Sauðárkróki verði í Sæluvik- unni í vor, en skömmu áður verður Frakklandsdvöl nem- enda FNV. Það var létt yfir nemenda- hópnum þegar blaðamaður Feykis leit inn í kennslustund. „Já við ætlum okkur stóra hluti í kvikmyndiðnaðinum”, sagði Fannar frá Siglufirði, en einnig er stefnt að gerð myndbands af leiksýningunni. „Nei þetta verður ekkert mál að tjá sig á frönskunni”, sagði Herdís Pálmadóttir. „Tungmáli ástar- innar”, sagði annar Sauðkræk- ingur, Gestur Sigurjónsson. Ester Ágústsdóttir kennari sagði að það verði mjög skemmtilegt fyrir nemenduna að kynnast mismunandi menn- ingu landanna. Þetta franska hérað er í fjöllunum í Mið- Frakklandi. Ester sagði ýmis- legt við sagnahefðina þar þver- öfuga við okkar. Til dæmis er hér haldið að okkur að ýmsir vondir vættir búi í fjöllunum, svo sem tröll, útilegufólk, grýla og leppalúði. I franska héraðinu væri þessu þveröfugt farið. þar byggi fólkið í fjöllunum en tröllin og óvættirnar niður á sléttunum. Ester sagði ýmislegt á prjón- unum varðandi Frakklands- ferðina, m.a. að koma upp götuleikhúsi við nýlistasafnið í París. Ester sagði nemenduma, sem eru á aldinum 18-22 ára og á þriðja og fjórða ári í skólan- um, vera mjög áhugasama um verkefnið. Það sem helst hefur tafið er fjáröflun vegna ferðar- innar, en á prjónunum er að efna til maraþons um miðjan næsta mánuð. Þar verður prjón- að úr flísafgöngum sem deild- inni hefur áskotnast húfur og vettlingar, sem mæðrastyrks- nefnd verður fært að gjöf, þannig að nemendur leggja einnig gott að mörkum með fjáröfluninni. Það var Eric Fissers kennari við FNV sem annaðist leikgerð Góða þjónsins. Helstu mark- mið rneð verkefninu eru þau að nemendur auki þekkingu sína á frönsku tungumáli í gegnum samskipti við franska jafnaldra sína, að nemendur kynnist franskri menningu og daglegu lífi við raunverulegar aðstæður. Að nemendur fái þá tilfínningu að franskan sé lifandi tungumál með tilgang þrátt fyrir að hún sé lítt áberandi í daglegu lífi ís- lendinga. Að nemendur öðlist jákvætt viðhorf til Frakklands, franskrar tungu og franskrar menningar. MARKAÐSREIKNINGUR BUNAÐARBANKANS Hefurðu kynnt þér kosti markaðsreiknings Búnaðarbankans? Lágmarksinnistæða er 500 þúsund. Hvert innlegg er bundið í 10 daga. Innistæða ber vexti í samræmi við upphæð innistæðu á hverjum tíma. o Af 0,5 milljónum 9,99% Af 1,5 milljónum 10,24% Af 3,0 milljónum 10,49% Af 20 milljónum 10,74% MAJIKAÐSREIKNINGUR tryggir þér góða vexti. BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS HF ÚTIBÚIÐ Á SAUÐÁRKRÓKI Afgreiðslurnar Hofsósi og Varmahlíð

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.