Feykir


Feykir - 08.03.2000, Page 1

Feykir - 08.03.2000, Page 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MED RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU1 SAUÐÁRKRÓKI Stöðug aukning hefur verið í farþegaflugi um Alexandersflugvöll frá árinu 1992 og á síðasta ári fjölgaði flugfarþegum um 3%. Ekkert sem bendir til fækkunar ferða í fluginu „Ég á alls ekki von á því að ferðum hingað verði fækkað á næstunni. Þvert á móti held ég að forráðamenn íslandsflugs geri sér fulla grein fyrir því að for- sendan fyrir því að takist að halda uppi farþegaflutningum um þennan flugvöll er að halda uppi ferðum. Og nýtingin á vél- unum hefur verið mjög góð”, segir Vigfús Vigfússon umboðs- maður Islandsflugs á Sauðár- króki. Þróun innanlandsflugsins hefur verið nokkuð í fréttum að undanfömu, einkum vegna þess að íslandsflug hætti flugi til Ak- ureyrar, Egilsstaða og Vest- mannaeyja, en félagið átti í grimmri samkeppni við Flugfé- lag fslands á þessum leiðum. Því er ekki þannig varið á flugleið- inni til Sauðárkróks, þar sem að Flugfélag íslands hætti áætlunar- flugi hingað fyrir nokkru. Farþegum um Alexanders- flugvöll á Sauðárkróki fjölgaði um 400 á síðasta ári. Svarar það til 3% aukningar á ársgrundvelli og er í takt við meðaltal aukn- ingar í innanlandsflugi á síðasta ári í landinu, en útkoman milli einstakra staða er mjög misjöfn. Reykjavík var með 3% eins og Sauðárkrókur, farþegum fjölgaði mest fyrir austan, 12% á Homa- firði og 9% á Egilsstöðum. Þeim er fóru um Akureyrarflugvöll fjölgaði um 7% og 6% um Vest- mannaeyjar. Farþegum um Húsavík fækkaði hins vegar stórlega eða um 28% og athygli vekur að 4% samdráttur varð áí fjölda farþega um Isafjörð, eða um 2.100. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Flugmála- stjóm. Sigurður Frostason starfs- maður Flugmálastjómar á Sauð- árkróki hefur fylgst vel með far- þegafluginu. Hann segir að aukning hafí orðið á farþegum um Alexandersflugvöll frá árinu 1992, og gífurleg fjölgun varð á árinu 1997 en þá var samkeppn- in gefin frjáls og tvo flugfélög fluga á Sauðárkrók. Við þetta varð þriðjungs fjölgun farþega og em nú um 15 þúsund manns sem fara um Alexandersflugvöll á ári, en vom um 10 þúsund árið 1992. Sigurður segir að svipaður fjöldi farþega hafi farið um völl- inn núna síðustu árin, sé tekið til- lit til leiguflugsins. Á síðasta ári hafi leiguflug dregist saman frá árinu áður og þannig jafni fjöld- inn sig nokkuð út milli ára. Steinullarverksmiðj an Hagnaðurinn 108,8 millj. á síðasta ári Um það bil 108,8 milljóna hagnaður varð af rekstri Stein- ullarverksmiðjunnar á síðasta ári, miðað við 97,7 milljón króna hagnað árið áður. Er þetta besta útkoma fyrirtæks- ins frá upphafi. Heildarsala í steinull nam í fyrra um 172 þúsund rúmmetrum, sem er um 7% meira magn en árið áður og er þetta mesta sala frá upphafi rekstrar árið 1985. Sála á innanlandsmarkaði nam um 116.000 rúmmetmm, sem er um 16% aukning frá fyrra ári og út vom því fluttir um 56.000 rúmmetrar, sem er heldur minna magn en árið áður. Tekjur Steinullarverksmiðj- unnar á síðasta ári vom 671,8 milljónir, en vom 620 árið áður. Rekstrargjöld vom 529 milljón- ir ‘99, en 514,6 millj. ‘98. Fjár- festingar vom fyrir 20,5 millj- ónir í íyrra en 46,5 m. árið áður. Á árinu var hlutafé fyrirtæk- isns lækkað um 148,5 milljónir króna eða um 35%, með út- greiðslu til hluthafa. Veltufé frá rekstri var 167,9 millj. ‘99, en 160,1 m. ‘98, Handbært fé frá rekstri 153,9 m. ‘99, en 171,1 m. ‘98. Langtímaskuldir lækk- uðu í fyrra í 85,7 milljónir úr 111,3 milljónum, en skamm- tímaskuldir hækkuðu í 153,6 milljónir úr 123,6 milljónum. Veltufjárhlutfall lækkaði í 1,82% úr 2,28% og eiginfjár- hlutfall sömuleiðis í 63,2% úr 66,1%. Þá lækkaði arðsemi eig- infjárí 23,7% úr 27,4%. Bvggðarráð Húnaþings vestra álvktar Ný brú verði byggð á Hrútafjarðará Byggðarráð Húnaþings vestra vill þrýsta á endur- bætur á þjóðvegi 1 um Hrútafjörð með þau megin- markmið að leiðarljósi að draga úr slysahættu, en brú- in yfir Hrútafjarðará við Brú hefur reynst hin mesta slysagyldra og stutt síðan að þar varð mjög alvarlegt slys. í byggðarráði var nýlega kynnt erindi sem sent verður Vegagerðinni, samgönguráð- herra og fleiri aðilum sem mál- inu tengjast. Þar er bent á að á árinu 1988 hafi verið hönnuð ný veglína fyrir botn Hrúta- fjarðar þar sem gert er ráð fyrir nýrri tvíbreiðri brú á Hrúta- fjarðará fyrir neðan ármót Sík- ár og Hrútafjarðarár. Á undan- fömum árum hafi komið í ljós að aðkoma á brúna yfir Hrúta- fjarðará sé algjörlega óviðun- andi og beinlínis hættuleg, seg- ir í erindi byggðarráðsins. —ICTch^hi ckjDI— SÍMfTbílaverkstæði Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 Æ # m m m sími 453 si4i • ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140 • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA # Bílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir • BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA XJ Rettingar Sprautun

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.