Feykir - 08.03.2000, Page 2
2 FEYKIR 10/2000
IpEYKIE
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10. Sauðárkróki. Póstfang: Box 4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsími 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang:
feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaritari: Öm Þórarinsson.
Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hennannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Árnason.
Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svatt hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.
Rækustofninn í
Húnaflóa hruninn
- en rækjan í Skagafirði lítur vel út
Rækjustofninn í Húnaflóa er
hmninn. Þetta var niðurstaðan úr
vetrarkönnun Hafrannsóknar-
stofnunar á innfjarðarrækjumið-
unum fyrir skömmu. Athugunin
nú kom ekkert betur út en haust-
rannsóknin sem gaf síður en svo
ástæðu til bjartsýni. Rækjuveið-
in hefur verið slök á Húnaflóa
síðustu árin og menn óttast nú að
það muni taka einhver ár að ná
stofninum upp.
Guðmundur Ingþórsson hjá
rækjuvinnslu Særúnar á Blöndu-
ósi segir að menn þekki svo sem
sveiflumar í rækjunni og það sé í
raun ómögulegt að segja til um
hvenær úr rætist. Guðmundur
sagði þetta mjög slæm tíðindi
fyrir alla hagsmunaaðila á svæð-
inu og stór biti fyrir vinnslumar
þar sem nú í aflaleysinu í rækj-
unni munaði um allt. „Við vor-
um í tveimur vöktum á síðasta
ári en höfum verið með eina vakt
eftir áramótin og átt í erfiðleikum
með öflun hráefnis. Veiðin hefur
verið dræm og gæftaleysið ekki
til að bæta ástandið, en ótíðin er
búin að vera einstök”, sagði
Guðmundur í Særúnu.
Rækjusjómenn við Skaga-
fjörð geta þó litið örlítið bjartar á
framhaldið en félagar þeirra við
Húnaflóann. Kvótinn á vertíðina
er 400 tonn og skiptist miOi fjög-
urra báta sem allir leggja upp hjá
Dögun á Sauðárkróki. Skerðing-
in er nokkur þar sem undanfarin
ár hefur verið leyfð 800 - 1000
tonna veiði á Skagafirði.
„En rækjan lítur vel út og
virðist hafa æti, þannig að við
emm nokkuð bjartsýnir”, segir
Ágúst Guðmundsson hjá Dögun.
Ágúst segir að þokkalega hafi
gengið með hráefnisöflun, en
hins vegar séu markaðimir fyrir
rækjuna ekkert sérstakir um
þessar mundir.
menn á Langjökli
(jB&é
Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
Eftirtaldir sérfræðingar verða með móttöku
í stofnuninni í marz og apríl:
Tímabil
1/3 - 10/3
13/3-17/3
20/3 - 24/3
27/3 - 7/4
10/4 -14/4
17/4 - 19/4
Læknar
Sigurgeir Kjartansson
Valur Þór Marteinsson
Vilhjálmur Andrésson
Ólafur R. Ingimarsson
Edward Kiernan
Sigurður Albertsson
Sérgrein
skurðlæknir
þvagfæraskurðlæknir
kvensjúkdómalæknir
skurðlæknir
kvensj úkdómalæknir
skurðlæknir
Tímapantanir í síma 455 4000.
Ellefu björgunarsveitamenn
úr Skagafirði tóku þátt í leit að
vélsleðamanninum á Langjökli
um helgina. Að sögn Guðmund-
ar Guðmundssonar formanns
Flugbjörgunarsveitarinnar í
Varmahlíð, sem var í leiðangrin-
um, vom leitarmenn fullir vonar
og bjatsýni allan tíma, þar sem
vitað var að umræddur vélsleða-
maður var vanur ferðamaður og
fastlega reiknað með að hann
hafi grafið sig í fönn.
. Það voru sex félagar úr Flug-
björgunarsveit Varmahlíðar, þrír
frá Björgunarsveitinni Gretti á
Hofsósi og tveir frá Skagfirð-
ingasveit sem fóru til leitarinnar
og var lagt af stað fram í Hvera-
velli klukkan átta á sunnudags-
kvöld og komist við harðan leik
frameftir um fjögur leytið um
nóttina. Lagt var síðan upp á
jökulinn á vélsleðum og bflum
snemma á mánudagsmorgun og
leitað í nokkra klukkutíma þang-
að til tilkynning barst um að
maðurinn væri fundinn. Komið
var síðan til baka úr leitinni
klukkan 11 á mánudagskvöld.
Guðmundur sagði í samtali
við Feyki að leitar- og björgunar-
störf væru nú að verða mun
harðari og erfiðari öllu jöfnu, en
áður þekktust. Það stafaði af því
að tækjabúnaður ogTatnaður
ferðalanga væri orðinn það góð-
ur að fólk væri á ferð yfir jökla
og hálendið í hvaða veðri sem er.
Því þyrftu björgunarmenn mun
oftar að leita við erfiðari aðstæð-
ur en áður.
Aukakílóin burt! Ný öflug vara!
Náðu varanlegum árangri í eitt skiptið fyrir öll. Ég missti
7 kg. á fimm vikum. Síðasta sending seldist upp.
Persónuleg ráðgjöf og stuðningur. Hringdu strax.
Helma & Halldór sími 557 4402 og 587 1471.
grima@centrum.is
Skagfirskir leitar-