Feykir


Feykir - 08.03.2000, Síða 6

Feykir - 08.03.2000, Síða 6
6 FEYKIR 10/2000 Af sameiiiingarmálum og fleiru Nú em bráðum liðin 2 ár frá því að við Skagfirðingar í 11 sveitarfélögum ákváðum að heyja lífsbaráttuna saman í einu sveitarfélagi. Á þessum tæpum tveimur ámm hefur ýmislegt átt sér stað og víst að ekki em allir á eitt sáttir um hve vel hefur til tekist. I upphafi er vert að taka það fram að markmið samein- ingarinnar var að geta betur staðið gegn fólksflutningum burtu úr sveitarfélaginu og efla okkur sem sjálfstæð og sterk stjórnsýslueining í harðri sam- keppni við önnur sveitarfélög. Fyrir sameininguna vissu all- ir að þetta sameinaða sveitarfé- lag yrði skuldugt og að ekki yrði hægt að vinna nein kraftaverk í að ná skuldum niður og sam- hliða halda áfram uppbyggingu í sveitarfélaginu. Við vissum líka að fjárhagslegur ávinningur af sameiningunni myndi ekki koma fram strax á fyrsta ári og jafnvel ekki á fyrsta kjörtímabili nýrrar sveitarstjómar. En ég held að við höfum öll vænst þess að stjómsýslan yrði greiðari og það myndi auðvelda okkur að vinna markvisst að uppbyggingu í sveitarfélaginu. Eg held líka að við höfum öll haft þá hugsjón að við gætum nýtt betur sérkenni og kosti hvers sveitarfélags fýr- ir sig í þágu heildarinnar. Lítum aðeins á hvemig til hefur tekist: Atvinnumál Strax á fyrstu mánuðum nýrrar sveitarstjómar, var at- vinnuþróunarfélagið Hringur stofnað. í samvinnu við atvinnu- og ferðamálanefnd hefur það fé- lag unnið ötullega að því að koma af stað nýjum fyrirtækjum og styðja þau sem fyrir eru á margvíslegan hátt. Markvisst hefur verið unnið að því að flytja fleiri störf hingað og ým- islegt í þá veruna er í farvatninu. Ekki er ætlunin hér að telja upp þau atvinnutækifæri sem sveit- arstjómin hefur á einn eða ann- an hátt komið að, en nægir að nefna t.d., styrkingu atvinnulífs- ins á Hofsósi með ákvörðun um að byggðakvótinn svokallaði færi óskertur til Höfða, stofnun Clic-on, Hestamiðstöðina, Nátt- úmstofuna, fjölgun starfa í fé- lags- og skólamálum um allt hérað, lagningu hitaveitu í Borg- ar- og Staðarsveit og m. fl. Verið er að skoða möguleika á atvinnuuppbyggingu á Steins- stöðum, margvísleg verkefni á sviði í ferða- og menningar- mála, m.a. í samstarfi við Hóla- skóla og fleiri aðila. Þá er og vert að minna á fjölgun starfa á vegum Byggðastofnunar og flutning hluta Ibúðalánasjóðs hingað. Otalin em þau störf og sú uppbygging sem einstakling- ar og fyrirtæki standa fyrir og em að vinna að, en það er að sjálfsögðu mikilvægast hverju samfélagi að eiga kraftmikil fyritæki og inetnaðarfulla ein- staklinga til að nýta þau tækifæri sem gefast. Skólamál og tómstundamál Eini skólinn sem ekki er ein- setinn á Norðurlandi vestra er Árskóli á Sauðárkróki og er ljóst að húsnæðisvandamál em farin að hamla metnaðarfullri starf- semi hans. Því var strax ákveð- ið að byggja við hann þannig að hægt væri að einsetja skólann og um leið uppíylla lagaskyldur um námsframboð. 1. áfangi þeirrar viðbyggingar verður tek- inn í notkun haustið 2001. Á fjárhagsáætlun þessa árs er gert ráð fyrir4 milljónum króna í endurbætur á gmnnskólanum á Hofsósi, framkvæmd sem löngu er tímabær og ljóst að leggja þarf mikla fjármuni til hans á næstu ámm eigi hann að upp- fylla þær kröfur sem við gemm til nútíma skólahúsnæðis. í Varmahlíð hefur fjármun- um verið varið til þess að flytja Tónlistarskólann í húsnæði gmnnskólans og á þessu ári er á- ætlað að verja talsverðu fé til uppbyggingar nýrrar stjómunar- álmu. Jafnframt fær Varmahlíð- arskóli aukafjárveitingu til kaupa á tölvubúnaði vegna þró- unarverkefnis á sviði upplýs- ingatækni í skólanum. Tveir nýir leikskólar hafa tekið til starfa, í Varmahlíð og á Hólum og einnig hefur verið komið á fót dagvistun íydr yngstu böm- in í Fljótum. Frá og með næsta skólaári ætti að vera búið að koma á fót dagvistun í tengslum við alla gmnnskólana í sveitarfélaginu, en fyrirhugað er að á Hofsósi verði skóladagvistun rekin í tengslum við leikskólann. Á s.l. hausti var farið af stað með slíka skóladagvistun við Árskóla á Sauðárkróki og þykir sú starf- semi hafa farið einkar vel af stað og þörfin augljóslega talsvert meiri en áætlað var í upphafi. Það ætti öllum að vera ljóst mikilvægi þess að búa vel að yngstu borgurum okkar og því hefur það verið þessari sveitar- stjóm mikið kappsmál að hlúa enn betur að innra starfi skól- anna, sem og ytri umgerð þeirra. Félags- og heilbrigðisþjónustan Á s.l. ári var ákveðið að sveitarfélagið legði Félagi eldri borgara í Skagafirði til aðstöðu í félagsheimilinu Ljósheimum, til afnota fyrir félagsstarf. Þá á- kvað sveitarstjóm einnig að setja á stofn dagvistun fyrir aldr- aða í samvinnu við Heilbrigðis- stofnunina, þar sem hægt er að fá margvíslega þjónustu ókeyp- is eða gegn lágu gjaldi. í desember s.l. var opnuð ný og glæsileg endurhæfingardeild við Heilbrigðisstofnunina, sem nýtist eldri borgumm, fötluðum og öðmm þeim sem þurfa sér- stakrar þjálfunar við. Til þess að ljúka mætti byggingu þessarar endurhæfingardeildar eins og ráð var fyrir gert, hljóp sveitar- félagið myndarlega undir bagga við fjármögnun. Fram til þessa hafa allir sem þess þurfa í sveit- arfélaginu, fengið heimilishjálp um leið og óskað er eftir henni. Víða annars staðar þarf fólk að bíða svo mánuðum skiptir eftir slíkri þjónustu. Þjónustufulltrúar í tengslum við fjárhagsáætl- un var ákveðið að leggja niður störf þjónustufulltrúa, nema starf þjónustufulltrúans í Vanna- hlíð. Ástæðan er einfaldlega sú að þeir þóttu ekki nýtast eins og til stóð í upphafi. Ekki ætla ég að gera lítið úr mikilvægi þess að íbúar sveitarfélagsins eigi sem greiðastan aðgang að stjómsýslunni. Þess vegna var um leið ákveðið að kjömir full- trúar svo og embættismenn byðu upp á viðtalstíma úti í hér- aðinu og að við reyndum á þann hátt að gera stjómsýsluna sýni- legri og aðgengilegri. Það er von mín að slíkt fyrirkomulag megi einnig verða til þess að flýta þeirri hugarfarslegu sameiningu sem er okkur nauðsynleg. Að Iokum Við höfum þurrkað út land- fræðileg mörk þessara 11 sveit- arfélaga en því miður tel ég að við eigum talsvert í land með að upplifa okkur sem eina heild og líta á sameiginlega hagsmuni okkar í stað þeirra sem sundra okkur. Ég heyri stundum örla á gömluin hrepparíg og að Krók- urinn taki allt til sín. Ég held að ef menn skoða af sanngimi þá þróun sem orðið hefur síðan sameiningin átti sér stað, þá geti enginn með rökum haldið því fram að eitthvert hinna gömlu sveitarfélaga hafi orðið útundan, eða að hlutimir hefðu batnað ef sameiningin hefði ekki átt sér stað. Það sem þó mun verða hinn endanlegi mælikvarði á hvemig okkur tekst til sem líf- vænlegt sveitarfélag, er þróunin í búsetumálum. Á síðasta ári fækkaði hér einungis um 10 manns, en á árinu 1998 fækkaði um 181 íbúa. Ef þessi þróun heldur svona áfram og okkur fer jafnvel að fjölga, kvíði ég ekki framtíðinni íþessu sveitarfélagi. En það er ekki sveitarstjómin ein sem stýrir þróuninni, heldur fyrst og fremst fólkið sjálft - ef við sem einstaklingar sem og stjómendur fyrirtækja og opin- berra stofnana höfum trú á því sem við erunr að gera og höfum trú á framtíð okkar hér getum við koinið ýmsu til leiðar - það held ég að hafi sannast á þessum tveimur ámm sem liðin em frá sameiningunni. S auðárkróki 6. mars 2000. Herdí s Á. Sæmundardóttir. Vandamál á vinstri væng Vandræðagangur á vinstri væng vantraust og lítið yndi, að þau lentu í einni sæng árangur næðist í skyndi. Mig langar að segja hér frá símtali - bara smá. Það var í prófkjörinu fyrir síðustu kosn- ingar. Þá hringdi í mig maður og bað um atkvæði mitt. Ekki til að raða á listann, ne-ei, hann hafði sjálfurákveðið sæti f huga, ég átti aðeins að merkja við jxtta sæti sem hann vildi sitja í - sem var þó ekki fyrsta sætið - skrítið! Ég sagði honum, þessum manni, að það væri alls ekki víst ég hlýddi, slæi ég til - set ég þig í fyrsta sæti, og bætti svo við: Það er ekki von á góðu fyr- ir jressa þjóð, fáist ekki hæfari menn til starfa í framvarða- sveitina. Að hugsa sér - gamall bóndi frammi í sveit skuli þurfa að segja ykkur - þessum kandídötum - hvemig eigi að hafa hlutina Hann fór þegar að útskýra sitt mál, þessi ágæti maður, með fljúgandi mælsku og faguryrð- um, fór á kostum og lauk máli sínu með því að segja. Nú - hvumig vilt þú þá hafa þetta öðruvísi, góði minn? Það er nú varla að ég fái mig til að segja það, sagði ég, það er svo augljóst nrál. Þið gefið ykkur fram - biðjið svo væntanlega kjósendur að raða á listann, og brýnið fýrir fólki, að til sé ætlast þeir einir raði á lista sem ætli sér að kjósa hann í kosningunum. Nei - ónei, þið hafið það ekki svona! Heldur vaðið fram með frekju og fyrirgangi, eins og ó- þekki strákurinn sem óð um allt og hrópaði: Ég vil hafa! ég vil fá!. Þið segið: Ég vil vera hér - ég vil vera þar - á þessum list- um. Ég vil 1. sætið, hrópar einn, ég vil 2. sætið, hrópar ann- ar, og svo - þegar þið fáið ekki vilja ykkar framgegnt, verðið þið vondir, - farið fram á öðrum lista - eða stofnið til nýs fram- boðs. Fyrir þessu eru ótal dæmi úr öllum flokkum, í langflestum kjördæmum landsins, og það má ekki á milli sjá - hver flokk- anna - eða flokksbrotanna - hver - hver - er„... er... Jæja en, sleppum því. Þetta gengur ekki svona. Hér er vandamálið íhnotskum -stjóm- leysið á Islandi, í þessu gósen- landi sem gæti verið eitt göfug- asta og besta ríki í heimi, en þar emm við komin í hring - það er nefnilega enginn meiri held- ur en hann er, engin stefna eða flokkur meiri heldur en menn- imir sem halda um stjómvöl- inn. Þar liggur hundurinn graf- inn. Og svo leyfa sumir sér - þessir vísu!!! menn, að gæla við hugmyndir - eins og inn- flutning á nautpeningi. Varþá ekki minkur og karakúl nóg??? Gunnar Gunnarsson, Syðra-Vallholti. Vöruflutningar Sauðárkrókur - Skagídjöróur Daglegar ferðir Vörumóttaka í Reykjavík hjá Aðalflutningum Héðinsgötu 2 Sími 581 3030 Bjarni Haraldsson sími 453 5124.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.