Feykir - 14.06.2000, Blaðsíða 8
14. júní 2000, 22. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
.
KJORBOK
Vinsœlasti sérkjarareikningur Islendinga
- með hœstu ávöxtun í áratug!
Landsbanki
jslands
í forystu til framtíðar
Utibúið á Sauðárkróki - S: 453 5353 .
Ýr með lægsta tilboð
í vatnstankinn
Trésmiðjan Ýr á Sauðár-
króki var með lægsta tilboðið í
byggingu vatnstanks við Hofs-
ós, en útboð voru opnuð nýega.
Ýr bauð 6.863.900 og er það
91% af kostnaðaráætlun. Sam-
þykkt hefur verið að taka þessu
tilboði.
Tvö önnur tilboð bárust í
verkið. Tilboð K-Taks var 98%
af kostnaðaráætlun en Friðriks
Jónssonarsf. 159%.
Nýi vatntankurinn niun leysa þann gamla af hólmi.
Árni Heiðar ásamt samgönguráðherra Sturla Böðvarssyni
og Kristjáni Möller alþingismanni.
Takk fyrir göngin
sagði Árni Heiðar við samgönguráðherra
Ungur herramaður, Ami
Heiðar Bjamason, var staddur í
Reykjavík þegar umræðan um
jarðgangnaáætlunina var sem há-
væmst og fékk þá uppfyiltan
þann draum sinn að skoða Al-
þingi í fylgd vinar sína og ná-
granna Kristjáns L. Möllers al-
þingismanns. Hellan blað Sigl-
firðinga segir frá þessu. en rnarg-
ir Skagfirðingar kannast við
Áma Heiðar frá því hann var í
sérdeildinni og hann kemuralltaf
annað slagið í heimsókn á Krók-
inn.
Ámi sat á pöllum þingsins
meðan atkvæðagreiðsla fór fram,
sat hluta þingflokksfundar Sam-
fylkingarinnar og síðan var farið
í kaffi. Þar hitti hann m.a. Pál
Pétursson félagsmálaráðherra og
bar honum kveðju frá Sverri
Sveinssyni. Þegar samgönguráð-
herra Sturla Böðvarsson gekk
inn í kaffistofuna var hann
kynntur fyrir Áma sem var skjót-
ur til svars að vanda og sagði
þegar hann tók í hönd Sturlu:
„Takk fyrir göngin”. Svo mörg
voru þau orð, en að sögn Árna
var þessi heimsókn á Alþingi
ákaflega skemmtileg.
Lögreglan
kynnirsig
Vilhjálmur Stefánsson lögregluþjónn á Blönduósi lætur öku-
inanni í té spjald þar sem þjónusta lögreglunnar og björg-
unarsveitarmanna er kynnt.
„Við viljum gjaman leggja
okkar að mörkum til slysalausrar
umferðar og þessi áminning til
vegfarenda er viðleitni okkar í þá
veru”, segir Kristján Þorbjörns-
son yfirlögregluþjónn á Blöndu-
ósi en fyrir hvítasunnuhelgina,
fyrstu stóm umferðarhelgi sum-
arsins, fór lögreglan á Blönduósi
að dreifa spjaldi til vegfarenda en
á því em á framhlið myndir af á-
höfnum lögreglu- og sjúkrabif-
reiða í Húnavatnssýslum, og á
bakhlið greint frá hlutverki þess-
ara aðila gagnvart umferðinni.
„.... ef eitthvað bregður útaf
svo sem slys eða önnur óhöpp þá
kemur þetta fólk þér til aðstoðar.
Það er einlæg ósk okkar allra að
ferð þin verði ánægjuleg og ó-
happalaus og að þú þurfir ekki á
aðstoð okkar að halda. Of hraður
akstur er ástæða margra óhappa
og því hefur lögreglan á Blöndu-
ósi lagt mikla áherslu á að spoma
við of háum umferðarhraða. Það
er því okkar von að þú sjáir þér
fært að íylgja umferðarreglum
og leggja þannig þitt af mörkum
til að stuðla að slysalausri og ör-
uggri umferð öllum til hagsbóta.
Með ósk um góða og velheppn-
aða ferð og ánægjulega heim-
komu.” Og þessi orðsending er
frá Rauðakrossdeildunum á
Skagaströnd, Blönduósi og
Hvammstanga og lögreglunni á
Blönduósi.
„Tvær konur“ sýnt á Þingvöllum
Leikritið „Tvær konur við ár-
þúsund - saga Guðríðar Þor-
bjamardóttur” verður sýnt á
Kristnitökuhátíðinni á Þingvöll-
um sunnudaginn 2. júlí nk. Þá
verður það einnig sýnt á Snæ-
fellsnesi síðustu helgi þessa mán-
aðar í tilefni afhjúpnunar styttu
um Guðríði, en tvær sýningar
verða í Bifröst í næstu viku, á
miðvikudags- og fimmtudags-
kvöld.
Að sögn Jóns Ormars Onns-
sonar höfundar leiksins og leik-
stjóra er einkar ánægulegt og
skemmtilegt tækifæri að fá að
sýna á Þingvöllum. Þar verður
góð aðstaða til sýningar að sögn
Jóns, sýnt á palli og gott hljóð-
kerfi ætti að tryggja að textinn
komist til skila. Leikurinn hefur
verið æfður upp að undanfömu,
en Vilborg Halldórsdóttir sem
lék innri Guðríði í sýningunum í
vor, er farin til háskólanáms á
Italíu. I hennar stað er komin
Pálína Jónsdóttir mikil leikkona
og dansari frá Lónkoti í Sléttu-
hlíð, þannig að nú er sýningin
orðin alskagfirsk, en með hitt
hlutverkið fer Bára Jónsdóttir.
„Eg held að Skagfirðingar
geti orðið stoltir af Guðríði”, seg-
ir Jón Oimar, en leikurinn fékk
mjög góða dóma jægar hann var
sýndur í Bifröst í vor.
Vilborg og Bára í hlutverkum sínum.
TOYOTA
- tákn um gæði
...bílar, tryggjngar,
bækur, ritföng,
framköllun, rammaj,
tímarit, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABÚÐ
BRYWJARS
SUÐURGÖTU 1 SÍMI 483 5950
Kodak Pictures
KODAtTÉXPRESS
TRYCCINCA-
MIÐSTÖÐIN HF.
- þegar mest á reyniii