Feykir - 12.07.2000, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MED RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Flæðamar á Sauðárkróki sönnuðu sig sem gott hátíðarsvæði í síðustu viku þegar þar fór fram
hátíð kennd við „Búöirnar frá Hópi“. Hér eru Gyldran og Snörurnar að skemmta.
Endanlega ákveðið að Byggða-
stofnun ffytji á Sauðárkrók
Höfðað til atgerfísfólks um nvja starfsemi
Mikill áhugi fyrir
frumkvöðlasetrum
„Það er mjög mikils virði
fyrir sveitarfélagið að fá
Byggðastofnun hingað. Þama
eru mörg störf fyrir háskóla-
menntað fólk og tilkoma stof-
nunarinnar hefur hliðaráhrif
og styrkir frekar þá þ jónus-
tu sem fyrir er. Það höfum við
þegar séð eftir að Þróu-
narsviðið kom. Þetta er
fagnaðarefni“, segir Snorri
Björn Sigurðsson sveitar-
stjóri.
Valgerður Sverrisdóttir iðn-
aðarráðherra tilkynnti fyrir
helgina ákvörðun sína þess efn-
is, að aðalstöðvar Byggðastofn-
unar flytjist til Sauðárkróks.
Ráðherrann byggir ákvörðun
sína á hagkvæmniskönnun sem
Price Waterhouse Coopers
gerði að beiðni ráðherrans, en
hún leiddi í ljós að 10 milljónir
geti sparast í árlegum rekstrar-
kostnaði við flutninginn. Þá
myndist 70 milljón króna já-
kvæður mismunur við að selja
húsnæði stofnunarinnar í
Reykjavík, en hinsvegar kosti
um 10 milljónir að llytja stofn-
unina norður.
í tilkynningu frá iðnaðar-
ráðuneytinu segir að ákvörðun-
in sé tekin í kjölfar þess að
stjóm Byggðastofnunar sam-
þykkti í júníbyrjun að flytja
Byggðastofnun til Sauðárkróks,
en Þróunarsvið stofnunarinnar
hefur verið þar staðsett frá árinu
1998. Ráherrann leggur áherslu
á að stjóm stofnunarinnar vandi
nrjög til flutningsins og undir-
búi hann vel, en stefnt er að því
að það verði innan árs. Val-
gerður Sverrisdóttir ráðhema
átti fund með starfsmönnum
Byggðastofnunar áður en flutn-
ingurinn var ákveðinn og legg-
ur áherslu á að hagsmunir nú-
verandi starfsfólks í Reykjavík
verði tryggðir eins og hægt er
og lög standa til.
Fjórtán störf em í Byggða-
stofnun í Reykjavík og fyrstu
viðbrögð starfsfólks við flutn-
ingnum vom vonbrigði. Það er
því með öllu óljóst hve margir
þeina munu fylgja stofnuninni
til Sauðárkróks, en vonir standa
til að þeir verði sem flestir
þannig að sú þekking sem þeir
búi yfir nýtist stofnuninni
áfram. Guðmundur Malmquist
forstjóri Byggðastofnunar er
meðal þeirra staifsmanna sem
er óákveðinn. Hann segist eiga
eftir að gera það upp nreð sinni
fjölskyldu hvort hann komi
norður.
Mikill áhugi virðist vera fyrir
þátttöku í svokölluðum frum-
kvöðlasetrum, sem fyrirhugað
er að koma á fót á Norðurlandi
vestra, að sögn Bjamar Þórs
Einarssonar framkvæmda-
stjóra SSNV. „Þetta er á
margan hátt mjög spennandi
verkefni”, segir Bjami Þór, en
frumkvöðlasetrinu eru ekki
einungis ætlað að þjóna heinia-
aðilum, heldur skapast þama
einnig möguleikar á að fá nýja
starfsemi og atgeríisfólk inn á
svaðið.
Frumkvöðlasetur er aðstaða
til að fóstra ný fyrirtæki sem
byggja á sérstöðu og nýsköpun
þar sem m.a. er veitt aðstoð við
stofnun fyrirtækjanna og rekstur
þeirra í allt að fimm ár. Starfs-
hópur hefur unnið að þessu verk-
efni og býst Bjarni Þór við því
að gengið verði frá reglugerð um
verkefnið á ársþingi SSNV á
Hólum undir lok ágústniánaðar.
Húnaþing vestra hefur þegar
boðið fram húsnæði undir frum-
kvöðlasetur að Höfðabraut 6,
sem er í eigu sveitarfélagins og
prjónastofan ísprjón var áður til
húsa. Þá er vitað að á leiðinni
eru erindi frá Blönduósbæ,
Siglufirði og frá Sveitarfélaginu
Skagafirði þar sem tekið er já-
kvætt í erindi SSNV um að
bjóða fram húsnæði fyrir frum-
kvöðasetur og þátttöku sveitarfé-
laganna í verkefninu. Bjami Þór
segir að áætlað sé að starfsstöðv-
ar frumkvöðlaseturs geti verið
staðsettar hvar sem er í Norður-
landi vestra, að því tilskyldu að
þær uppfylli þau skilyrði sem
sett verða, en m.a. á eftir að
ganga frá frjármögnunarþætti
verkefnisins.
Gert er ráð fyrir að Iðn-
þróunafélag Norðurlands vestra
leiði þetta verkefni og standa
vonir til að þarna skapist nýr
vettvangur til að vinna að þeim
verkefnum sem Invest hefur haft
með höndum mörg undanfarin
ár, í viðleitni til atvinnuþróunar á
svæðinu.
Óhöpp í Laxárdal
og Norðurárdal
Þrjár bílveltur hafa orðið í Skagafirði á síðustu dögum en sem bet-
ur fer hefur fólk ekki slasast í þeim. Hinsvegar slasaðist maður á fjór-
hjóli í fjalllendi í Laxárdal í síðustu viku.
Tvær bílveltur urðu á mánudag, önnur í Laxárdal og hin í Norð-
urárdal, en þar valt einnig bíll um helgina.
A flmmtudagskvöld barst tilkynning frá Neyðarlínunni um slas-
aðan mann í Laxárdal. Starfsmaður Landsímans var að vinna við
mælingar í fjalllendinu ofan Illugastaða. Valt fjórhjól hans í gili upp
af bænum með þeim afleiðingum að maðurinn hlaut opið beinbrot á
fæti. Þyrluflugmenn syðra voru settir í viðbragðsstöðu, en beiðnin aft-
urkölluð, enda tókst að koma sjúkrabíl upp í fjallið, þannig að sjúkra-
flutningsmönnum tókst með aðstoð lögreglu að bera manninn drjúg-
an spöl ofan úr fjallinu og koma honum undir læknishendur.
—KTcH^Íff ehjDI— SíMfTbílaverkstæði
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 Æ m m m m sími . 4535141
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata Ib 550 SauSárkrókur Fax:453 6140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA jfcBílaviðgerðir & Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA "5 Réttingar 3^ Sprautun