Feykir - 06.09.2000, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
„Við hvetjum alla til
að fara í fjarnám”
Vígreifir Skagstrendingar, Víðir og Einar Haukur, með kúrekum í Kántrýbæ.
Þriggja anna meistaranám var rekið á
vegum FNV, með aðstoð fjarfundabúnað-
ar, á vorönn 1999 til vors 2000. Nemend-
ur sátu í kennslustofum á Hvammstanga,
Blönduósi, Skagaströnd, Sauðárkróki og
Siglufirði en kennt var frá Króknum og
Blönduósi um gagnvirkan fjarkennslubún-
að. Kennt var fjögur kvöld í viku og var
skyldumæting í tíma. Kvöld eitt renni ég
til Skagastrandar til þess að forvitnast um
hvernig þeim Víði Olafssyni rafvirkja-
meistíU'a og Einari Hauk Arasyni verðandi
trésmíðameistara fannst meistaraskóli
FNV ganga fyrir sig.
Við Víðir komum okkur vel fyrir í
Kántrýbæ og ég spurði Víði hvemig það
hafi borið til að þeir fóm í þetta nám.
„Það var nú bara þannig að Ingibergur,
skólastjórinn okkar hér á Skagaströnd, tal-
aði við okkur nokkra iðnaðarmenn um að
það væri hægt að komast í fjamám í meist-
araskóla með því að stunda námið í fjar-
kennslutækjum sem búið væri að setja upp
í skólanum. Ég held líka að þeir héma í
hreppsnefndinni hafi verið að vinna að
þessu og hvatt fólk til að fara í námið”.
Gastu fengið meistararéttindi í rafvirkj-
un eftir þessar þrjár annir? „Neí ég þurfti
að taka nokkur námskeið fyrir sunnan í
Rafiðnaðarskólanum en þau námskeið eru
haldin á fnnmtudögum til laugardags svo
ég keyrði í það samhliða fjamáminu hér.
En það er alveg á hreinu að ef ég hefði
þurft að taka allt meistaranámið fyrir sunn-
an þá hefði ég flutt suður með fjölskyld-
una og þá er ekki víst að maður hefði
nokkuð komið til baka.”
í þessu kemur Einar Haukur til okkar
en hann hafði verið á æfingu hjá
kirkjukómum. Við ræðum vítt og breitt
um meistaranáinið. Þeir félagar em sam-
mála um að fjarkennslubúnaðurinn hafi
sannað gildi sitt og þessi tækni hafi ýmis-
legt fram yfir fjamám sem byggist á tölvu-
pósti. „Með þessu fonni geta menn spurt
kennarann eftir því sem tilefni er til, verið
í sambandi við aðra nemendur og síðast en
ekki síst hafa nemendur á hverjum stað
mikinn stuðning hver af öðmm og mikið
aðhald er fólgið í því að mæta á hverju
kvöldi til kennslunnar. En það var svo auð-
vitað misjafnt hvemig kennurunum gekk
að ná tökum á þessu og misjafnt hvaða fög
er gott að kenna í þessu en t.d. hvemig
Huldu gekk að kenna tjáninguna í íslensk-
unni sýnir að ef fólk leggur sig fram, er já-
kvætt og nær tökum á þessu er allt hægt.”
Víðir og Einar em sannfærðir um að
stór hluti af náminu nýtist þeim vel. „Það
er gott að hafa Iært áætlanagerðina, það
nýtist beint, einnig ‘excel’ námið og svo er
ýmislegt sem nýtist óbeint. Meistararétt-
indin styrkja okkur að sjálfsögðu og við
getum þá unnið sjálfstætt og tekið að okk-
ur verk en almennt séð emm við sterkari á
vinnumarkaði, td. orðnir miklu betri á tölv-
um o. s. frv..”
Að endingu spyr ég strákana hvort þeir
myndu hvetja fólk til að stunda fjamám.
„Alveg tvímælalaust’’ ljúka þeir upp ein-
um munni “ Við teljum að þetta sé fram-
tíðin fyrir fólk úti á landi, hvort sem það
vill ná sér í réttindi í starfsnámi eða bara
menntast til að styrkja sig almennt og njóta
Iífsins. Við hvetjum alla til að fara í fjar-
nám.” Hörður Ríkli.
Vika símenntunar 4. -10. september 2000 / Allir dagskrárliðir ókeypis
Mánud.
4. sept.
Þriðjud.
5. sept.
Miðv.d.
6. sept.
Fimmtud.
7. sept.
Föstud.
8. sept.
Föstud.
Laugard
9. sept.
Sunnud
10. sept.
' Franska og frönsk menning - fjarkennt frá Sauðárkróki,
Bóknámshúsi FNV
Heimsóknir f fyrirtæki í Húnavatnssýslum :: Opið í tölvu-
vemm frá kl. 18-20, kynning á Intemetinu og vefnum
Landsbankinn á netinu frá kl. 20-21.30: Einkabanki Lands-
bankans, Kauphöll Landsbréfa - Wall Street á vefnum
:|: Heimsóknir í fyrirtæki í Skagafirði
:;: Áhugasviðskönnun. viðtöl við náms- og starfsráðgjafa
:: Heimsóknir í fyrirtæki á Siglufirði
Áhugasviðskönnun, viðtöl við náms- og starfsráðgjafa
:; Opið í tölvuvemm. Netþjónusta bankanna kl. 18-20.00
Frá kl. 20-22 kynning á Intemetinu og vefnum
* Kynning á námsvísi FSNV og sýnikennsla í verslunum
:: Áhugasviðskönnun, viðtöl við náms- og starfsráðgjafa
: Námskeið fyrir sjúkraliða - Umönnun lungnaveikra
Esther Ágústsdóttir, frönskukennari. Fjarfundabúnaður opinn á Siglufirði, Blönduósi, Skagaströnd,
Hvammstanga og Sauðárkróki kl. 20.00
:: Aðilar úr samstarfshópi um Viku símenntunar
* Á Sauðárkróki, Siglufirði, Skagaströnd, Hvammstanga og Blönduósi
* Á Sauðárkróki
: Franska og frönsk menning - fjarkennt frá Sauðárkróki, Bóknámshúsi FNV Aðilar úr samstarfs-
hópi um Viku símenntunar Hvammstanga, Klapparstíg 4, skrifst. Samstöðu kl.13.00-15.00: Blöndu-
ós: Þverbraut 1, skrifst. Svæðisvinnumiðlunar kl. 16-18.00Esther Ágústsdóttir, frönskuk. Fjarfunda-
bún. opinn á Siglufirði, Blönduósi, Skagaströnd, Hvammstanga og Sauðárkróki. Kl. 20.00
Aðilar úr samstarfshópi um Viku símenntunar
Sauðárkróki, skrifst. Svæðisvinnumiðlunar, Stjómsýsluhúsinu. Kl. 13.00-17.00
:;: Á Siglufirði, Skagaströnd, Hvammstanga og Blönduósi
Á Sauðárkróki, Siglufirði, Skagaströnd. Hvammstanga og Blönduósi
: Samstarfshópur um Viku símenntunar og leiðbeinendur verða í anddyri verslana á Sauðárkr.,
Hofsósi, Siglufirði, Blönduósi, Skagaströnd og Hvammstanga.
1 Siglufjörður: Skrifstofa Vöku, Suðurgötu 10, kl. 13.00-17.00
* Fjarkennt frá Neskaupsstað kl. 9-17
Námskeið fyrir sjúkraliða - Umönnun lungnaveikra :: Fjarkennt frá Neskaupsstað kl. 9-17
—KTen£»!t clijDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
mr
bílaverkstæði
sími: 95-35141
Sæmundargata 1 b 550 Sauðárkrókur Fax: 36J40
jfcBílaviðgerðir // Hjólbarðaviðgerðir
Réttingar Sprautun