Feykir - 06.09.2000, Qupperneq 2
2 FEYKIR 28/2000
Menntun er skemmtun
Vika símenntunar 4. - 10. september 2000
Vika símenntunar á íslandi er haldin að
tilhlutan menntamálaráðuneytisins sam-
kvæmt samþykkt UNESCO, sem hefur
beint því til aðildarlanda sinna að vikan sé
að þessu sinni tengd alþjóða læsisdeginum
8. september.
Menntamálaráðuneytið mælist til þess
að athyglinni sé sérstaklega beint að þeim
sem hafa stysta skólagöngu og þeir hvatt-
ir til sóknar. Oft stendur kjarkleysi og ó-
vissa um möguleika í vegi þess að hið
hæfasta fólk leiti sér ánægju og þroski
hæfileika sína með frekara námi.
Opinber markmið með vikunni eru að
þessu sinni
*að auka skilning þess hóps, sem síst
stundar nám, á mikilvægi símenntunar.
*að veita ráðgjöf um nám við hæfi og
námsmöguleika sem standa til boða.
*að styðja við þróum mismunandi leiða til
ráðgjafar og til að nálgast markhópinn.
*að stuðla að samstarfi fagaðila sem koma
að símenntunarmálum
*að stuðla að því að boðið sé upp á
námstilboð sem höfði til markhópsins.
Símenntunarmiðstöðvar á landsbyggð-
inni em umsjónaraðilar viku símenntunar
hver á sínu svæði. A Norðurlandi vestra
var myndaður samstarfshópur fulltrúa
verkalýðsfélaga, Svæðisvinnumiðlunar,
atvinnuþróunarfélaganna Hrings og
INVEST, Jafnréttisráðgjafa Norðurlands
vestra og Farskólans, til undirbúnings.
Hér hefur verið gengið út frá því við
alla skipulagningu að sams konar dagskrá
standi til boða alls staðar í kjördæminu og
munum við leitast við að vera sýnileg,
nýta prent- og ljósvakamiðla og nýjustu
tækni til að koma málefninu á framfæri í
heimabyggð hvers og eins.
Meðal þess sem er í boði í vikunni má
nefna ókeypis kynningu á fjamámskeiði í
frönsku og franskri menningu. Þetta nám-
skeið er tilraun sem við ætlum að hleypa
af stokkunum í vetur og nýta okkur tækn-
ina og fjarfundabúnaðinn sem allir íbúar
Norðurlands vestra eiga aðgang að.
Einnig verður símenntunarnámskeið fyrir
sjúkraliða “Umönnun lungnaveikra”
kennt í vikunni. Það námskeið verður
kennt frá Neskaupstað og er kennslan í
höndum Bjöms Magnússonar, sérffæðings
í hjarta- og lungnasjúkdómum.
Námsvísir FSNV - miðstöðvar sí-
menntunar á að hafa borist í hvert hús, hér-
aðsfréttablaðið Feykir er tileinkað mál-
efninu og dreift á hvert heimili, svæðisút-
varpið mun leggjast á sveif með okkur og
helga morgundagskrána umfjöllun um sí-
menntun á Norðurlandi.
Fyrirtæki verða heimsótt og á föstudag
verða fulltrúar undirbúningshóps um viku
símenntunar á helstu samkomustöðum í-
búanna, matvöruverslunum, ásamt hand-
verksfólki sem mun kynna eitthvað af því
sem í boði verður í vetur, á vegum Far-
skólans og annarra.
Samstarfshópurinn hvetur Norðlend-
inga, einstaklinga sem forsvarsmenn fyrir-
tækja, til að kynna sér möguleika sína á
námi og símenntun og býður fram ráðgjöf
og aðstoð við upplýsingaleit, hvort heldur
er í viku símenntunar eða síðar.
F.h. samstarfshóps um Viku símenntunar,
Anna Kristín Gunnarsdóttir.
í samstarfshópi um Viku sfrnenntunar sitja
fulltrúar: Farskóla Norðurlands vestra - mið-
stöðvar símenntunar, INVEST, Hrings At-
vinnuþróunarfélag Skagafj. hf, stéttarfélaga á
Norðurl. vestra, SvæðisvinnumiðlunarNorð-
url. vestra og Jafnrétúsráðgjafinn á Norður.
vestra.
Að láta drauminn rætast
Hvert á ég að snúa mér ef
mig langar í frekara nám?
Suma dreymir um velgengni...
Aðrir vinna markvisst að því að ná ár-
angri.
Gildi símenntunar fyrir starfsframa og
starfsöryggi er óumdeilanlegt. Ljóst er að
vinnuumhverfið í íslenskum fyrirtækjum
er að breytast og þær breytingar kalla á
aukna menntun og sjálfstæðari einstak-
linga. Krafan um vel upplýsta einstak-
linga eykst stöðugt og eftirsóttustu eigin-
leikar hjá starfsmönnum verða í næstu
framtíð sveigjanleiki, hæfni til hópstarfs,
hæfni til samráðs og færni í upplýsinga-
leit. Þess vegna er það hverjum einstak-
lingi afar mikilvægt að hafa stöðugan að-
gang að menntun og upplýsingum. Hver
og einn þarf í dag að vera undir það bú-
inn að þurfa að gegna fleiru en einu starfi
á ævinni, ekki er lengur hægt að undirbúa
sig í eitt skipti fyrir öll á unglingsárunum
þó menntun á þeim tíma sé vissulega
mjög mikilvæg. Eins er nauðsynlegt að
geta tileinkað sér nýja þekkingu og fæmi
innan þess starfs sem einstaklingurinn
gegnir því tækninýjungar eru örar og
stöðugar breytingar framundan.
Framboð á menntun er alltaf að
aukast og aðgengi að henni sömuleiðis.
Nú geta flestir nálgast þá menntun sem
þeir hafa áhuga á í næsta nágrenni við
sig, ef ekki í næsta skóla eða símenntun-
arstofnun þá í fjamámi. Fjarnám á
Byggðabrúnni er nú hægt að nálgast á
öllum þéttbýlisstöðum á Norðurlandi
vestra og fjarnám í gegn um tölvu geta
allir stundað úr heimilistölvunni sinni ef
hún er tengd veraldarvefnum. Eðlilegt er
að mörgum, bæði unglingum og full-
orðnum, reynist erfitt að rata um frum-
skóg námsframboðsins en möguleg lausn
á því er að leita sér ráðgjafar hjá næsta
náms- og starfsráðgjafa. Á Norðurlandi
vestra er t.a.m. boðið upp á ókeypis
náms- og starfsráðgjöf hjá ráðgjöfum
Svæðisvinnumiðlunar Norðurlands
vestra og sú þjónusta stendur öllum til
boða.
Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem
minni menntun hafa eiga frekar á hættu
að missa vinnuna og lenda í erfiðleikum
með að komast aftur inn á vinnumarkað-
inn. f nýlegri samantekt kemur fram að
tæplega 70% þeirra sem eru atvinnulaus-
ir hafa einungis gmnnmenntun eða gagn-
fræðapróf og stutta starfsmenntun. Sam-
bærilega menntun hafa hins vegar rétt
rúmlega 40% þeirra sem eru starfandi á
vinnumarkaðinum. Af [ressu má ráða að
aukinni menntun fylgir aukið öryggi á
vinnumarkaði. Þekking og hæfni getur
þannig ráðið úrslitum í hörðum heimi
samkeppninnar. Þá er talið að 7 af hverj-
um 10 störfum sem lagst hafa niður á síð-
ustu ámm hafi ekki krafist neinnar sér-
þekkingar en á hinn bóginn þá krefjist
núna sérþekkingar 7 af hverjum 10 störf-
um sem skapast. Ef litið er til þessara
upplýsinga má það vera ljóst að einhvers
konar menntunar verður krafist af all-
flestum starfsmönnum á vinnumarkaðin-
um á næstu ámm.
Sá sem einungis lætur sig dreyma um
velgengni nær seint árangri. Að breyta
draum í vemleika getur á stundum virst
næsta vonlaust en reynslan sýnir að það
er mögulegt. Dag hvem stendur sá sem
lætur sig dreyma frammi fyrir ótal val-
kostum og þarf að ákveða hvað hann ætl-
ar gera. Hann getur valið að stíga fyrsta
skrefið og leita sér ráðgjafar eða upplýs-
inga um námsframboð eða hann getur
valið að halda áfram að láta sig dreyma.
Tilgangurinn með viku símenntunar er
að sem flestir láti drauminn rætast.
Líney Árnadóttir. forstöðumaður
Svæðisvinnumiðlunar Norðurl. vestra.
Eitt af því sem fólk þarf að gera upp
við sig er hvort það ætlar að setjast á
skólabekk í formlegt nám sem tekur
fullan dagvinnutíma, eða hvort það
hugsar sér frekar að vinna og læra utan
vinnutíma í fjarnámi, kvöldskóla eða
einhverju af því tagi.
Hyggist fólk hefja fullt nám í dag-
skóla en veit ekki nákvæmlega hvaða
skóli eða námsbraut hentar því best, í
ljósi áhugasviðs og reynslu, má alltaf
byrja á að hafa samband við námsráð-
gjafa Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra eða starfsmenn Farskólans.
Hólaskóli veitir einnig upplýsingar um
allt nám sem lýtur að landbúnaði, hesta-
mennsku, fiskeldi og ferðaþjónustu.
Kjósi fólk annars staðar en í Skagafirði
að hefja eftirgrennslan heima hjá sér má
benda á Svæðisvinnumiðlun Norður-
lands vestra, Iðnþróunarfélagið eða
stéttarfélögin sem aðstoða einnig eftir
föngum.
Staðreyndin er sú að jafnvel þó fólki
sé nokkuð ljóst hvað það vill læra þá
kunna að vera til margar og fjölbreyti-
legar leiðir að settu marki. Sumir skól-
ar bjóða samningsbundið nám til starfs-
réttinda með all nokkrum reynslutíma á
vinnumarkaði inniföldum í námi á með-
an aðrir skólar bjóða starfsréttindanám
með meiri skólagöngu. Sumir skólar
eru sérhæfðir í matvælagreinum, aðrir
með vélvirkjun og húsasmíði og svo
mætti lengi telja. Síðan eru skólar sem
bjóða fjamám og má gera ráð fyrir að
námsframboð af því tagi fari vaxandi.
Ef fólk er í stakk búið til að hefja
nám á háskólastigi má fá upplýsingar
og aðstoð hjá Farskóla Norðurlands
vestra um það nám sem mögulegt er að
stunda í fjamámi, hvort heldur það er
með aðstoð tölva eða fjarfundabúnaðar
sem staðsettur er á hinum ýmsu stöðum
á Norðurlandi vestra. Geta má þess að
stúdentsprófs er ekki alltaf krafist, ef
fólk hefur náð ákveðnum aldri og öðlast
ákveðna reynslu kann það að duga til að
hefja tiltekið nám. Háskólamir í
Reykjavík, Akureyri og Bifröst bjóða
upp á ijamám og einnig Endurmenntun-
arstofnun Háskóla íslands sem m.a.
býður upp á mjög áhugavert rekstrar- og
viðskiptanám.
Einstaklingar geta hafið nám í því
sem er í boði samkvæmt auglýstum
námskrám. Ef hins vegar hópur fólks á
tilteknum stað eða stöðum vill að á-
kveðið nám verði boðið í fjamámi, sem
ekki er auglýst samkvæmt námskrá, þá
er mögulegt að semja um það sérstak-
lega við viðkomandi skóla. Skilyrði er
einungis að ákveðinn lágmarksfjöldi
vilji hefja námið og má þá semja um
verkefnið sem slíkt. Með þessu móti
hafa áhugahópar um t.d. hjúkmnarfræði
og leikskólakennslu náð fram kennslu í
þeim fögum á stöðum eins og Sauðár-
króki, Isafirði og Keflavík en kennt er
frá Háskólanum á Akureyri.
Að lokum hvetjum við fólk til að
bera sig eftir björginni og láta heyra í
sér.
Hörður Ríkharðsson, er formaður
stjómar Farskóla Norðurlands vestra -
miðstöðvar símenntunar og starfsmaður
INVEST.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
Kemur út á miðvikudögum. Utgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægissú'g 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box 4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsími 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang:
feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaritari: Örn Þórarinsson. Feykir á aðUd að
Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.
Sérblað í tílefni Viku símenntunar 4.-10.
september. Umsjónarmaður og ritstjóri Anna
Kristín Gunnarsdóttir. Ritnefnd: Ásdís Guð-
mundsdóttir, Ásdís Magnúsdóttir, Bjamheiður
Jóhannsdóttir, Bylgja Björnsdóttir, Hörður Rík-
harðsson, Jakob Frímann Þorsteinsson, Lilja J.
Ámadóttír og Líney Árnadóttir.