Feykir - 11.10.2000, Blaðsíða 8
11. október 2000, 34. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Á nýja skíðasvæðinu í Tindastóli hafa staðið yfir talsverðar
framkvæmdir nú síðsuinars og félagar í skíðadeildinni unnið
bakið brotnu. Verið er að reisa 200 fermetra skenimu, fyrir
tæki og búnað á svæðinu. Byggingunni miðar vel og er reik-
nað með að húsinu verði lokað fyrir veðri og vindum á næstu
dögum.
Innfjarðarmiðin á Skagafirði og Húnaflóa
Ekki útlit fyrir
rækjuveiðar í vetur
„Það bendir maigt til þess að
engin innfjarðarræka verði í vet-
ur, en það kemur betur í ljós
þegar miðin verða könnuð aftur
eftir áramótin”, segir Ágúst
Guðmundsson framkvæmda-
stjóri rækjuvinnslunnar Dögun-
ar, en rækjumiðin á Skagafirði,
Húnaflóa og norðausturlandi
komu mjög illa út í haustskoðun
Hafrannsóknarstofúnar, sökum
mikillar fiskgengdar á gmnnslóð.
Þetta kom mönnum svo sem
ekki á óvart þar sem mikill fisk-
ur hefur verið inni á Skagafirði
þetta árið, og rækjan hefur ver-
ið að minnka á firðinum síðustu
misserin, sem og á Húnaflóan-
um og þar verður heldur ekki
leyfð nein veiði fram að áramót-
um frekar en alla síðustu vertíð.
„Það er ljóst að við komum
til með að vera án mjög góðs
hráefnis í vetur, sem innfjarðar-
rækjan er, en sem betur fer hefur
veiðin verið að vaxa heldur á út-
hafinu. Þannig að við höldum
óbreyttum rekstri, treystum á
veiði okkar skips Rastarinnar,
sem verður gerð út sem aldrei
fyrr, og einnig fáum við rækju
frá togurum sem við eigum hlut
í á Flæmska hattinum og af
mörkuðunum eins og gengur”,
segir Ágúst Guðmundsson.
Og það er ekki aðeins í
vinnslunni sem Dögun heldur
sínu striki. Nú standa yfir fram-
kvæmdir við stækkun verk-
smiðjunnar. Stækkunin nemur
um 350 fennetrum og verður
hún komin í gagnið væntanlega
í lok vetrar, en þar verður rými
fyrirfrekari vélakostog pökkun.
Fjórir bátar hafa stundað
rækjuveiðamar í Skagafirði und-
anfaiin ár og er útlit fyrir að eitt-
hvað uppihald verði hjá þeim á-
höfnum vegna hruns rækju-
stofnsins, þar sem ekki tekur þá
nema hluta úr árinu að veiða
bolfiskkvótann.
—
KJORBOK
Vinsœlasti sérkjarareikningur íslendinga
- með hæstu ávöxtun í áratug!
Landsbanki
jslands
í forystu til framtíðar
Utibúiö á Sauðárkróki - S: 453 5353 .
Uppskeruhátíð „Fegurra
sveita“ haldin í Víðidalnum
Húnaþing vestra lætur til sín taka í umhverfismálum
Uppskeruhátíð í verkefninu
fegurri sveitir fór fram í Víði-
dal í Húnaþingi vestra sl. föstu-
dag. Hún hófst með skoðunar-
ferð að Kolugljúfri og í Borg-
arvirki um hádegisbilið og síð-
an var samkoma í félagsheim-
ilinu Víðihlíð þar sem ávöip
voru flutt og landbúnaðarráð-
herra Guðni Ágústsson afhenti
viðurkenningar til þátttakenda
í verkefninu „fegurrri sveitir”
en það er á vegum landbúnað-
arráðuneytisins.
Um fimmtíu aðilar voru
samankomnir í Víðidalnum á
föstudag, en um 108 félög, ein-
staklingar og sveitarfélög em
aðilar að verkefninu. Að mati
Skúla Guðbjömssonar um-
hverfisfulltnia í Húnaþingi
vestra var uppskemhátíðin vel-
heppnuð og skoðunaiferðin
mjög skemmtileg og góð
stemmning, enda veðrið gott
og m.a. var harmonikkuleikur
og söngur sem glumdu í Borg-
arvirkinu.
Þátttaka Húnaþings vestra í
verkefninu „feguiri sveitir”
beinist að því að safna saman
öllu brotajámi í sveitarfélaginu
og er það langt komið. Því er
safnað saman við malarnámu
ofan við Hvammstanga og
verður væntanlega pressað og
flutt burtu nú í byrjun vetrar.
Skúli segir að eins og víða
um sveitir hati verið að finna
bfiakirkjugarða og annað
jámadrasl, „á bak við hóla”
eins og hann orðaði það. Fyrir
nokkm fór hann um héraðið og
tók þá saman hversu mikið
magn væri til að brotajámi og
hvað það væri að finna. Þetta
reyndist um 120 tonn og fjár-
munir til að standa undir kostn-
aði við söfnun og förgun brota-
málmsins, fengust af umhveif-
islið búvömsamningsins.
En umhverfisnefnd Húna-
þings vestra er einnig að vinna
að flokkun sorps og þessa dag-
ana er einnig að byrja móttaka
á pappfr. I vor byrjuðu 18 fjöl-
skyldur í verkefni tengdu
flokkun sorps. Sveitaifélagið
lét fólkinu í té svokallaðar jarð-
gerðartunnur, en í þeim um-
Skúli Guðbjörnsson um-
hverfisfullltrúi Húnaþings
vestra.
breytist sorp í gróðurmold.
Þetta verkefni gekk mjög vel
og nú í haust var ákveðið að
fjölga fjölskyldum í þessu
verkefni og voru keyptar 20
jarðgerðartunnur til viðbótar
og hefur Skúli Guðbjömsson
umhverfisfulltrúi Húnaþings
vestra einmitt verið að koma
þeim til viðtakenda nú síðustu
dagana.
Óhappahrina og dráttarvélaslys
Mikið var um óhöpp í um-
dæmi lögreglunnar á Sauðár-
króki sl. fimmtudagskvöld, þar
sem m.a. ung stúlka slasaðist
nokkuð á andliti þegai' bíll henn-
ar lenti utan vegar á Siglufjarð-
arvegi skammt frá bænum
Djúpadal, og þurfti að flytja
hana á sjúkrahús á Akureyri. Á
sunnudag var síðan dráttarvél
ekið út af háuni vegkanti við
Skarðarétt í Gönguskörðum.
Ungur maður sem ók dráttarvél-
inni lenti undir henni en vegfar-
endur komu fljótt að og náðu. að
aðstoða hann við að komast
undan vélinni. Reyndist hann
óbrotinn en nokkuð marinn.
Dráttarvélin er hinsvegar mjög
mikið skemmd.
Ohappahrinan á fimmtu-
dagskvöld byrjaði kl. 20,30 þeg-
ar ekið var á nautgrip við bæinn
Geitagerði. Gripurinn hljóp út í
niyrkrið, en ekki urðu slys á
fólki í óhappinu. Klukkan 22 átti
sér síðan stað óhappið við
Djúpadalsafleggjarann. Stúlkan,
sem er 17 ára, ók bílnum og
tókst henni að komast með
einkabíl á heilsugæslustöðina á
Sauðárkróki. Hún var send með
sjúkrabíl til Akureyrar en hann
komst ekki lengra en að Reyni-
stað, þar sem á vegi hans varð
nautgripur og drapst sá við á-
reksturinn. Þetta mun samt ekki
hafa verið sami gripurinn og
ekið var á við Geitargerði fyrr
um kvöldið, en þessar jarðir
liggja saman. Sjúkrabíllinn
skemmdist mikið og varð að
kalla til varabíl af Króknum til
að flytja stúlkuna áfram til Ak-
ureyrar.
...bílaæ, tiyggngaæ,
bækur, ritföng,
framköllun, ramman,
tímarit, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABÚÐ
BRYBcJABS
SDÐURQðTU 1 SÍMI 4B3 5950