Feykir - 22.11.2000, Qupperneq 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Málefni Vindhælishrepps fá nýjan flöt
Horft til sameiningar
Blönduós og Engihlíðar
, Já þetta hefur dregist alltof lengi
vegna anna í ráðuneytinu en nú ætl-
um við að taka þessi mál fyrir og það
var seinast verið að ræða þetta á
fundi núna í vikunni. Við stefhum að
því að lyktir verði undir áramótin”,
sagði Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra aðspurður um málefni Vind-
hælishrepps, en hreppurinn hefur
verið undir tölu í nokkur ár og Páli
verið legið á hálsi fyrir það að vera
ekki búinn að drífa í því í sínu
heimakjördæmi að sameina hrepp-
inn öðrum. Páll segir hinsvegar að
þetta sé ekkert einsdæmi með Vind-
hælishrepp, til að mynda sé Þing-
vallahreppur búinn að vera undir
tölu um skeið.
Páll segir að nú horfi menn til sam-
einingarviðræðna Blönduósinga og
Enghlíðinga hvort ekki sé vænlegt að
sameina Vindhælishrepp þessum
tveimur sveitarfélögum. „Við munum
skoða þann möguleika þó svo að Eng-
hlíðingar hafi frekar viljað sameinast í
hina áttina, Skagahreppi, en reyndar er
Skaginn líka kominn neðarlega hvað
lágmarkstölu varðar”, segir Páll.
- En sýnist ekki Páli að það muni
líta ágætlega út að fyrmefnd sveitarfé-
lög ásamt Höfðahreppi á Skagaströnd
sameinst og þar með verði samfellt
svæði komin undir einn hatt?
„Jú vissulega en það hefur nú lítill
kraftur verið í sameiningarumræðunni
á þessu svæði. Blönduósingar og
Skagstrendingar hafa átt könnunarvið-
ræður, en annars er töluverð andstaða
þama í sumum hreppum gegn samein-
ingu en meiri áhugi annars staðar.
Kannski breytist þetta þegar boltinn
byrjar að rúlla”, sagði Páll Pétursson
félagsmálaráðherra í samtali við Feyki.
Að sögn Skúla Þórðarsonar bæjar-
stjóra á Blönduósi miðar vel viðræðum
við Enghlíðinga og það mun ráðast á
næstunni hvort eða hvenær efnt verði
til kosninga um sameininguna. Skúli
sagði að eingöngu væri verið að ræða
sameiningu þessara tveggja sveitar-
félaga, en hann gerði sér þó alveg grein
fyrir þeini stöðu sem Vindhælingar
væm í.
Konum fjölgar á
atvinnuleysisskránni
Fleiri konur vom án atvinnu í októ-
bermánuði en september í Norðurlandi
vestra, fimm konur bættust við á at-
vinnuleysisskrána en körlum fækkaði
um tvo á skránni. Þessi útkoma þýðir
að atvinnuleysi jókst í iðánuðinum um
0,1%, en hinsvegar var það 15,6%
minna en í sama mánuði í fyrra.
Meðalfjöldi atvinnulausra á Norð-
urlandi vestra í mánuðinum var 44 eða
um 0,9% af áætluðum mannafla en var
0,8% í september. Atvinnuleysi karla
mælist nú 0,5% en var 0,6% í septem-
ber, en hjá konunum er það 1,5% en
var 1,2% í september.
—KTeH£»f! chjDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
Þau tóku vel á þ\í í ástardúettnum Óskar Pétursson og Kristín R. Sigurðar-
dóttir með Skagfirsku söngsveitimú í Skagaíirði um helgina.
Málefni toflstöðva á fuflu hjá Fiskistofu
Sauðárkrókur einn
þriggja nýrra tollhafna
Hjá Fiskistofu er nú unnið að því að
afla leyfa fyrir þrernur tollhöfnum til
viðbótar á Norðurlandi: á Húsavík,
Sauðárkróki og Siglufirði, en eina toll-
höfnin nyrðra er nú á Akureyri. Grétar
Hannesson deildarstjóri hjá Fiskistofu
er nú staddur í Bmssel við annan mann
og samkvæmt upplýsingum frá Fiski-
stofu er unnið að málinu á fullu, en
hinsvegar má búast við að það muni
taka nokkum tíma að koma málinu í
gegnum kerfið ef það tekst þá.
Málefni landamærastöðva hafa ver-
ið talsvert í umræðunni að undanfömu,
einkum vegna Skagstrendings á Skag-
strönd og togarans Örvars. Vönast er til
að fulltrúar frá Evrópusambandinu
komi hingað til lands í janúannánuði
og líti á aðstæður og spurningin er
hvort að þeir séu tilbúnir að fallast á að
aðstæður á viðkomandi stöðum geti
orðið það góðar að tollskoðun verði
leyfð, en viðkomandi hafnir em við að-
ildina að EES bornar saman við mun
stærri hafnir í Evrópu.
Ljóst er að fáist leyfi fyrir þessum
nýju tollhöfnum koma þær vegabætur
sem nú em hafnar yfir Þverárfjall mjög
til góða, þar sem að það yrði þá
skömminni skárra fyrir Skagstrending
að flytja hráefnið frá Sauðárkróki 52
km leið eða frá Akureyri um 175 km,
en hinsvegar em Skagstrendingar ekki
hressir með dræmar undirtektir við ósk-
um um tollhöfn hjá sér, og er það ofur-
skiljanlegt.
jfKj
bílaverkstæði
Simi: 453 5141
Sæmundargata Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
Bílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir
Réttingar ^ Sprautun