Feykir - 22.11.2000, Page 4
4 FEYKIR 40/2000
Laxnes á Þverárballi
Það var ekki mikið um samkomu-
hús í Skagafirði þegar þessi saga gerð-
ist. Fyrir utan gömlu Bifröst á Sauðár-
króki var mér ekki kunnugt nema um
þrjú: Þau voru á Læk í Viðvíkursveit,
Stóru-Ökrum í Blönduhlíð og við
Steinsstaðalaug í Lýtinsstaðahreppi
(Laugarhúsið).
Mest voru þessi hús notuð til ýmiss
konar fundahalda. Þó kom það auðvit-
að fyrir að þar voru haldnir dansleikir.
Ærið myndu þessi hús þykja þæginda-
snauð nú. Þó var þar alþiljað einhver
skonsa þar sem hægt var að hita kaffi
og fram gátu farið veitingar. Sæti voru
engin nema trébekkir sem raðað var
meðfram veggjunum. Þar sátu döm-
umar milli þess sem þær vom á dans-
gólfinu. Og úti í einu horninu var svo
harmonikkuleikarinn.
Þó að þessi hús væm fyrir hendi þá
var býsna algengt að dansleikir, böll,
eins og oftast var sagt, væru haldin á
sveitaheimilum þar sem húsakynni
vom sæmilega rúmgóð. Þá var dansað
í einni eða tveimur stofum, veitingar á
öðrum stað í húsinu og svo var þeim
einhversstaðar séð fyir afdrepi, sem
grípa vildu í spil. Böllin byrjuðu þetta
klukkan 9-10 að kvöldinu og stóðu til
morguns. Þótti hæfílegt að koma heim
um það leyti sem fara þyrfti að sinna
gegningum.
Yfirleitt var það regla á þessum
böllum að flutt vom 15-20 mínútna er-
indi eða lesið upp, nema hvortveggja
væri. Stundum sungið og á einu slíku
balli söng Stefán íslandi opinberlega í
fyrsta sinn. Það var í samkomuhúsinu
á Læk, einhverju því minnsta funda-
og samkomuhúsi, sem eg hef séð.
Minnti mig alltaf á 50 punda sykur-
kassa, en það voru trékassar, sem
nrolasykur var fluttur inn í á sinni tíð
og tóku 50 pund af sykri. Pabbi spilaði
undir sönginn hjá Stefáni, á einhvem
orgelgarm. Þeir óku á sleða fram ey-
lendið, því þetta var að vetrarlagi, í
sunnan asahláku. Vatnsagi var mikill á
Eylendinu og votviðrasamt á sleðanum
svo þeir voru allir hundblautir þegar
þeir komu í Læk. En þeir létu það ekk-
ert á sig fá.
Kvenfélagskonumar drifu í þá heitt
kaffi, kannski líka brennivínslögg og
síðan hóf Stefán sönginn. Skyldi hon-
um aldrei hafa dottið í hug litla húsið á
Læk þegar hann var síðar að syngja í
ópemhöllum heimsbyggðarinnar?
Nú víkur sögunni til þess, að eitt
sinn sem oftar var haldið ball á Þvará í
Blönduhlíð. Þar vom rúmgóð húsa-
kynni á gamla vísu. Dansað var í
tveimur stofum í frambænum og vom
þær sín hvom megin við innganginn í
bæinn. Sat harmonikkuleikarinn á
ganginum og gat þannig spilað fyrir
dansinum í báðum stofum. Pabbi var
fenginn til þess að lesa upp á ballinu.
Kaus hann að lesa kafla úr nýút-
Halldór Kiljan Laxnes.
kominni skáldsögu Halldórs Laxness,
„Þú vínviður hreini”. Þessi upplestur
féll í misjafnan jarðveg hjá samkomu-
gestum. Menn skiptust mjög í tvo hópa
í afstöðunni til Laxness og skrifa hans.
Sumir máttu ekki heyra hann nefndan,
töldu hann hreinan skemmdarverka-
mann, sem bæri út óhróður og svívirð-
ingar um landa sína. Beittu þeir sér ein-
dregið gegn því að bækur Laxness
væru keyptar af lestrarfélögum. Eg
dreg hinvegar í efa að þetta góða fólk
hefi lesið nokkurn staf í þessum bók-
um. Og afstaða þess breyttist ekkert
þótt Laxness fengi Nóbelsverðlaunin.
Að því leyti var það heiðarlegra en
Morgunblaðið. Þetta fólk var eðlilega
ekkert hrifið af upplestri úr „Vínviðn-
um” og fannst að pabbi hefði nú getað
valið eitthvað uppbyggilegra.
En Laxnes átti líka sína aðdáendur
og einnig þama á Þverárballinu. Og af-
staðan til verka hans fór engan veginn
effir stjómmálaskoðunun viðkomandi.
Raunar skiptist sveitafólk á þessum
árum nær undantekningarlaust í tvo
flokka. Annað hvort voru menn fram-
sóknar- eða sjálfstæðismenn. Pólitískir
skoðanabræður Laxness fundust þar
naumast. En Laxnes klauf gjörsamlega
þessa grónu flokka, þó að óneitanlega
væru fylgismenn hans, að maður ekki
segi aðdáendur, fleiri meðal fxamsókn-
ar- en sjálfstæðismanna. Eg man sér-
staklega eftir einum sjálfstæðismanni
sem blátt áfram tilbað Laxness. Hann
var á ballinu og réð sér ekki fyrir fögn-
uði yfir þessum upplestri. Hann kom
skömmu síðar, sem oftar, yfir í Eyhild-
arholt. Þeir pabbi sátu lengi saman inni
í Norðurstofu og Laxness og bækur
hans voru eina málið á dagskránni.
Þessi maður var Jónas Jónasson, þá
bóndi á Syðri - Hofdölum í Viðvíkur-
sveit, stálgreindur karl og skáldmælt-
ur í besta lagi. Hann fluttist síðar til
Sauðárkróks og gerðist þá jafn
harðsoðinn sósíalisti og hann hafði
áður verið sjálfstæðismaður.
Eg hef stundum heyrt því haldið
fram, að bændur hafi almennt haft hom
í síðu Laxness. Það er rnikill misskiln-
ingur. Hann átti sér marga aðdáendur í
þeirri stétt, bæði fyrr og síðar. Það var
langt frá því að upplesturinn á Þverá
félli einvörðungu í grýtta jörð.
Magnús H. Gíslason.
Skagfirska söngsveitin
Góðir fulltrúar
sunnan heiða
Skagfuska söngsveitin gerði góða ferð í Skagfjörð
um síðustu helgi og söng á þremur konsertum, í Bók-
námshúsinu á Sauðárkróki á föstudagskvöld, á sjúkra-
húsinu á laugardag og í Miðgarði á laugardagskvöld.
Söngskemmanimar voru vel sóttar, á annað hundrað
manns bæði í Bóknámshúsinu og í Miðgarði og fékk
kórinn geysilegar góðar undirtektir gesta, en einnig
Skagfirska söngsveitin fagnar nú 30 ára afmæli og
tilcinkar skagfirsku tónskáldunum söngskrána.
Söngsveitin brá á leik undir lokin í sérstöku sveiflulagi er tileinkað var Skagafirði.
þáði kórinn kaffiboð bæði kvöldin, sveitarstjórnar
Skagafjarðar og kóranna, Heimis og Rökkurkórsins.
Það fer ekki á milli mála að Skagfirska Söngsveit-
in er stolt héraðsins sunnan heiða, geysilega góður kór
með margar góðar raddir. Með kómum syngja frábær-
ir einsöngvarar: Oskar Pétursson, Guðnrundur Sig-
urðsson og Kristín R. Sigurðardóttir, og lét Kristín sig
ekki muna um að syngja fiðlutónana í lok lagsins
„Vegferðar” sem er eitt nokkurra laga eft ir stjómand-
ann Björgvin Þ. Valdimarssonar, en auk þess að vera
mjög góður stjómandi er Björgvin frábært tónskáld og
nýtur þar einnig liðsinnis eins kórfélagans, Bjarna
Stefáns Konráðssonar, sem semur texta við lög Björg-
vins. Þá má ekki gleyma undirleikaranum Sigurði
Marteinssyni sem fer fimum fingmm um nótnaborð-
ið.
Lög skagfirsku tónskáldanna var aðalefnið á þess-
ari afmælissögskrá kórsins, en hann fagnar nú 30
ámm. Meðal annars var nú fmmflutt lag sem nýlega
fannst eftir Pétur Sigurðsson tónskáld frá Geirmund-
arstöðum, „Blyndi drengurinn” heitir lagið en það er
við texta Friðriks Hansen. Lögum Jóns Bjömssonar og
Eyþórs Stefánssonar var einnig gerð góð skil á söng-
skránni, einnig hins tónskáldsins frá Geirmundarstöð-
um, Geirmundar Valtýssonar og þá er í prófgramminu
lagið „Laufskálarétt” eftir Kristján Stefánsson frá Gil-
haga.
Þeim mun reyndar fara fækkandi Skagfirðingunum
sem syngja með söngsveitinni, en metnaðaifullt starf
kórsins laðar að góða söngmenn og er það hið besta
mál. Sama er hvaðan gott kemur.