Feykir - 22.11.2000, Blaðsíða 7
40/2000 FEYKIR 7
Um 15 km að reiðvegum
lagðir í Skagafirði í haust
í sumar og haust hefur verið
unnið að lagningu reiðvegar á
Ieiðinni Sauðárkrókur-
Vamiahh'ð eins og vegfarend-
ur á þessari leið hafa eflaust
orðið varir við. Raunar hófst
verkið í fvrra, þá var gerður
vegur næst Varmahlíð og
teknir tveir spottar í Blöndu-
hlíðini. I ár hefur verið unnið
á leiðinni frá Sauðárkróki og
frameftir alls um 15 km að
lengd, en kaflinn milli Kjart-
ansstaðakots og Hátúns er eft-
Léttfeti og Stígandi sem standa
að þessum framkvæmdum,
verktaki er Bessi Vésteinsson í
Hofsstaðaseli.
Bessi sagði í samtali við
fréttamann að verkið hefði
gengið nokkuð vel í haust. Þetta
er gert í samvinnu við landeig-
endur sem í sumum tilfellum
aðstoða við verkið og láta efni
af hendi endurgjaldslaust. Bessi
segir að þama sé verið að reyna
að framkvæma sem mest með
sem minnstum kostnaði og þá
velti mikið á að stutt sé að sækja
efni a.m.k. í burðarlag vegarins.
I yfirborðið sé hinsvegar
ætlunin að setja unnið efni.
Bessi segir að 4-5 manns hafi
starfað við þetta í haust og nota
þeir 3-4 stórar dráttarvélar með
sturtuvögnum, beltagröfu og
litla jarðýtu við verkið en vöru-
bíl er óvíða hægt að koma við.
Eins og áður sagði eru það
hestamannafélögin tvö sem
standa að reiðvegagerðinni og
fá til þess dálítið af því fjár-
magni sem úthlutað er á fjárlög-
um til þessa málaflokks og njóta
einnig fjárstuðnings frá Vega-
gerðinni. OÞ.
Smáauglýsingar
Ýmislegt!
Til sölu Polaris vélsleði árg.
‘94, ekinn 4.300 mflur. Verð
250.000. Upplýsingar í síma
452 7472.
Kettlingar fást gefins, kassa-
vanir. Upplýsingar í síma 453
8217.
Oska eftir440 vatnskældri vél
í Arúc Cat vélsleða. Upplýsingar
í síma 453 5893.
Húsnæði!
Gott einbýlishús í nágrenni
Sauðárkróks til leigu. Upplýs-
ingar í síma 453 5558.
íbúðir til leigu, tveggja
þriggja eða sex herbergja.
Upplýsingar í síma 453 6665.
Félagsvist!
Félagsvist verður spiluð í
Höfðaborg Hofsósi fimmtu-
daginn 22. nóvember nk. kl.
21. Kaffiveitingar
fjölmennum.
ír.
Það eru Hestamannafélögin
Syæðisvinnumiðlunin til
F.E.B.H.
Auglýsing í Feyki
ber árangur
S
Askrifendur góðir!
Munið eftir bankagíróinu
fyrir áskrifargjöldunum
hagsbóta fyrir báða aðila
Svæðisvinnumiðlun Norður-
lands vestra tók til starfa í árs-
byrjun 1998 og var staðsett á
Blönduósi. Fyrsti forstöðumað-
ur stofnunarinnar var Gunnar
Richardsson en Líney Ámadótt-
ir hefur gegnt starfinu ffá 1. júní
á þessu ári.
Svæðisvinnumiðlun á
Blönduósi sér um skráningu at-
vinnulausra á Norðurlandi
vestra og höfðar stofnunin
gagnkvæmt til vinnuveitenda
og launþega, þannig að vinnu-
veitendur geta leitað til stofnun-
arinnar eftir starfsfólki og at-
vinnuleitendur eftir störfum.
Þá er það hlutverk stofnunar-
innar að veita náms- og starfs-
ráðgjöf og leiðbeina þeim sem
ekki vita fýllilega hvað þeir vilja
taka sér fyrir hendur. Stofnunin
greiðir líka fyrir þeim sem kjósa
að skipta um staif eða að kom-
ast í samband við þá sem vilja
takast á við sérstök verkefni eða
jafnvel starfsþjálfun.
Svæðisvinnumiðlunin er í
nánu samstarfi við EES vinnu-
miðlun en gagnkvæm atvinnu-
réttindi eru innan Evrópska
efnahagssvæðisins þannig að
auðvelt er að starfsfólk færi sig
milli viðkomandi Ianda án sér-
stakra leyfa.
Svæðisvinnumiðlunin getur
boðið atvinnuleitendum, sem
rétt eiga til atvinnuleysisbóta,
upp á þátttöku í ýmiss konar
námskeiðum, oft að eigin vali
og vert er að vekja athygli á því
að stofnsett hefur verið sérstök
Menntasmiðja fyrir konur þar
sem verkefnin eru margvísleg
til styrktar og fræðslu.
Þá var hrundið af stað „Viku
símenntunar” er fór fram dag-
ana 4.-8. september þar sem
starfsmenn Svæðisvinnumiðl-
unar Norðurlands vestrakynntu
þjónustu sína, en í kjölfar jx;ss
ftamtaks hefir fjöldi manns jx;g-
ar nýtt sér ráðgjöf stofnunarinn-
ar, er |3egar hefur borið nokkum
árangur til náms eða starfs fyrir
viðkomandi aðila.
Árið 1996 var atvinnuleysi
mest á Norðurlandi vestra næst
á eftir höfuðborgarsvæðinu og
hvað konur snerti var það mest
á landinu eða 7,8%. Nú eru at-
vinnulausar konur (tölur í sept.,
innskot Feykir) aðeins 1,2%
móti 1,3% sem er landsmeðaltal
og atvinnulausir, bæði karlar og
konur, eru 0,8 %, en landsmeð-
altal er 0,9% um [ressar mund-
ir.
Varla leikur á tveim tungum
að Svæðisvinnumiðlunin á
Blönduósi vinnur markvisst að
því að nýta sem gagngerast all-
Vöruflutningar
Sauðárkrókur - Skagafjöróur
Daglegar ferðir
Vörumóttaka í Reykjavík hjá
Aðalflutningum Héðinsgötu 2
Sími 581 3030
Bjarni Haralclsson sími 453 5124.
ar vinnandi hendur á svæðinu til
hagsbóta fyrir báða aðila, þ.e.
atvinnuveitendur og atvinnuleit-
endur, en það er tilgangur stofn-
unarinnar.
gg-
Þú verður ekki straumlaus með
Data-rafgeymi í bílnum
OLÍS - umboðið
Verslun Haraldar Júlíussonar
ff
Skagafjörður
Aðsetursskipti!
Til þess að íbúaskrá 1. desember 2000 verði sem réttust,
minnum við á nauðsyn þess að tilkynna aðsetursskipti,
einnig þau sem íyrirhuguð eru til 1. desember , til skrifstofu
Skagafjarðar sem allra fyrst og í síðasta lagi 27. nóvember nk.
Sveitarstjóri.
NORNIN BABA JAGA
D^Jœstu sýningar
^ Föstudaginn 24.11 kl. 18.0
ATH! Breyttur sýningartími
♦ Sunnudaginn 26.11 kl. 14.00
♦ Sunnudaginn 26.11 kl. 17.00
♦ Miðvikudaginn 29.11 kl. 18.00
♦ Laugardaginn 02.12 kl. 15.00
♦ Sunnudaginn 03.12 kl. 15.00
♦ Miðapantanir í síma 453 5654
kl. 17-19 virka daga og 12-14 um helgar
Miðasala við innganginn.
ATH! Ekki er tekið við greiðslukortum.
Jleilzjélag Sauðárkróks