Feykir - 25.04.2001, Side 5
17/2001 FEYKIR 5
Hestamenn
Fra og með næstu manaðarmótum
verður öll hestavara seld
í Versluninni Eyri
O
Gamla þúfna-göngulagið best
Að flestu leyti stöndum við
Skagfirðingar öðrum þjóð-
flokkum framar, sem er ósköp
notalegt þó slíkt sé ekki endi-
lega sjálfsagt. Núna er ég ekki
að tala um það sem öllum má
vera augljóst, eins og útlit okk-
ar og gjörvileiki, en vissulega
er hér bæði fallegt og myndar-
legt fólk. Ég á ekki heldur við
hvað allir eru hér almennilegir
og áheyrilegir, það vita þeir
sem heyrt hafa í Heimi, að við
erurn sannarlega best í heimi,
þó Heirnir sé ekki alltaf bestur
í Skagafirði.
Unt okkar frábæru frammi-
stöðu sem hestamenn ætla ég
heldur ekki að tala núna og
eins ætla ég að sleppa að þessu
sinni, lofgerðarstaglinu unt lífs-
lánið mesta, okkar margróm-
uðu sveitarstjórn. Ætlun mín
var að mæra mennina sem
starfa fyrir hugsjónina eina að
velferð fjöldans - kaupfélags-
forkólfana og forkylfúmar - en
þær hef ég nú bara með vegna
jafnréttisins.
Áreiðanlega sjá ekki né
skilja margir hvað við emm
heppin hér í Skagafirði að eiga
okkar ágæta kaupfélag óskadd-
að og raunar sem blóm í eggi
meðan aðrir landshlutar horfa
upp á sín félög stirðna og stein-
renna og enda flest eins og risa-
eðlur fortíðarinnar.
Það má satt vera að vagga
samvinnuhreyfingarinnar hafi
staðið í Þingeyjarsýslu, samt
em menn nú þar að moka grát-
andi yfir beinamuslið sem
KEA leifði. Satt er einnig að
blómaskeið santvinnunar var á
Akureyri en þar berjast nú all-
ir blóðugir til axla í því að
skiffa hræinu af KEA og sjást
lítt fyrir í ákafanum við að
koma slátrinu fyrir í frystigám-
unt hlutafélaganna.
Hér í Skagafirði förurn við
aðra leið, þar sem gamla
þúfhagöngulagið er ennþá talið
farsælast og þó er ætíð briddað
upp á þeim nýjungum sem til
framfara horfa. Þessi gæfulega
blanda af rótgróinni íhaldssemi
og markvissri framsókn til
helntinga, hæfir okkar þjóð
ennþá best. Við nefnilega flytj-
um allt inn í kaupfélagið,
Byggðastofhun núna síðast, en
fyrir var Landsbankinn, Hús-
næðismálastofnun og raunar
Búnaðarbankinn líka, þó heim-
ilisfangið sé annað. Islands-
póstur hefur þar líka fundið
skjól sem landsfrægt er. Það er
ekki úr vegi að benda á þá
ntöguleika að kaupfélagið geti
einnig stjómað og ávaxtað
sveitarsjóð, sem stundum á víst
í erfíðleikum. Þá væri líka auð-
leystur sveitarstjóraskorturinn
sem blasir við á næstunni þeg-
ar Snorri Björn hættir.
Kaupfélagið okkar ræður
yfir þeint galdri að hagnast á
tapinu. Það sanna síðustu árs-
reikningar. Þar á bæ geta menn
snúið staðfestum mínusi i
gruggugan gróða með bók-
haldsfimleikum. Það er frábær
frammistaða.
Við Skagfirðingar höldum
sannarlega í heiðri gömlu gild-
in. Við trúum á samvinnu. Hjá
okkurtaka allir sem vilja, þátt í
ákvörðunum og síðan göngum
við saman, hönd í hönd, til
góðra verka. Og ennþá þarf
ekki að kvíða verkefnaskorti,
nóg er af fýrirtækjum sem
gætu fundið framtíðarathvarf í
kaupfélagshúsinu. „Þar sem
hjartarýmið er nóg er alltaf
pláss fyrir einn gest í viðbót”,
sagði amma mín, sem var fædd
á árdögum kaupfélaganna.
Væntanlegir leigjendur gætu
t.d. verið: Dögun, Steinullar-
verksmiðjan og Landssíntinn
og peningastofnanir sem hægt
væri að hýsa eru líka til eins og
Sparisjóður Hólahrepps og
Barnabótasjóður Akrahrepps.
Mér finnst ástæða til að
vera bjartsýnn, þrátt fyrir sjó-
mannaverkfall, grænmetisokur
og fallandi gengi. Slíkt leysurn
við með því að flytja LÍÚ,
Þjóðhagsstofnun og Ágæti
norður. Gleðilegt sumar!
Glaumur.
Bændur og búalið!
Til sölu Hino árgerð 1980 með krana
upplagður til rúlluflutnings eða annað,
í skiptum fyrir t.d. Un, kjöt.
Upplýsingar gefur Hilmar á
Bíla&Búvélasölunni Borgarröst 5
í síma 453 6670 eða 854 7411.
Myndlistarsýning
í Sæluviku
Jóhanna Bogadóttir verður með sýningu á málverkum
og vatnslitamyndum í Safnahúsi Skagfírðinga í
Sæluviku.
Jóhanna er fædd í Vestmannaeyjum árið 1944, nam
við Listaháskólann í Stokkhólm, Listaháskólann í
París og víðar í Frakklandi.
Hún hefiir sýnt verk sín á fjölmörgum einkasýningum
á íslandi, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Hollandi og
Bandaríkjunum og auk þess tekið þátt í mörgum
samsýningum á íslandi og víðar um heim.
Sýning Jóhönnu Bogadóttur er opin dagana 29.
apríl - 6. maí frá kl. 14 -19 alla daga.
Aðgangur er ókeypis.
Listasafn Skagfirðinga.