Feykir - 25.04.2001, Qupperneq 7
15/2001 FEYKIR 7
Vilja meiri vinnslu á Blönduósi
Aðalfundur samlagsdeildar
Mjólkursamlags Húnvetninga og
Félags kúabænda í sýslunni var
haldinn á Blönduósi nýlega.
Fundurinn var vel sóttur og sátu
hann auk heimamanna stjómar-
formaður og forstjóri Mjólkur-
samsölunnar, og mjólkursam-
lagsstjórinn í Búðardal, en
Mjólkursamsalan keypti rnjólk-
urstöðina á Blönduósi á miðju
ári 1999 og tók við rekstri henn-
ar fýrsta september það ár.
Rúmlega 4 milljónir lítra
komu inn í mjólkurstöðina á
Blönduósi árið 2000 frá 51 inn-
leggjenda, sem er nokkuð minna
en árið 1999. Mjólkin í heild
flokkaðist með ágætum og aldrei
greindist í henni mengun frá
fúkkalyfjum. Níu innleggjend-
um voru afhent verðlaun fyrir
úrvalsmjólk að þessu sinni.
Mjög em það sömu innleggjend-
lands hefur aldrei verið meiri
en nú. Reyndar hafði Sara
heyrt það urn daginn að nokkr-
ir arabar hefðu boðið í það að
reka grunnskólana í Skagafirði
og væri málið nú til skoðunar
hjá sveitarstjóm. Einhver hafði
sagt henni að þeir vildu taka
upp skólabúninga og stúlkur
ættu að vera sveipaðar slæðunt
um höfúð. Þetta fannst hinni
frjálslyndu Söm undarlegt og
reyndar trúði hún þessu
ekki.Kjaftæði, eins og hún
sagði stundum, eða hötturinn,
sem er nýyrði og notað um eitt-
hvað sem þykir fáránlegt og
byggt er á gamla orðatiltækinu
sem sagði að þetta eða hitt væri
alveg út í hött.
Eftir hádegið þurfti Sara að
útrétta aðeins fyrir rnóður sína.
Hún keyrði niður að sjónum og
ók út Strandveginn sem nýlega
var kláraður og loksins er orðið
fallegt niður við sjóinn. Hún ók
framhjá vatnsverksmiðjunni
sem manna á milli er kölluð
Hreinn gróði, en Sara hélt að
það nafh ætti einungis að lýsa
því hversu framkvæmdin væri
arðbær og vísa jafhframt í gæði
framleiðslunnar. Verið er að
ganga ffá lokaffamkvæmdum
á verksmiðjuhúsinu sem byggt
er á gömlurn og traustum
gmnni.
Vegna hlýnandi veðurfars í
heiminum, er farið að bera á
vatnsskorti og vatnsflutningur
ffá Islandi orðinn arðbær iðn-
aður. Fundið hefúr verið upp ó-
dýrt efni sem blandað er í vatn-
ið og heldur því fersku svo
mánuðum og jafnvel árum
skiptir. Þegar Sara ók ffam hjá
höfninni sá hún eldri mann
sem gekk þar urn, og horfði
stoltur yfir gríðarleg hafnar-
mannvirki. Sara vissi að þessi
maður hét Brynjar og hún
hafði heyrt pabba sinn tala um
það, að Brynjar væri búinn að
eyða milljarði í höfnina. Enda
þurfa vatnsskipin, sem eru
þúsundir tonna að geta athafn-
urnir sem hljóta viðurkenning-
amar árlega og sem dæmi um
það tók bóndinn á Auðólfsstöð-
um í Langadal nú við viðurkenn-
ingunni tíunda árið í röð.
Vinnslan á mjólkinni á
Blönduósi er einhæf. Framleiðsl-
an er að meginhluta duft, skyr og
smjör, og mikið af mjólkinni er
flutt burt óunnin. Orsakar það að
starfsemi stöðvarinnar hefur
dregist saman og starfsmönnum
fækkað. Upplýst var á fúndinum
að ársstörf við mjólkurstöðina á
Blönduósi eru ekki nema 11 á
móti 44 í Búðardal, en þessi
samlög eru mjög sambærileg
hvað heildarinnlegg mjólkur
snertir. Fundurinn samþykkti
einróma áskomn á stjóm Mjólk-
ursamsölunnar að fjölga ffam-
leiðslugreinum mjólkurvara á
Blönduósi til úrbóta á þeim sant-
drætti sem orðið hefúr á starf-
seminni samkvæmt framan-
sögðu. gg.
Aðalfundur Tindastóls
Aðalfúndur Ungmennafélagsins Tindastóls verður
haldinn miðvikudaginn 2. maí kl. 19,30 á skrifstofú
félagsins í íþróttahúsinu. Venjuleg aðalfúndarstöf.
Stjórnin.
að sig svo að sómi sé að. Um-
hverfisverndarsinnarnir, sem
gerðu allt vitlaust þegar Vill-
inganesvirkjun var reist, em
mjög ánægðir með vatnsút-
flutninginn og telja litlu hætt
þótt vatn leki úr skipum í hafið
úti fyrir Norðurlandi. Þó heyr-
ast raddir um það að svo stór
skip geti hrætt hvali á þeirri
siglingaleið, og hafa Húsvík-
ingar komið til Sauðárkróks til
þess að fylgjast með ffam-
kvæmdum.
Um kaffileytið var Sara
komin heim. Sá léttleiki sem
hún hafði fúndið fyrir um
morguninn var enn til staðar og
hún ákvað að fara í útreiðartúr
á rauðblesótta gæðingnum sín-
um. Hún reið niðurá eylendið
og horfði austur yfir Héraðs-
vötn. Þar er ennþá sérstakt
sveitarfélag sem heitir Akra-
hreppur. Þegar sveitarfélagið
Skagafjörður og sveitarfélögin
á vestanverðum Skaga samein-
uðust vildu þeir austan vatna
ekki vera með. Nýlega ákvað
ríkisstjómin að friða Akra-
hrepp og fær hreppsnefnin nú
sérstakan styrk til þess að
byggja upp menningartengda
ferðaþjónustu, sem fjallar um
1000 ára sögu hreppanna á ís-
landi.
Eftir reiðtúrinn dreif Sara
sig í sturtu því að um kvöldið
ætlar hún með foreldmm sín-
um á hátíð sem haldin er í
menningarhúsinu og nefnist
Villi í 20 ár. Er það hátíð til
heiðurs Vilhjálmi Egilssyni
sem hefúr verið þingmaður í
20 ár, fyrst í Norðurlanskjör-
dæmi vestra, síðan í kjördæmi
Vesturlands, Vestfjarða og
hluta Norðurlands og síðustu
árin sem þingmaður landsins
eftir að ísland varð eitt kjör-
dæmi. Sú skipan hefúr reynst
vel og nú undrast allir, bæði
þeir sem voru með og á móti
einu kjördæmi, af hveiju þetta
var ekki gert miklu fyrr.
Söru líkaði nokkuð vel við
Villa. Hann var ffjáls í fasi og
þegar leið á kvöldið og hann
dansaði á hógværan hátt, sem
aðallega fólst í Iáréttri hreyf-
ingu framhandleggja og söng
lög, sem pabba Söru minnti að
væru annað hvort eftir Rolling
Stones eða Bítlana, þá sagði
hún að hann væri k, - en það er
SMS mál og þýðir víst allt í
lagi. Gísli Gunnarsson.
Smáauglýsingar
Ýmislegt!
Eigum hvolpa undan Pílu á
Steiná III og Smala á Hóli,
fjárhundar, bliðlind og bamgóð.
Upplýsingarísíma 452 7162og
452 7131.
Reiðhjól óskast handa 7 ára
strák. Upplýsingar í s'ma 453
8220.
Til sölu Subaru áig. ‘87, skipti
á fjórhjóli möguleg. Upplýsingar
í síma 869 8106 eða 453 6610.
Félagsvist!
Félagsvist verður spiluð í
Höfðaborg Hofsósi fimmtu-
daginn 26. apríl kl. 21.Góðir
vinningar -Kaffiveitingar -
fjölmennum. F.E.B.H.
Húsnæði óskast!
Einstaklingur óskar eftir
húsnæðitil leigu áSauðárkróki
eða í næsta nágrenni. Allt
kemur til greina. Upplýsingar i
síma 866 5160.
Áskrifendur góðir!
Munið eftir bankagíróinu
fyrir áskrifargjöldunum
Matsvein á bát!
Matsvein vantar á ms. Röst SK-17
sem gerð er út á rækju frá
Sauðárkróki.
Áhugasamir snúi sér til Jóns
skipstjóra í síma 894 7473.
-----------------------ii__________________________________
I
Okkar innilegustu þakkir tilykkar allra
sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
ástkærrar dóttur okka/; systur, og unnustu,
"/ // (^f jiff ‘i'JsÁíSS/f/,
Guð blessiykkui:
Einar Guðmundsson, Anna María Hafsteinsdóttir,
Ásta Guðbjörg Einarsdóttir, Guðmundur Einarsson,
Elías Guðmundsson og aðrir aðstandendur
vyEGAGERÐINy
Sumarstarf
Auglýst er sumarstarf eftirlitsmanns hjá Vegagerðinni í
Norðurlandsumdæmi vestra með aðsetur á Sauðárkróki.
Starfið felst m.a. í eftirliti með framkvæmdum í umdæminu.
Æskilegt er að viðkomandi hafi stúdentspróf eða sambærilega
menntun.
Nánari upplýsingar veitir Einar Gíslason í síma 453 5500
Umsóknum um starfið skal skila til Vegagerðarinnar
Borgarsíðu 8, 550 Sauðárkróki fyrir 7. maí 2001.