Feykir - 03.10.2001, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 33/2001
Jón Árnason, annar Víðimelsbræðra, leiðbeinir Hlöðveri
Þórarinssyni sem sturtar kjarna í varnargarðinn í Hofs-
óshöfn.
Unnið við hafnir á
Hofsósi og Krók
Fé flutt á þriggja hæða fjár-
flutningabíl í sláturhús KS
Ingólfur Helgason í nýja gripallutningavagninum.
Þessa dagana standa yfir
hafnarframkvæmdir á Hofsósi.
Verktakinn Víðimelsbræður
hófst handa í síðustu viku við
lengingu þvergarðs um 15
metra til norðurs inn í höfnina.
Með þessari ffamkvæmd mun
skapast meira og betra lægi við
suðurgarðinn, en órói í höfiiinni
hefur verið fiill mikill í slæmum
veðrum til þessa.
Þá er einnig komnar vel af
stað framkvæmdir við frágang
á stálþili og kanti við norður-
garð Sauðárkrókshafnar, og
berasta hamarshöggin þaðan í
kyrru veðri. Það eru Guðlaugur
Einarsson og hans menn sem
vinna það verk.
í síðustu viku tók Ingólfur
Helgason á Dýrfinnustöðum
í Skagafirði í notkun nýjan
gripaflutningavagn sem tek-
ur um 400 lömb. Eins og
kunnugt er hefur Ingólfur
séð um fjárflutninga að slát-
urhúsinu á Sauðákróki und-
anfarin liaust og þegar ljóst
varð nú síðla sumars að
verulegur fjöldi tjár yrði
fluttur hingað til slátrunar af
Vestfjörðum var farið að
huga að stórvirkari flutn-
ingatækjum en áður hafa
þekkst hér um slóðir og nið-
urstaðan varð að kaupa vagn
frá Austurrríki sem þó er
upphaflega smíðaður á Ital-
íu.
Ingólfur sýndi tíðindamanni
Feykis vagninn á dögunum og
lét þess getið að fyrsta vikan
hefði farið í að læra á tækið.
Hann hefði þó farið fjórar ferð-
ir vestur á Strandir og ísafjarð-
arsýslu og ekki hefðu komið
upp nein sérstök vandamál. En
lengsti túrinn að Kirkjubóli í
Dýrafirði tók um 20 klukku-
stundir og þá voru eknir 1088
kílómetrar.
Stærð vagnsins er, lengd
tæpir 14 m., breidd 2.55, hæð 4
m. og þyngd um 10 tonn. Hann
er á þremur hæðum og er
tveinrur efri hæðunum lyft upp
eða slakað niður eftir þörfum.
Hver hæð tekur liðlega 130
lömb og þá er velrúmt á segir
Ingólfur. Öll yfirbygging á
vagninum er úr áli, brynning-
araðstaða er í öllum stíum og
er hægt að kornast inn í öll hólf
utan ffá. Hásingar eru þijár og
fjaðrabúnaður eru svokallaðir
loftpúðar. Má segja að hönnun
þessa flutningatækis miði að
því að gripum geti liðið vel í
því sem raunar er nauðsynlegt
þegar flutt er urn langan veg.
Ö.Þ.
Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
Inflúensubólusetning
Bólusett verður gegn Inflúensu á Heilbrigðisstofnuninni
Sauðárkróki 16. og 18. október frá 13-16 og 23. október frá 13-16.
Á Hofsósi verður bólusett 16. október kl 17.
Sóttvarnarlæknir mælir með því að allir 60 ára og elclri láti bólusetja
sig. Einnig er mælt með því að sömu einstaklingar séu bólusettir á 10
ára fresti gegn lungnabólgu.
Ekki tekið á móti tímapöntunum.
Laust starf!
ÁTVR á Sauðárkróki óskar eftir
starfsmanni á fimmtudögum og
föstudögum og tveim laugardögum
í mánuði. Einnig þarf viðkomandi
starfsmaður að vera tilbúinn að vinna
fleiri daga tímabundið ef um það
væri að ræða.
Upplýsingar gefur útsölustjóri á
opnunartíma verslunarinnar.
ó liáð fréttablað á KIR Norðurlandi vestra Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf. 1 lermannsson, SigurðurÁgústsson og Stefán Amason. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box4, Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað nteð vsk. 550 Sauðárkróki. Síniar: 453 5757 og 453 6703. Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og Farsími 854 6207. Netf'ang: feykir @ krokur. is. umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf. Feykir á Ritstjóri: Þóriiallur Ásmundsson. Blaðstjórn: Jón F. aöild að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson, Sæmundur